Fréttasafn: Febrúar 2007
Sunnudagur, 25. Febrúar 2007 kl. 20:56 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - Forkeppni
Nú hafa 12 keppendur lokið forkeppni í Íslandsmóti einstaklinga. Sigfríður Sigurðardóttir KFR jók forystuna í kvennaflokki þegar hún spilaði 1.255 í seinni 6 leikjunum í dag og er nú með samtals 2.450, eða 204,17 að meðaltali í leik. Guðný Gunnarsdóttir ÍR spilaði 1.151 í seinni 6 leikjum dagsins og er í 2. sæti með samtals 2.179 eða 181,58 að meðaltali. Sigurlaug Jakobsdóttir er í 3. sæti með 1.998 eða 166,5 að meðaltali í leik.
Meira
Sunnudagur, 25. Febrúar 2007 kl. 13:46 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga - Fyrsti dagur
Að loknum fyrri 6 leikjum forkeppni fyrri riðils á Íslandsmóti einstaklinga er staðan sú að Íslandsmeistarinn frá fyrra ári Sigfríður Sigurðardóttir KFR leiðir í kvennaflokki með 1.195 pinna eða 199,17 að meðaltali í leik. Í 2. sæti er Guðný Gunnarsdóttir ÍR með 1.028 og Sigurlaug Jakobsdóttir ÍR er í 3. sæti með 938.
Meira
Sunnudagur, 25. Febrúar 2007 kl. 12:43 | KLÍ
Arnar endaði í 9. sæti
 Arnar Sæbergsson byrjaði með látum í morgun á Ebonite International Luxembourg Open og var í 2. sæti að loknum 6 leikum í fyrstu umferð úrslitanna með 1.393 pinna eða 232,17 að meðaltali í leik. Þá var Austurríkismaðurinn Michael Loos efstur með 1.415. Í annarri umferð úrslitanna gekk ekki eins vel hjá Arnari, serían 559 í 3 leikjum, og fór því svo að hann endaði í 9. sæti aðeins 4 pinnum frá því að komast áfram í þriðju umferð. Engu að síður frábær árangur hjá Arnari.
Meira
Laugardagur, 24. Febrúar 2007 kl. 15:49 | KLÍ
Ebonite International Luxembourg Open 2007
 Arnar Sæbergsson tryggði sér í dag sæti í 34. manna úrslitum á Ebonite International Luxembourg Open 2007 þegar hann spilaði 1.306 eða 217,67 að meðaltali í leik og er nú í 14. sæti, 46 pinnum fyrir ofan niðurskurð sem er við 1.260.
Meira
Laugardagur, 24. Febrúar 2007 kl. 10:56 | KLÍ
Frestun keppni í morgun
Vegna bilunar í olíuvél í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í morgun þurfti að fresta keppni í riðlinum í Íslandsmóti einstaklinga og umferð í Íslandsmóti unglingaliða til morguns sunnudags 25. febrúar kl. 9:00. Keppendur í Íslandsmóti einstaklinga gátu síðan valið um að keppa seinni 6 leikina í forkeppninni á morgun kl. 17:00 eða á fimmtudag 1. mars kl. 18:30.
Mótanefnd KLÍ
Föstudagur, 23. Febrúar 2007 kl. 23:50 | KLÍ
QuibicaAMF World Cup 2007
Tilkynnt hefur verið að QubicaAMF World Cup 2007 verður haldið í keilusalnum Continent Bowling Center í borginni St. Petersburg í Rússlandi dagana 3. til 11. nóvember 2007. Stefnt er að því að halda forkeppnina hér heima, eða svokallað Freyjumót, í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð dagana 19. - 22. apríl 2007. QubicaAMF World Cup er stærsta áhugamannamót í keilu sem haldið er árlega hvað varðar fjölda þátttökulanda keppenda. Mótið var fyrst haldið í Dublin á Írlandi 1965 og var á síðasta ári haldið í Caracas í Venezuela, þar sem Steinþór G. Jóhannsson keppti fyrir Íslands hönd.
Föstudagur, 23. Febrúar 2007 kl. 23:48 | KLÍ
Ebonite International Luxembourg Open 2007
Félagarnir úr ÍR-KLS, Arnar Sæbergsson, Árni Geir Ómarsson og Stefán Claessen keppa nú á Ebonite International Luxembourg Open 2007. Að loknum 9 riðlum er Árni Geir Ómarsson í 53. sæti með 1.202, 22 pinnum frá 34 manna niðurskurði. Arnar Sæbergsson er í 68. sæti með 1.187 og Stefán Claessen er í 136. sæti með 1.088, en alls hafa 175 keppendur tekið þátt í mótinu það sem af er. Síðustu riðlarnir í forkeppninni eru á morgun laugardag 24. febrúar. Sjá nánar
Föstudagur, 23. Febrúar 2007 kl. 09:02 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga hefst á morgun
Keppni á Íslandsmóti einstaklinga hefst kl. 9:00 laugardaginn 24. febrúar í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. 48 keppendur eru skráðir til leiks í ár, 17 konur og 31 karl. Í forkeppni eru leiknir tvisvar 6 leikir, og eru ráshópar kl. 9:00 laugardag og sunnudag helgarnar 24. - 25. febrúar og 3. - 4. mars. Keppni í milliriðli, en þangað komast 16 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar, fer fram mánudaginn 5. mars kl. 19:00, og undanúrslit, 8 karlar og 6 konur, þriðjudaginn 6. mars á sama tíma. Til úrslita er leikið strax að undanúrslitum loknum.
Meira
Föstudagur, 23. Febrúar 2007 kl. 08:50 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - 4 liða úrslit
  Dregið var í 4 liða úrslit í Bikarkeppni KLÍ fyrir Félagakeppnina í gærkvöldi. Í karlaflokki mætast ÍR-KLS og KR-A annars vegar og ÍR-PLS og ÍR-A hins vegar. Í kvennaflokki mætast KFA-ÍA og bikarmeistararnir frá fyrra ári, KFR-Valkyrjur annars vegar, og ÍR-TT og KFR-Afturgöngur hins vegar. Keppt verður fimmtudaginn 15. mars klukkan 18:30.
Miðvikudagur, 21. Febrúar 2007 kl. 12:06 | KLÍ
Landsliðhópur karla valinn
Landsliðsnefnd hefur valið landsliðhóp karla, en næsta verkefni karlaliðsins er þátttaka á Evrópumóti karla sem fram mun fara í Vínarborg í Austurríki dagana 30. júní til 10. júlí næstkomandi.
Hópinn skipa 8 manns, en haft var samband við 12 aðila og voru þar af 4 sem ekki gáfu kost á sér. Hópinn skipa Árni Geir Ómarsson, Róbert Dan Sigurðsson, Stefán Claessen og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR, Andrés Páll Júlíusson, Björn Birgisson og Björn Guðgeir Sigurðsson úr KR og Hafþór Harðarson úr KFR.
Meira
Þriðjudagur, 20. Febrúar 2007 kl. 22:44 | KLÍ
Sjóvá mótið - 16 manna úrslit
Í kvöld var dregið í 16 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá mótinu, sem fara fram laugardag 17. og sunnudag 18. mars n.k.
Meira
Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 kl. 21:20 | KLÍ
Íslandsmót unglinga 2007 - Úrslit
 Karen Rut Sigurðardóttir ÍR og Jón Ingi Ragnarsson KFR sigruðu tvöfalt á Íslandsmóti unglinga er þau tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í Opnum flokki, auk þess sem þau sigruðu í 1. flokki. Í 2. sæti í Opna flokknum voru Magna Ýr Hjálmtýsdóttir og Andri Már Ólafsson úr KFR og í 3. sæti voru þau Ástrós Pétursdóttir og Hafliði Örn Ólafsson úr ÍR.
Meira
Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 kl. 21:18 | KLÍ
Skráning í Íslandsmót einstaklinga
Minnt er á að skráningu í Íslansdmót einstaklinga lýkur þriðjudagskvöldið 20. febrúar kl. 22:00, en skráning fer fram á netfanginu skraning (hjá) kli.is.
Ákveðið hefur verið að nota í mótinu þann olíuburð sem notaður hefur verið í deildunum, þannig að ekki verður af áður auglýstum æfingartíma.
Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 kl. 14:48 | KLÍ
Dagskrá næstu viku
Í næstu viku, 18. - 24. febrúar, verður eingöngu keppt í 1. deild kvenna, en tekið hlé á keppni í karladeildum. Er þetta gert þar sem spilaðar eru 21. umferð í kvennadeildinni, en 18. umferðir í karladeildunum.
Meira
Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 kl. 14:43 | KLÍ
Sjóvá mótið - 32 manna úrslit
7 leikir fóru fram í Sjóvá mótinu um helgina. Í karlaflokki sigruðu þeir Árni Geir Ómarsson ÍR, Halldór Ragnar Halldórsson ÍR, Þórarinn Már ÞorbjörnssonÍR, Bjarni Páll Jakobsson KFR Bragi Már Bragason KR, Stefán Claessen ÍR og Jón Ingi Ragnarsson KFR. Og í kvennaflokki tryggði Sirrý Hrönn Haraldsdóttir sér sæti í 16 manna úrslitum.
Dregið verður í 16 manna úrslit karla og kvenna sem fara fram 16. og 17. mars 2007 á undan deildarbikar 20. febrúar.
Meira
Sunnudagur, 18. Febrúar 2007 kl. 14:30 | KLÍ
Evrópuleikar fyrirtækja 2007
 Það voru Landsbankinn og Pósturinn sem kepptu um þátttökuréttinn á Evrópuleikum fyrirtækja, European Company Sports Games, sem verða haldnir í Álaborg í Danmörku, dagana 27. júní til 1. júlí 2007. Lauk æsispennandi viðureigninni með naumum sigri Póstsins með 2.148 pinnum gegn 2.122 hjá Landsbankanum. Lið Póstsins sem verður fulltrúi Íslands á Evrópuleikjum fyrirtækja skipuðu þeir Jón Einar Halldórsson 584, Hannes Jón Hannesson 518, Reynir Þorsteinsson 458 og Ásgeir Símon Halldórsson 588. Í liði Landsbankans voru Bára Ágústsdóttir 485, Jafet Óskarsson 486, Þórarinn Már Þorbjörnsson 562, Stefán Þór Jónsson 589 og Halldóra Í. Ingvarsdóttir.
Laugardagur, 17. Febrúar 2007 kl. 22:22 | KLÍ
Íslandsmót unglinga 2007
 Í dag var þriðji keppnisdagurinn í Íslandsmóti unglinga. Jón Ingi Ragnarsson KFR spilaði best allra í dag 1.319, Andri Már Ólafsson KFR spilaði 1.260, Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR spilaði 1.174 og var aðeins einum pinna frá vikugömlu Íslandsmeti Karenar Rutar Sigurðardóttir ÍR, sem í dag spilaði 1.128.
Meira
Föstudagur, 16. Febrúar 2007 kl. 12:29 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - 8 liða úrslit
 Það var sannkölluð "háspenna - lífshætta" í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þegar 8 liða úrslit Bikarkeppni KLÍ fóru þar fram fimmtudaginn 15. febrúar. Tveir leikir, á milli ÍR-A og KR-B og ÍR-PLS og KFR-Lærlinga fóru í framlengingu og bráðabana og lauk báðum með naumum sigri ÍR-inga. KR-A vann KFR-JP-kast örugglega og voru við það að setja Íslandsmet þegar þeir spiluðu 1.006 í síðasta leiknum, en serían þeirra var 2.677. ÍR-KLS vann KFR-Stormsveitina einnig með nokkrum yfirburðum og svo var einnig um KFR-Afturgöngurnar í leik þeirra á móti ÍR-BK.
Meira
Miðvikudagur, 14. Febrúar 2007 kl. 19:59 | KLÍ
Íslandsmót liða 1. deild karla
Í 12. umferð 1. deildar karla sem fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þriðjudaginn 13. febrúar voru sannkallaðir stórleikir. KR-A vann ÍR-A 15 - 5 með 2.546 stigum á móti 2.367. Leikir liðsins voru 884, 774 og 888 þar sem Andrés Páll Júlíusson spilaði 701 og hæsta leik 267, Magnús Magnússon 646, Björn G. Sigurðsson 603 og Björn Birgisson 596.
Meira
Miðvikudagur, 14. Febrúar 2007 kl. 19:58 | KLÍ
Íslandsmót liða 2. deild karla
Aðeins tveir leikir hafa farið fram í 12. umferð 2. deildar karla þar sem leikjum Skagaliðanna var frestað vegna Íslandsmót unglinga. KFR-JP-kast sigraði ÍR-T 13 - 7 með 2.003 á móti 1.782 og KFK-Keila.is vann ÍR-Línur 15 - 5 með 1.962 á móti 1.855.
Meira
Miðvikudagur, 14. Febrúar 2007 kl. 13:03 | KLÍ
Íslandsmót liða 1. deild kvenna
 Liðsmenn ÍR-TT fóru á kostum á mánudaginn í 13. umferð 1. deildar kvenna, þegar þær unnu KFR-Skutlurnar 20 - 0 og spiluðu hæstu seríu 2.347 og hæsta leik 858 í kvennadeildinni í vetur. Leikir liðsins voru 760, 858 og 729. Þetta var jafnframt hæsti leikur og sería liðsins frá upphafi. Guðný Gunnarsdóttir og Linda Hrönn Magnúsdóttir áttu sannkallaða stórleiki þegar þær spiluðu hæstu leiki vetrarins, Guðný 268 í fyrsta leik og Linda Hrönn 267 í öðrum leik og var liðið aðeins 5 pinnum frá gildandi Íslandsmeti í tveimur leikjum.
Meira
Miðvikudagur, 14. Febrúar 2007 kl. 12:44 | KLÍ
Sjóvá mótið 32 manna úrslit karla og kvenna
Sunnudaginn 11. febrúar fóru fram fyrstu leikirnir í 32 manna úrslitum karla og kvenna í Sjóvá mótinu, bikarkeppni einstaklinga 2007 og síðasti leikurinn í 64 manna úrslitum karla. Mótið heldur áfram um helgina og verður keppt á laugardag 17. febrúar kl. 11:00 og sunnudag 18. febrúar frá kl. 9:00 - 12:00 samhliða keppni á Íslandsmóti unglinga.
Meira
Miðvikudagur, 14. Febrúar 2007 kl. 12:25 | KLÍ
Evrópuleikar fyrirtækja 2007
Evrópuleikar fyrirtækja, European Company Sports Games, verða haldnir í Álaborg í Danmörku, dagana 27. júní til 1. júlí 2007 og getur Ísland nú í fyrsta skipti tekið þátt í þessari keppni. KLÍ heldur nú forkeppni fyrir Evrópuleikana og þurfa sigurvegarar í forkeppni að skuldbinda sig til þátttöku á Evrópuleikunum. Forkeppnin verður haldin laugardaginn 17. febrúar 2007 kl. 12.00, og síðar ef mikil þátttaka verður.
Meira
Þriðjudagur, 13. Febrúar 2007 kl. 13:37 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga 2007
 Íslandsmót einstaklinga verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð dagana 24. febrúar - 6. mars 2007.
Meira
Þriðjudagur, 13. Febrúar 2007 kl. 11:56 | KLÍ
Íslandsmót unglinga 2007
 Fyrri hluti Íslandsmóts unglinga 2007 fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keilusalnum á Akranesi um helgina. Ágæt spilamennska hefur verið í mótinu það sem af er. Á laugardag lék Jón Ingi Ragarsson KFR best þegar hann spilaði 1.275 í 6 leikjum og á sunndag setti Karen Rut Sigurðardóttir ÍR tvö Íslandsmet í sínum flokki þegar hún spilaði 995 í 5 leikjum og 1.175 í 6 leikjum.
Meira
Miðvikudagur, 7. Febrúar 2007 kl. 14:50 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf 2007
 Laufey Sigurðardóttir og Árni Geir Ómarsson eru Íslandsmeistarar einstaklinga með forgjöf 2007, en þau koma bæði úr ÍR. Sigruðu þau Guðnýju Gunnarsdóttur ÍR og Andrés Pál Júlíusson KR í úrslitaleikjunum. Í 3. sæti voru Helga Sigurðardóttir KFR og Halldór Ragnar Halldórsson ÍR.
Meira
Mánudagur, 5. Febrúar 2007 kl. 23:53 | KLÍ
Guðný enn á toppnum
Guðný Gunnarsdóttir úr ÍR hélt áfram góðri spilamennsku og er enn í fyrsta sæti, 104 pinnum á undan Rögnu Matthíasdóttur úr KFR. Helga Sigurðardóttir úr KFR lék næst best í kvöld, 803, og vann sig úr áttunda sæti uppí það fjórða. Laufey Sigurðardóttir úr ÍR er hinsvegar í þriðja sæti eftir milliriðilinn, en hún var einnig þriðja hæst í kvöld.
Magnús Magnússon, KR, var afar nálægt 300 leiknum í kvöld, en í öðrum leik lék hann 299, en það var nían sem stóð í tólfta skotinu. Magnús er með 209 í nýjasta allsherjarmeðaltali, og leikur því ekki með neinni forgjöf. Þess má geta að Magnús lék 300 leik þann 13. maí árið 2000 og varð þar með fjórði Íslendingurinn til þess. Magnús spilaði 927 í kvöld og vann sig úr þriðja sæti uppí það annað. Hæst allra lék Þórhallur Hálfdánarson úr ÍR, 988, og náði forystu í karlaflokki, en hann var fyrir daginn í dag í 6. sæti.
Meira
Sunnudagur, 4. Febrúar 2007 kl. 14:18 | KLÍ
Forkeppni lokið
 Í morgun hélt keppni á Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf áfram, þegar seinni ráshópur lék. Í kvennaflokki lék Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Ragna Matthíasdóttir úr KFR, best allra, 862, og er í öðru sæti á eftir Guðnýju Gunnarsdóttur sem er með 866. Næst á eftir þeim er Bára Ágústsdóttir úr KFR. Það eru 12 konur sem halda áfram í milliriðil, en barátta var um 12. sætið, og var Herdís Gunnarsdóttir úr ÍR aðeins einum pinna á eftir Margréti Björgu Jónsdóttur úr KFA, sem er nú í 12. sæti með 756.
Meira
Laugardagur, 3. Febrúar 2007 kl. 14:01 | KLÍ
Keppni hafin í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf
Í morgun hófst í Keiluhöllinni keppni í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf þegar fyrri ráshópur lék í forkeppni, en í honum léku 14 karlar og 10 konur.
Guðný Gunnarsdóttir úr ÍR, sem varð Íslandsmeistari árið 2005, er efst eftir daginn í dag, með 216,5 í meðaltal eða 688. Næst á eftir henni kemur Bára Ágústsdóttir, KFR, með 823 og því næst hin unga Ástrós Pétursdóttir með 786. Núverandi Íslandsmeistari, Ragna Matthíasdóttir úr KFR mun leika í fyrramálið.
Meira
Föstudagur, 2. Febrúar 2007 kl. 22:15 | KLÍ
Nýtt meðaltal
Gefið hefur verið út allsherjarmeðaltal miðað við 31. janúar 2007. Meðaltalið má nálgast undir Tölfræði og Meðaltal.
Nýja meðaltalið verður notað við ákvörðun á forgjöf í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf.
Nú er einnig hægt að nálgast yfirlit yfir þróun meðaltals á nýjan leik undir tölfræði leikmanna. Að svo stöddu ná gögnin aðeins aftur til apríl 2005.
Fimmtudagur, 1. Febrúar 2007 kl. 11:18 | KLÍ
Breyting á hjóna- og paramóti KFR
 Stjórn KFR hefur ákveðið að færa 3. og 4. umferð í Hjóna- og Paramóti KFR aftur um einn sunnudag bæði í febrúar og mars. 3. umferð fer því fram sunnudaginn 11. febrúar og 4. umferð sunnudaginn 11. mars. Þessi breyting er gerð vegna Íslandsmóts einstaklinga með og án forgjafar.
|