|
Fréttasafn: Nóvember 2007
Föstudagur, 30. Nóvember 2007 kl. 10:21 | HIJ
HelgaræfingarLandsliðin æfa núna um helgina á laugardag og sunnudag. Á milli kl. 09.00 - 12.00 notar landsliðið bara 6 brautir, þannig að það verða 8 brautir lausar fyrir almenna keilara sem vilja og þurfa að æfa sig. Mánudagur, 26. Nóvember 2007 kl. 10:37 | HIJ
LandsliðsæfingMinni á Landsliðsprógram næstu helgi, þ.e. fund í sal E í ÍSÍ níður í Laugardal kl. 18.00 föstudag og æfingar á laugardag og sunnudag. Mánudagur, 26. Nóvember 2007 kl. 10:35 | HIJ
Félagakeppni KLÍMinni á Félagakeppni KLÍ 1. umferð á fimmtudaginn 29.nóv. kl. 19.00 Föstudagur, 23. Nóvember 2007 kl. 11:28 | HIJ
UppsögnKæru keilarar og aðrir sem lesa þetta, ég undirritaður hef sagt upp störfum hjá KLÍ frá og með 30.nóv. og mun hætta þá á skrifstofu KLÍ. Ég þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf og ætla að snúa mér að öðru. Þetta er af persónulegum ástæðum og hefur mér þótt þetta stutta tímabil á flestum stundum skemmtilegt. Megi þið eiga góða keiluframtíð og megi íþróttin vaxa og dafna. Kær kveðja Hörður Ingi Jóhannsson Miðvikudagur, 21. Nóvember 2007 kl. 13:39 | HIJ
Tvíkeila KeiluvinaHætt hefur verið við Tvíkeilu Keiluvina sem átti að vera um helgina vegna lélegra þátttöku en aðeins 4 pör tilkynntu þátttöku. Nú verðum við að fara að horfa í svuntufaldinn eða eigin barm eða allavega að fara að skoða þessi mál frekar. Það er búið að velja landsliðshópa og þeir einstaklingar sem eru í þessum hópum verða að hafa metnað og áhuga að spila í þeim mótum sem eru til boða umfram deildina. Þegar er gefið kost á sér í landslið leggur maður á sig töluverða vinnu til að verða valinn til að spila fyrir land og þjóð, það er að segja ef áhugi er fyrir hendi. Föstudagur, 16. Nóvember 2007 kl. 11:09 | HIJ
Meistaramót ungmennaMinni á 2 umferð Meistaramót ungmenna á morgun laugardag kl. 09.00 í Öskjuhlíð, en 4 flokkur spilar á Akranesi kl. 14.00. Gaman væri að sjá jafn marga krakka á morgun eins og í 1 umferð. Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 kl. 12:35 | HIJ
Pepsi Max mótPepsi max mótið verður haldið í Keiluhöllinni alla sunnudaga í vetur þegar ekki er hjóna- og paramót KFR. Fyrsta mótið verður haldið sunnudaginn 18. nóvember n.k. Spilað verður í fimm styrkleikaflokkum eftir meðaltali og spilaði 3 leikir í hverri umferð. Hægt verður að spila tvær umferðir á kvöldi og hefst fyrri umferðin kl. 19:00 og seinni umferðin kl. 20:30. Verð kr. 1.500 fyrir umferðina. Pepsi Max Auglýsing Miðvikudagur, 14. Nóvember 2007 kl. 13:15 | HIJ
Frestuð deildarkeppni5. umferð í 1 deild sem átti að fara fram þriðjudaginn 6. nóv. verður leikin 22 nóv. kl. 19.00 og 2 leikir í 2. deild
Fimmtudagur, 8. Nóvember 2007 kl. 20:49 | BMB
Nýir landsliðshópar valdirLandsliðsnefnd hefur tilkynnt um nýja landsliðshópa, sem munu æfa undir yfirstjórn nýráðins þjálfara KLÍ, Robert Andersson frá Svíðþjóð. Meira Mánudagur, 5. Nóvember 2007 kl. 10:13 | HIJ
Word Cup i RusslandiVegna taeknilegra erfileika hofum vid ekki getad sett inn gang mala fyrr en hofum nu adgang af tolvu og reynum ad koma med pistla eins oft og vid mogulega getum. Meira Fimmtudagur, 1. Nóvember 2007 kl. 14:50 | BMB
Dregið í bikar og frestanirDregið verður í 32-liða úrslit í bikarkeppni karla í kvöld kl. 18:45 í Keiluhöllinni. 18 lið eru skráð til keppni, þ.a. aðeins verða 4 lið dregin úr pottinum að þessu sinni. Reglum samkvæmt verða núverandi bikarmeistarar, ÍR-PLS ekki í pottinum. Af óviðráðanlegum ástæðum þarf að fresta öllum leikjum sem áttu að fara fram þriðjudaginn 6. nóvember. Mótanefnd vinnur að því að finna annan tíma, og verður birt frétt um leið og lausn er fundin. Af þessum sökum má búast við því að bikarleikirnir í 32-liða úrslitum verði færðir frá áður auglýstum tíma 22. nóvember 2007. |