Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Ţri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Mars 2007

Laugardagur, 31. Mars 2007 kl. 12:54 | KLÍ
Deildarbikar liða 6. umferð

6. og síðasta umferð Deildarbikars liða fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 31. mars. Leikmenn ÍR-PLS, þeir Róbert Dan Sigurðsson og Steinþór G. Jóhannsson fóru þar hreinlega á kostum og settu fimm Íslandsmet  í tvímenningi þegar þeir spiluðu 526 í einum leik, 993 í tveimur leikjum, 1. 527 í þremur leikjum og bættu eigið met í einum leik 534 og loks metið í fjórum leikjum 2.038. Fleiri leiki spiluðu þeir ekki þannig að metin urðu ekki fleiri. Leikir Róberts voru 247, 245, 278 og 255 eða samtals 1.025, en leikir Steinþórs voru 279, 222, 256 og 256 eða samtals 1.013.


Meira



Laugardagur, 31. Mars 2007 kl. 12:39 | KLÍ
Sjóvá mótið - undanúrslit

Í dag, laugardaginn 31. mars lauk 8 manna úrslitum karla þegar Hafþór Harðarson og Árni Geir Ómarsson tryggðu sér sæti í undanúrslitum sem fara fram á morgun, sunnudaginn 1. apríl og hefjast kl. 9:00.

Í undanúrslitum kvenna mætast : Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Sigfríður Sigurðardóttir KFR, Dagný Edda Þórisdóttir KFR og Sirrý Hrönn Haraldsdóttir KFK. Í undanúrslitum karla mætast: Stefán Claessen ÍR og Hafþór Harðarson KFR, Árni Geir Ómarsson ÍR og Magnús Reynisson KR.


Meira



Föstudagur, 30. Mars 2007 kl. 19:36 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007

Í vikunni fór fram 18. umferð í 1. deild kvenna og 15. umferð í 1. og 2. deild karla á Íslandsmóti liða 2006 - 2007 og nú þegar þremur umferðum er ólokið eru línur farnar að skýrast, bæði í topp- og fallbaráttunni.


Meira



Föstudagur, 30. Mars 2007 kl. 18:59 | KLÍ
Sjóvá mótið - 8 manna úrslitum kvenna lokið

Í vikunni hélt áfram keppni í bikarkeppni einstaklinga, Sjóvá mótinu 2007 og er 8 manna úrslitum kvenna nú lokið.

Undanúrslit og úrslit í báðum flokkum fara síðan fram sunnudaginn 1. apríl og hefst keppni kl. 9:00.


Meira



Sunnudagur, 25. Mars 2007 kl. 20:16 | KLÍ
Sjóvá mótið - 16 manna úrslitum lokið

Í dag, sunnudaginn 25. mars, lauk 16 manna úrslitum karla í Sjóvá mótinu og einnig fóru fram tveir leikir í 8 manna úrslitum kvenna og einn leikur úr 8 manna úrslitum karla. Núverandi bikarmeistarar einstaklinga þau Dagný Edda Þórisdóttir og Hafþór Harðarson sigruðu bæði í sínum leikjum í dag og eiga því ennþá möguleika á að verja titla sína.


Meira



Sunnudagur, 25. Mars 2007 kl. 19:01 | KLÍ
Frábær spilamennska í Meistarkeppni ungmenna

Í gær, laugardaginn 24. mars, fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmta og jafnframt síðasta umferð í Meistarakeppni ungmenna þennan veturinn.  Spilamennskan var mjög góð, og í fimmta leik lék Hafþór Harðarson úr KFR sinn annan 300 leik á ferlinum og setti þar með Íslandsmet í 5 leikjum í karlaflokki, 1.273 eða 254,6 að meðaltali.  Hafþór bætti einnig Íslandsmetið í 6 leikjum, en hann endaði með 1.511 eða 251,8 að meðaltali.  Þess má geta að í byrjun mánaðarins bætti Hafþór þessi met einnig í forkeppni Íslandsmóts einstaklinga.

Fleiri áttu mjög góðan dag. Róbert Dan Sigurðsson úr ÍR var með 1.370 í 6 leikjum, Stefán Claessen úr ÍR 1.315, Andri Már Ólafsson úr KFR 1.275 og Hafliði Örn Ólafsson úr ÍR með 1.268.

Sjá niðurstöður úr mótinu




Laugardagur, 24. Mars 2007 kl. 15:10 | KLÍ
Félagakeppni KLÍ - 4. umferð

Fjórða og síðasta umferð Félagakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 22 mars. Lið Keilufélags Reykjavíkur KFR bar sigur úr býtum þetta árið með 95,5 stig, eftir harða keppni við Knattspyrnufélag Reykjavíkur KR sem endaði í öðru sæti með 90 stig. Sigurvegararnir frá því í fyrra, Íþróttafélag Reykjavíkur ÍR hafnaði í því þriðja með 79,5 stig, Keilufélagið Keila KFK varð í fjórða sæti með 55 stig og Keilufélag Akraness KFA varð í fimmta sæti með 40 stig. Sjá nánar . Magnús Magnússon KR spilaði best allra keppenda í lokaumferðinni og spilaði m.a. 299 leik.




Laugardagur, 24. Mars 2007 kl. 14:55 | KLÍ
Deildarbikar liða - Breyting á leikdegi

Samkvæmt tilkynningu frá Mótanefnd KLÍ fer næsta umferð í Deildarbikar liða, og jafnframt sú síðasta, fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 31. mars kl. 9:00. Úrslitin í deildarbikarnum fara síðan fram fimmtudaginn 26. apríl kl.18:30, en til úrslita keppa tvö efstu liðin úr hvorum riðli. Sjá nánar




Ţriđjudagur, 20. Mars 2007 kl. 18:49 | KLÍ
Sjóvá mótið - 8 manna úrslit

Í kvöld, þriðjudaginn 20. mars var dregið í 8 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá mótinu. 8 manna úrslit kvenna fara fram sunnudag 25. mars, en 8 manna úrslit karla fara fram laugardaginn 31. mars n.k. Undanúrslit og úrslit fara síðan fram sunnudaginn 1. apríl. Sjá tímasetningar leikja


Meira



Ţriđjudagur, 20. Mars 2007 kl. 00:15 | KLÍ
Félagakeppni KLÍ - 4. umferð

Fjórða og síðasta umferð Félagakeppni KLÍ fer fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 22 mars kl. 18:30. 

Staðan er nú þannig að KFR er efst með 83,5 stig, KR er í 2. sæti með 67 stig, ÍR í 3. sæti með 54,5 stig, KFK í 4. sæti með 40 stig og KFA er í 5. sæti með 25 stig. Sjá nánar




Ţriđjudagur, 20. Mars 2007 kl. 00:12 | KLÍ
Deildarbikar liða 5. umferð

Fimmta umferð Deildarbikars liða fer fram í Keiluhöllinni í kvöld, þriðjudaginn 20. mars Sjá nánar 


Meira



Ţriđjudagur, 20. Mars 2007 kl. 00:00 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - Undanúrslit

Undanúrslit Bikarkeppni KLÍ fóru fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keilusalnum á Akranesi fimmtudaginn 15. mars.

KFR-Valkyrjur og ÍR-TT sigruðu í kvennaflokki og KFR ÍR-KLS og ÍR-PLS í karlaflokki. Þessi lið mætast því í úrslitum Bikarkeppni KLÍ 2007.


Meira



Mánudagur, 19. Mars 2007 kl. 23:44 | KLÍ
Aðalfundur Keiludeildar ÍR
Aðalfundur Keiludeildar ÍR verður haldinn í ÍR–heimilinu, Skógarseli 12, laugardaginn 24. mars kl. 14:00. Hvetur stjórn keiludeildarinnar alla félagsmenn til að mæta. Sjá dagskrá



Mánudagur, 19. Mars 2007 kl. 23:41 | KLÍ
Íþróttavæðum Ísland
Þriðjudaginn 13. mars s.l. var haldin kynning á skýrslu starfshóps sem menntamálaráðherra skipaði til að fara yfir málefni íþrótta með það að markmiði að móta íþróttastefnu Íslands. Skýrslan, sem ber heitið "Íþróttavæðum Ísland" var fyrst kynnt fyrir um ári síðan en nú er fyrirhugað að kynna hana á landsvísu og var þetta fyrsti fundurinn í þeirri kynningarferð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, opnaði fundinn og tók virkan þátt í umræðum en Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og formaður starfshópsins, stýrði fundinum. Sjá skýrsluna



Mánudagur, 19. Mars 2007 kl. 23:33 | KLÍ
Hagrænt gildi íþrótta í íslensku nútímasamfélagi
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands býður til hádegisfundar í E-sal íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal föstudaginn 23. mars næstkomandi frá kl. 12.00-13.00.  Þórdís Lilja Gísladóttir mun kynna niðurstöður rannsóknar sinnar, „Hagrænt gildi íþrótta í íslensku nútímasamfélagi“ sem hún vann í tengslum við lokaverkefni hennar til MA-prófs í menningar og menntastjórnun. Sjá nánar



Sunnudagur, 18. Mars 2007 kl. 21:58 | KLÍ
Sjóvá mótið 2007 - 16 manna úrslit

Um helgina fóru fram 10 leikir í 16 manna úrslitum karla og kvenna í Sjóvá mótinu og einn leikur úr 32 manna úrslitum karla. Sigfríður Sigurðardóttir KFR spilaði best í kvennaflokki eða 686 og Halldór Ragnar Halldórsson ÍR spilaði best í karlaflokki þegar hann spilaði 739. 

Dregið verður í 8 manna úrslit karla og kvenna á þriðjudagskvöld 20. mars á undan keppni í Deildarbikar liða, en 8 manna úrslitin fara fram 24., 25. og 31. mars og undanúrslit og úrslit fara fram 1. apríl.


Meira



Sunnudagur, 18. Mars 2007 kl. 21:38 | KLÍ
Íslandsmót unglingaliða 6. umferð
Um helgina fór fram í Keilusalnum á Akranesi 6. umferð í Íslandsmóti unglingaliða. Lið ÍR vann alla sína leiki og er nú komið með 30 stig og forystu í keppninni. Lið KFA-ÍA-1 er í 2. sæti með 28 stig. Lið KFR kemur síðan í 3. sæti með 10 stig og KFA-ÍA-2 er í 4. sæti með 4 stig. Úrslitin fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 31. mars og hefjast kl. 9:00. Sjá nánar



Föstudagur, 16. Mars 2007 kl. 17:26 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - Undanúrslit

Undanúrslit Bikarkeppni KLÍ fóru fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keilusalnum á Akranesi fimmtudaginn 15. mars. KFR-Valkyrjur og ÍR-TT sigruðu í kvennaflokki og KFR ÍR-KLS og ÍR-PLS í karlaflokki.





Miđvikudagur, 14. Mars 2007 kl. 11:51 | KLÍ
Opna hjóna og paramót KFR og Snerils
Fjórða umferð opna hjóna og paramót KFR og Snerils ehf fór fram í Keiluhöllinni á sunnudagskvöldið 11. mars. Að venju var mikil þátttaka í mótinu og að þessu sinni voru það Helga Sigurðardóttir og Ágúst Haraldsson sem fóru með sigur af hólmi með 1.111. Í 2. sæti voru Theódóra Ólafsdóttir og Þórir Ingvarsson með 1.096 og Laufey Sigurðasdóttir og Bjarki Sigurðsson voru í 3. sæti með 1.095. Til tíðinda þótti sæti að Sigfríður Sigurðardóttir og Björn Sigurðsson unnu ekki til verðlauna að þessu sinni, en þau hafa afburða forystu í keppninni. Í 2. sæti eru Theódóra og Þórir og Helga og Ágúst eru í 3. sæti. Staðan í mótinu



Miđvikudagur, 14. Mars 2007 kl. 10:49 | KLÍ
Sjóvá mótið - 16 manna úrslit

Um helgina, þ.e. laugardaginn 17. og sunndaginn 18. mars, fara fram 16 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá mótinu.

Það hefur valdið mótshöldurum nokkrum vandræðum að koma leikjum á vegna frestana, landsliðsæfingar og helgarferðar unglingalandsliðshóps, en við því er lítið hægt að gera. Keppendur eru vinsamlega beðnir um að kynna sér tímana og staðfesta til gg@sjova.is

Dregið verður í 8 manna úrslit Sjóvá strax eftir helgina en þau eru á dagskrá laugardaginn 31. mars og 4 manna úrslit og úrslit sunnudaginn 1. apríl. Sjá dagskrá




Ţriđjudagur, 13. Mars 2007 kl. 17:06 | KLÍ
Meistarakeppni ungmenna 4. umferð

Fjórða umferð Meistarakeppni ungmenna fór fram í Keiluhöllinni, laugardaginn 10. mars og tóku 26 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni í 7 flokkum pilta og stúlkna.

Bestu spilamennsku dagsins sýndu þeir Stefán Claessen ÍR 1230, Jón Kristinn Sigurðsson ÍR 1.212 og Jón Ingi Ragnarsson KFR 1.199, en þeir keppa allir í 2. flokki pilta.

 

Fimmta og síðasta umferð vetrarins fer fram í Keiluhöllinni laugardaginn 25. mars og hefst kl. 9:00.




Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 23:08 | KLÍ
Evrópumót karla 2007 - EMC 2007

Evrópumót karla, European Men Championship 2007, verður haldið í borginni Vín í Austurríki dagana 30. júní til 10. júlí 2007. Vegna undirbúning mótsins valdi landsliðsnefnd KLÍ 8 manna landsliðshóp karla, en af þeim 12 sem rætt var við vegna þátttöku voru 4 aðilar sem ekki gáfu kost á sér af ýmsum ástæðum.  Landsliðshópinn skipa eftirtaldir: Árni Geir Ómarsson, Róbert Dan Sigurðsson, Stefán Claessen og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR, Andrés Páll Júlíusson, Björn Birgisson og Björn Guðgeir Sigurðsson úr KR og Hafþór Harðarson úr KFR. Val hópsins hefur sætt gagnrýni og sá landsliðsnefndin ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu.

 




Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 22:49 | KLÍ
Evrópumót unglinga - EYC 2007

Evrópumót unglinga í keilu, EYC 2007, verður haldið í borginni Þessalóníku í Grikklandi um páskana, eða nánar tiltekið dagana 6. - 15. apríl 2007.  Undirbúningur vegna þátttöku íslenska unglingalandsliðsins er nú að komast á lokastig og hafa unglingarnir verið að sýna miklar framfarir á síðustu vikum. Um næstu helgi verður tekin hvíld frá keiluæfingum og í staðinn mun hópurinn, ásamt þjálfara og aðstoðarþjálfara, fara út úr bænum og lögð verður áhersla á að efla liðsheildina.




Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 22:39 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - Undanúrslit
Undanúrslit Bikarkeppni KLÍ fara fram fimmtudaginn 15. mars kl. 18:30 Í karlaflokki mætast ÍR-KLS og KR-A annars vegar og ÍR-PLS og ÍR-A hins vegar. Í kvennaflokki mætast KFA-ÍA og KFR-Valkyrjur annars vegar og ÍR-TT og KFR-Afturgöngur hins vegar. Sjá nánar



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 22:21 | KLÍ
Opna hjóna- og paramót KFR og Snerils

Næsta umferð í opna hjóna- og paramóti KFR og Snerils fer fram í Keiluhöllinni á sunnudag 11. mars kl. 20:00. Hvetjum við alla keilara til að taka þátt í skemmtilegu móti.

Staðan í mótinu




Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 22:20 | KLÍ
Lottó - Fimmfaldur risavinningur
Það stefnir í stærsta fimmfalda vinninginn frá upphafi í Lottóinu um helgina, en fyrsti vinningur stefnir í 35 milljónir króna! Ekki gleyma að vera með á Lottó.is



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 17:52 | KLÍ
Brunswick Aalborg International 2007

Brunswick Aalborg International 2007 verður haldið í keilusalnum Lövvang Bowling Center í Álaborg í Danmörku um hvítasunnuna, eða nánar tiltekið dagana 21. - 27. maí. 


Meira



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 16:09 | KLÍ
Aðalfundur Keilufélags Reykjavíkur
Aðalfundur Keilufélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 21. mars nk. kl. 19:00, á 2. hæð í húsi ÍSÍ í Laugardal. Sjá nánar á heimasíðu KFR



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 15:58 | KLÍ
Skipting ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ
Eins og áður hefur fram komið var gerður samningur við menntamálaráðherra um framlag til sérsambandanna til ársins 2009. Í ár er framlagið 40 milljónir króna, og hefur hækkað um 10 milljónir frá árinu 2006, á árinu 2008 verður framlagið 60 milljónir króna og á árinu 2009 70 milljónir króna. Keilusamband Íslands fékk að þessu sinni úthlutað 1.150.000 kr fyrir árið 2007, en hlutur KLÍ var 800.000 kr. fyrir árið 2006. Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍ
Meira



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 15:18 | KLÍ
Special Olympics 2007

Einn af stærstu íþróttaviðburðum ársins, Special Olympics 2007, verða haldnir í borginni Shanghai í Kína dagana 2. - 10. október 2007.  Af þeim 7000 keppendum sem taka þátt í mótinu að þessu sinni eru 85 keppendur í keilu frá 23 löndum, þar á meðal frá Íslandi. Hafa íslensku þátttakendurnir þegar hafið undirbúning sinn fyrir keppnina.

Tilkynning frá Evrópska keilusambandinu




Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 14:55 | KLÍ
Catalonian Open - Troufeu Galasa 2007

Á undanförnum misserum hefur það aukist til muna að íslenskir keilarar leiti út fyrir landsteinana og taki þátt í mótum erlendis og öðlist við það mikilvæga reynslu. Halldór Ragnar Halldórsson ÍR tók um síðustu helgi þátt í V Catalonian Open - Troufeu Galasa 2007 sem er 4. mótið á Evrópsku mótaröðinni í ár. Halldór Ragnar spilaði 1.126 og endaði í 122. sæti af 147 keppendum.


Meira



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 14:49 | KLÍ
Utandeild KLÍ 2006 - 2007
Keppni í Riðli 1 í Utandeildinni lauk fimmtudaginn 1. mars. Baráttan var hörð fram á síðustu stundu og að lokum voru það lið Eggerts og Flytjanda sem tryggðu sér tvö efstu sætin. Keppni í Riðli 2 lauk í gær, fimmtudag 8. mars og það er því orðið ljóst að lið Landsbankans og Keiluskutlur SPRON mæta Eggerti og Flytjanda í úrslitunum sem fara fram í apríl. Sjá allt um mótið á keila.is



Föstudagur, 9. Mars 2007 kl. 14:37 | KLÍ
100 ára afmæli ÍR

Helgina 10.-11. mars n.k. er stór helgi hjá ÍR-ingum, en þá verður félagið 100 ára. Margt verður gert sér til skemmtunnar og má nefna fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu í Seljaskóla og hátíð fyrir 18 ára og eldri í Austurbergi um kvöldið. Þetta verður laugardaginn 10. mars. Á sunnudeginum eða þann 11. mars á afmælisdeginum verður opið hús í ÍR-heimilinu þar sem öllum er boðið til að þiggja kaffi og léttar veitingar. Einnig verða afhentar viðurkenningar o.fl. Dagskráin




Miđvikudagur, 7. Mars 2007 kl. 12:36 | KLÍ
Íslandsmeistarar einstaklinga 2007

Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Magnús Magnússon KR eru Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu árið 2007.

Er þetta fjórða árið í röð sem Sigfríður vinnur þennan titil, en Magnús hefur fjórum sinnum unnið þennan titil, árin 2001 og 2003 - 2005. Sigfríður var með örugga forystu í keppninni frá upphafi, en Magnús náði efsta sætinu í síðasta leik í undanúrslitnum á móti Hafþóri Harðarsyni KFR, sem hann mætti síðan í úrslitaleiknum.


Meira



Ţriđjudagur, 6. Mars 2007 kl. 12:31 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - milliriðill

Í gærkvöldi, mánudaginn 5. mars, fór fram keppni í í milliriðli karla og kvenna á Íslandsmóti einstaklinga 2007 og var hart barist um sæti í undanúrslitnum. Helstu tíðindi kvöldsins voru þau að Magnús Magnússon KR spilaði annan 300 leikinn sinn á ferlinum, en segja má að 300 leikirnir hafi legið í loftinu frá upphafi mótsins og Karen Rut Sigurðardóttir ÍR setti þrjú Íslandsmet í 1. flokki stúlkna 17 - 18 ára þegar hún spilaði 857 í 4 leikjum, 1.066 í 5 leikjum og 1.245 í 6 leikjum.  En þess má geta að Karen átti metin í 5 og 6 leikjum sem hún setti 11. febrúar s.l. Glæsilegur árangur hjá þeim báðum. 


Meira



Sunnudagur, 4. Mars 2007 kl. 16:39 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - Forkeppni lokið

Í dag, sunnudag 4. mars, lauk forkeppni á Íslandsmóti einstaklinga og því ljóst hvaða keppendur, 12 konur og 16 karlar, halda áfram keppni í milliriðli í Keiluhöllinni á morgun mánudaginn 5. mars kl. 19:00. Í milliriðli eru spilaðir 6 leikir og að því loknu komast 8 efstu karlarnir og 6 efstu konurrnar í undanúrslit sem spiluð verða í Keiluhöllinni þriðjudaginn 6. mars kl. 19:00. Í undanúrslitum er spiluð einföld umferð, allir á móti öllum, þ.e. 5 leikir hjá konunum og 7 leikir hjá körlunum. Að lokum keppa tveir efstu keppendurnir í hvorum flokki til úrslita sem spiluð verða strax að undanúrslitum loknum.


Meira



Laugardagur, 3. Mars 2007 kl. 18:11 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - seinni helgin hafin

Í morgun mættu 30 keppendur til keppni í Íslandsmóti einstaklinga, 10 konur og 20 karlar. Það eru engar ýkjur að segja að gengið hafi á með stórskotahríð, þvílíkir stórleikir sem voru í gangi í karlaflokki og nokkrum sinnum munaði litlu að fullkominn leikur næðist. 12 karlar spiluðu yfir 1.200 og þar af 3 yfir 1.400 og verður spennandi að sjá hvert framhaldið verður á morgun.


Meira



Föstudagur, 2. Mars 2007 kl. 17:04 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - Forkeppni

Nú hafa 19 keppendur lokið forkeppni í Íslandsmóti einstaklinga. Sigfríður Sigurðardóttir KFR leiðir í kvennaflokki með 2.450, eða 204,17 að meðaltali í leik. Guðný Gunnarsdóttir ÍR er í 2. sæti með 2.179 eða 181,58 að meðaltali og Sigurlaug Jakobsdóttir er í 3. sæti með 1.998 eða 166,5 að meðaltali í leik. Í karlaflokki er Atli Þór Kárason ÍR efstur með 2.477 eða 206,42 að meðaltali í leik, Davíð Löve KR er í 2. sæti með 2.444 eða 203,67 að meðaltali og Eiríkur Arnar Björgvinsson ÍR er í 3. sæti 2.347 eða 195,58 að meðaltali í leik.


Meira



Fimmtudagur, 1. Mars 2007 kl. 22:45 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007

Í næstu viku, 4. - 10. mars verður tekið hlé á keppni í Íslandsmóti liða vegna keppni í Íslandsmóti einstaklinga, en keppni í milliriðli fer fram mánudaginn 5. mars og keppni í undanúrslitum fer fram þriðjudaginn 6. mars. Í vikunni fór hins vegar fram 15. umferð í 1. deild kvenna og 13. umferð í 1. og 2. deild karla. Sjá nánar stöðuna í deildunum


Meira



Fimmtudagur, 1. Mars 2007 kl. 22:36 | KLÍ
Íslandsmót unglingaliða 5. umferð

Um helgina fór fram í Keiluhöllinni 5. umferð í Íslandsmóti unglingaliða. Lið ÍR og KFA-ÍA-1 berjast um toppsætið og eru bæði með 24 stig. Lið KFR kemur síðan í 3. sæti með 8 stig og KFA-ÍA-2 er í 4. sæti með 4 stig. 6. og síðasta umferð fer fram í Keilusalnum á Akranesi laugardaginn 17. mars.

Sjá stöðuna




Fimmtudagur, 1. Mars 2007 kl. 22:30 | KLÍ
Félagakeppni KLÍ - 3. umferð

Þriðja umferð Félagakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 22. febrúar. Staðan er nú þannig að KFR er efst með 83,5 stig, KR er í 2. sæti með 67 stig, ÍR í 3. sæti með 54,5 stig, KFK í 4. sæti með 40 stig og KFA er í 5. sæti með 25 stig. Fjórða og síðasta umferð Félagakeppni KLÍ fer fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 22 mars n.k.

Sjá nánar http://www.kli.is/mot/onnur/felagakeppni/ 




Fimmtudagur, 1. Mars 2007 kl. 22:21 | KLÍ
Deildarbikar liða 4. umferð

Fjórða umferð af sex í Deildarbikar liða fór fram í Keiluhöllinni þriðjudaginn 20. febrúar. Fimmta umferð Deildarbikarsins fer fram í Keiluhöllinni þriðjudaginn 20. mars n.k. Sjá nánar


Meira