Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Sun, 5. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Dagskrá næsta mánuðinn
Fréttasafn: Desember 2007

Laugardagur, 29. Desember 2007 kl. 18:50 | ÞH
Úrslit úr Jólamóti KFR

Yfir 50 manns tóku þátt í Jólamóti KFR sem fram fór á annan dag jóla, en keppt var í fjórum flokkum. Sigurvegarar voru Björn Birgisson í *-flokki, Þórarinn Már Þorbjörnsson í A-flokki, Hörður Magnússon í B-flokkir og Ólafía Sigurbjörnsdóttir í C-flokki.

Smellið á Meira til að sjá myndir ef öllum verðlaunahöfum.


Meira



Laugardagur, 29. Desember 2007 kl. 18:36 | ÞH
Pepsi Max mót á þrettándanum

Þrettándinn er að þessu sinni á sunnudegi, og verður Keiludeild ÍR með sérstakt þrettándamót, og verður í boði hlaðborð á Rúbín.

Vakin er athygli á að mikilvægt er að skrá sig áður.




Sunnudagur, 23. Desember 2007 kl. 19:48 | ÞH
Jóla- og nýárskveðja

Stjórn Keilusambandsins óskar keilurum öllum sem og öðrum lesendum gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi keiluárs.

Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.




Föstudagur, 21. Desember 2007 kl. 15:52 | ÞH
Keilarar ársins 2007

Keilarar ársins 2007 eru þau Magnús Magnússon úr KR og Sigfríður Sigurðardóttir úr KFR.   Magnús var einnig valinn keilari ársins árin 2003 til 2005, og er þetta í fjórða skiptið í röð sem Sigfríður er valinn keilari ársins.
 
Magnús varð á árinu Íslandsmeistari einstaklinga, náði í því móti fullkomnum leik, 300, og lék auk þess afar vel með deildar- og félagsliði sínu sem og í öðrum mótum.  Þá náði hann góðum árangri í móti á Evrópsku mótaröðinni, sem og í Evrópumóti landsmeistara í haust.
 
Sigfríður varð á árinu Íslandsmeistari einstaklinga, og bikar-, deildar- og Íslandsmeistari með liði sínu KFR-Valkyrjum.  Þá setti hún Íslandsmet í einum leik para með Birni Sigurðssyni.
 
Á myndinni má sjá þau Magnús og Sigfríði við verðlaunaafhendingu í Íslandsmóti einstaklinga.




Þriðjudagur, 18. Desember 2007 kl. 01:25 | ÞH
Jólamót og Kampavínsmót KFR

 Eins og rík hefð er orðin fyrir stendur KFR fyrir tveimur vinsælum mótum í desember, en það eru Jólamót KFR, sem er haldið annan í jólum, og Kampavínsmót KFR sem fram fer á gamlársdag.




Þriðjudagur, 18. Desember 2007 kl. 00:56 | ÞH
Úrslit úr Jólamóti Nettó og ÍR
Jólamót Nettó og ÍR kláraðist í gær, en alls tóku yfir 50 manns þátt í mótinu, en keppt var í fimm flokkum.  Hæstu seríu mótsins átti Davíð Guðnason úr KR, 629, en hann sigraði A flokkinn.  Næstur var sigurvegari *-flokksins, Guðmundur Sigurðsson úr KFA, með 623.



Laugardagur, 15. Desember 2007 kl. 16:45 | ÞH
Staðan í Jólamóti Nettó og ÍR
Í morgun hófst Jólamót Nettó og ÍR, en keppt er í fimm flokkum, og eru glæsileg verðlaun fyrir efstu sæti í hverjum flokki.  Þátttaka var góð í morgun, en keppni heldur áfram í fyrramálið.




Föstudagur, 14. Desember 2007 kl. 14:27 | ÞH
Úrslit frá því á þriðjudag

Hér fylgja úrslit leikja frá því á þriðjudag.

KFR-Stormsveitin

- ÍR-A 7 - 13

KR-B

- ÍR-L 6 - 14

ÍR-KLS

- KR-A 14 - 6

ÍR-PLS

- KFK-Keiluvinir 18 - 2

KFR-Þröstur

- ÍR-G   -  

Vegna misskilnings voru skorblöð póstsett til KLÍ, en vegna veður hefur póstur ekki verið borinn út í dag og er því væntanlegt á morgun, laugardag.




Miðvikudagur, 12. Desember 2007 kl. 11:30 | ÞH
KLÍ leitar að starfsmanni

Keilusamband Íslands auglýstir eftir öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra.  Um er að ræða hálft starf.

Starfssvið

  • Daglegur rekstur skrifstofu
  • Uppfærsla á vef Keilusambandsins
  • Ýmis verkefni í tengslum við landslið
  • Undirbúningur móta og úrvinnsla, þar á meðal skráning á skori
  • Samskipti við fjölmiðla
  • Önnur tilfallandi verkefni

Meira



Miðvikudagur, 12. Desember 2007 kl. 11:23 | ÞH
Ítarlegri upplýsingar um meðaltal

Hér á vefnum undir Tölfræði og Leikmenn hefur mátt fletta upp leikmönnum og fá yfirlit yfir þróun meðaltals og hæstu leiki sem skráðir eru.

Nú hefur meiri upplýsingum verið bætt við þessa síðu, þannig að sjá má á grafi þróun meðaltals leikmannas undanfarið ár.  Þá hefur einnig verið bætt við yfirliti yfir þá leiki skráðir hafa verið og meðaltalið er reiknað út frá.  Með því að skoða það má þannig sjá hvaða mót hafa verið skráð til meðaltals.

Heildaryfirlit má sem áður nálgast undir Tölfræði og meðaltal, og þar má einnig lesa nánar um hvernig meðaltal er reiknað.

Við vonum að þetta sé kærkomin viðbót við meðaltalið, og hvetjum við alla til að senda inn ábendingar eða athugasemdir, hvort sem er um framsetninguna eða þau gögn sem skráð hafa verið, annað hvort með pósti á netfangið kli (hjá) kli.is eða með því að nota formið undir Upplýsingar og Fyrirspurnir.




Mánudagur, 10. Desember 2007 kl. 15:33 | ÞH
Deildarbikar, 3. umferð

Nú er komin inn úrslit úr 3. umferð Deildarbikars, en hún var leikin s.l. þriðjudag.

ÍR-PLS og ÍR-KLS halda toppsætunum í sínum riðlum eftir umferðina.  KR-A færðist hinsvegar upp í 2. sætið í riðli A á kostnað ÍR-L og það sama var uppi á tengingnum í B riðli þar sem ÍR-TT færðist uppfyrir KR-B.

Stöðuna og skor leikmanna má sjá undir Mót og Deildarbikar liða.




Mánudagur, 10. Desember 2007 kl. 15:23 | ÞH
Jólamót Nettó

Um næstu helgi, dagana 15. og 16. desember, verður Jólamót Nettó haldið.

Keppt verður í einstaklingskeppni í fimm flokkum og spilaðir 3 leikir. Hver keppandi getur spilað aftur 3 leiki ef hann vill (eins oft og hann vill) og gildir þá sú sería (3 leikir) sem er best, ekki verður spilað til úrslita.

Nánari upplýsingar um keppnisfyrirkomulag og leiktíma má sjá í auglýsingu.

Skráning fer fram hjá Reyni í síma 825-1213 og netfanginu reynirth@postur.is

Keiludeild ÍR




Laugardagur, 8. Desember 2007 kl. 01:32 | ÞH
Uppfært meðaltal
Nú hefur loksins verið gefið út nýtt meðaltal eftir bið frá í vor.  Meðaltalið má nálgast undir Tölfræði og Meðaltal.



Föstudagur, 7. Desember 2007 kl. 12:23 | LS
Íslandsmót para

Nú er um að gera að fara að líta í kringum sig og leita að spilara til að taka þátt með í Íslandsmóti para.  Forkeppnin fer fram laugardaginn 19. janúar 2008 kl. 09:00.  Milliriðillinn fer fram sunnudaginn 20. janúar kl. 09:00 og verða úrslitin í framhaldi af þeim.

Núverandi íslandsmeistarar para eru Magna Ýr Hjáltýsdóttir og Róbert Dan Sigurðsson,  ætli þau stefni að því að verja titilinn?  Nánari upplýsingar um mótið ásamt hvar og hvenær skuli vera búið að skrá sig verður tilkynnt síðar.