Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Ţri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: September 2006

Laugardagur, 30. September 2006 kl. 21:11 | KLÍ
Leikjum frestað á Skaganum

Sökum óviðráðanlegra aðstæðna hefur þeim tveimur leikjum sem fram áttu að fara í Keilusalnum á Akranesi á morgun, þ.e. leikjum KFA-ÍA-A gegn KR-c og KFA-ÍA-B á gegn KFR-JP-Kast í 2. deild karla, verið frestað um óákveðinn tíma, þar sem ekki verður unnt að keppa í salnum næstu daga.

Sjá dagskrá fyrstu umferðanna undir Deildir > Dagskrá

Stjórn KLÍ / Mótanefnd KLÍ




Fimmtudagur, 28. September 2006 kl. 17:23 | KLÍ
Evrópubikar landsmeistara.

Nú hafa Freyr og Lísa lokið 16 leikjum í mótinu og hafa bæði spilað í stuttum og löngum olíuburði. Freyr byrjaði ekki vel í stuttu olíunni og kláraði fyrstu 8 leikina á 1416 eða 177 í meðaltal. Í dag hefur hann nú tekið við sér og spilaði alveg hreint ágætlega í löngu olíunni, 1572 eða 196,5 í meðaltal. Hann er sem stendur í 28. sæti í heildarkeppninni og er 324 pinnum frá því að koma sér inn í topp 8.  Lísa byrjaði aftur á móti betur í stuttu olíunni og spilaði 1508 eða 188,5 í meðaltal, en síðan fór að halla undan hjá henni í löngu olíunni og náði hún ekki nema 1325 eða 165,6 í meðaltal út úr þeim 8 leikjum. Hún er sem stendur í 24. sæti með 177,1 í meðaltal og vantar 349 pinna til að komast í áttunda sætið. Bæði eiga þau eftir að leika 8 leiki á morgun í samblandi af olíuburði síðustu daga.




Sunnudagur, 24. September 2006 kl. 12:57 | KLÍ
Evrópubikar landsmeistara 2006

Keilusamband Íslands sendir að vanda keppendur til þátttöku á Evrópubikar landsmeistara í keilu ECC 2006 og að þessu sinni er mótið haldið í borginni Riga í Lettlandi dagana 25. september til 1. október n.k. Fulltrúar okkar á mótinu verða Íslandsmeistarar einstaklinga 2006, þau Sigfríður Sigurðardóttir og Freyr Bragason sem bæði koma úr KFR. Þetta er þriðja árið í röð sem Sigfríður tekur þátt í þessu móti, en Freyr spilaði í þessu móti í Ísrael 1999.  Þjálfari, fararstjóri og fulltrúi KLÍ er Theódóra Ólafsdóttir. Halda þau utan á morgun, mánudag 25. september. 

Keppni hefst á miðvikudag 27. september og er keppt í einstaklingskeppni þar sem spilaðir eru 8 leikir í senn í þremur leikjablokkum, alls 24 leikir. Að loknum þessum 24 leikjum komast 8 efstu keppendurnir í karla- og kvennaflokki áfram í úrslit, sjá nánar í dagskrá. Alls eru 37 karlar og 34 konur skráð til keppni og eru keppendur því 71 talsins. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu mótsins




Sunnudagur, 24. September 2006 kl. 12:39 | KLÍ
Reykjavíkurmót einstaklinga 2006

Guðný Gunnarsdóttir ÍR og Björn Birgisson KR eru Reykjavíkurmeistarar einstaklinga 2006 og er þetta annað árið í röð sem Guðný vinnur titilinn. Sigruðu þau Sigfríði Sigurðardóttur KFR og Atla Þór Kárason ÍR í úrslitaleikjunum og fóru báðir leikirnir 2 - 0. Í þriðja sæti kvenna var Ragna Matthíasdóttir KFR, en Theódóra Ólafsdóttir varð að gefa leikinn. Í leiknum um 3. sætið í karlaflokki áttust við félagarnir Hafþór Harðarson og Freyr Bragason úr KFR-Lærlingum og fóru leikar þannig að Hafþór vann Frey 2 - 1. 

Undanúrslitaleikirnir voru mjög spennandi sérstaklega í karlaflokki, en viðureign Björns og Freys fór í 4 leiki og viðureign Atla Þórs og Hafþórs í 3 leiki. Í undanúrslitaleikjum kvenna sigraði Sigfríður Theódóru 2 - 0 og Guðný vann Rögnu einnig 2 - 0. Sjá nánar um úrslit mótsins.

Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf (80% af 200) fer síðan fram helgina 30. september og 1. október, og lýkur skráningu fimmtudaginn 28. september. Verð er kr. 2.500 fyrir hvort mót. Skráning fer fram hjá Dóru í síma 661 9585, netfang dora@keila.is og hjá Tóta ÍR í síma 820 6404, netfang toti@landsbanki.is Sjá nánar í auglýsingum




Laugardagur, 23. September 2006 kl. 21:45 | KLÍ
Reykjavíkurmót einstaklinga 2006

Reykjavíkurmót einstaklinga hófst í morgun, laugardag. Keppni átti að hefjast kl. 9:00 en þar sem keppendur komu að lokuðum dyrum í Keiluhöllinni tafðist keppi af þeim sökum um tæpan klukkutíma. Alls mættu 22 keppendur til leiks, 12 karlar og 10 konur og spiluðu 6 leiki í forkeppni. 4 efstu keppendurnir í kvenna- og karlaflokki keppa síðan til úrslita á morgun sunnudag og á keppni að hefjast kl. 10:00. Úrslitin eru spiluð þannig að keppandi í 1. sæti keppir við keppanda í 4. sæti og keppandi í 2. sæti keppir við keppanda í 3. sæti og sigrar sá sem fyrr vinnur tvo leiki. Sigurvegararnir í leikjunum keppa síðan til úrslita, en þeir sem tapa leikjunum keppa um þriðja sætið og þarf einnig að vinna tvo leiki til að sigra í þeim viðureignum. Í úrslitum í kvennaflokki keppa Sigfríður Sigurðardóttir KFR, Guðný Gunnarsdóttir ÍR, Ragna Matthíasdóttir KFR og Theódóra Ólafsdóttir KFR. Í úrslitum í karlaflokki keppa Hafþór Harðarson KFR, Freyr Bragason KFR, Björn Birgisson KR og Atli Þór Kárason ÍR.

Sjá skor úr forkeppni kvenna og forkeppni karla




Laugardagur, 23. September 2006 kl. 17:15 | KLÍ
Þátttaka í nefndum alþjóðlegra íþróttasambanda

Í síðustu ársskýrslu ÍSÍ var fjallað um mikilvægi þess að sérsamböndin beittu sér fyrir því að fá fulltrúa í nefndum á vegum þeirra alþjóðlegu íþróttasambanda sem þau eiga aðild að, en þar segir "Þátttaka Íslendinga í stjórnar- og nefndarstarfi á alþjóðavísu er afar mikilvæg. Með því að eiga fulltrúa í nefndum og ráðum, eignast íþróttahreyfingin á Íslandi mikilvæga tengiliði og aðgang að upplýsingum og eftir atvikum fjármunum. Fyrir u.þ.b. 10 árum voru aðeins 3 - 4 Íslendingar sem áttu sæti í stjórnum og nefndum á alþjóðavísu en í dag eru á milli 25 - 30 aðilar sem sinna þessum störfum." Á heimasíðu ÍSÍ er nú birt grein eftir Stefán Konráðsson framkvæmdatjóra ÍSÍ um þetta efni. 

Af því tilefni má geta þess að Valgeir Guðbjartsson formaður Keilusambands Íslands á nú sæti í stjórn Evrópusambands keilusambanda og í mótanefnd Evrópusambandsins.

 

 




Föstudagur, 22. September 2006 kl. 09:30 | KLÍ
ÍR-TT og ÍR-PLS fóru með sigur af hólmi

Keppnistímabilið í keilunni hófst formlega í gærkvöldi, þ.e. fimmtudaginn 21. september, þegar Meistarakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Lauk leikjunum með tvöföldum sigri ÍR-inga sem sjást hér fagna að loknum leik.

Með sigri ÍR-TT (2.010) á  Íslands- og bikarmeisturunum KFR-Valkyrjum (1.899) var brotið blað í sögu keilunnar á Íslandi. En þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið úr öðru félagi en Keilufélagi Reykjavíkur KFR vinnur titil í liðakeppni í keilu í efstu deild kvenna. Í karlaflokki lögðu Íslandsmeistararnir ÍR-PLS (2.332), bikarmeistarana KFR-Lærlingar (2.073) sem veittu þeim litla mótspyrnu að þessu sinni. Lið ÍR-TT skipuðu Guðný Gunnarsdóttir, Karen Rut Sigurðardóttir, Linda Hrönn Magnúsdóttir, Sigríður Klemensdóttir og Sigurlaug Jakobsdóttir. Lið ÍR-PLS skipuðu Hörður Ingi Jóhannsson, Róbert Dan Sigurðsson, Sigurður E. Ingason, Steinþór G. Jóhannsson og Halldór Ragnar Halldórsson.

Óskum við Meisturunum til hamingju með sigurinn. Sjá skorið úr keppninni 

 




Ţriđjudagur, 19. September 2006 kl. 17:09 | KLÍ
Meistarakeppni KLÍ 21. september kl. 19:00
Meistarakeppni KLÍ 2006 fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmtudaginn 21. september kl. 19:00. Að þessu sinni keppa til úrslita í kvennaflokki Íslands- og bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur sem hefur nú bæst liðsauki frá KFR-Flökkurum og lið ÍR-TT sem var í öðru sæti Bikarkeppninnar og mætir nú til leiks með nýjan fyrirliða og nýjan liðsmann. Í karlaflokki keppa Íslandsmeistararnir ÍR-PLS sem mæta einnig með breytta liðsskipan og bikarmeistararnir KFR-Lærlingar sem eru að því best er vitað með óbreyttan mannskap frá síðasta ári.  Búast má við að þetta verði hörkuviðeignir og hvetjum við alla keilara til að koma og fylgjast með keppninni og upphafi tímabilsins.



Sunnudagur, 17. September 2006 kl. 21:53 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007 1. umferð

Á fundi með félögum og fyrirliðum sem haldinn var í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal s.l. fimmtudag var dregið í töfluröð í Íslandsmóti liða sem hefst í fyrstu viku október.  Í Keiluhöllinni verður keppt í 1. deild kvenna og 2. deild karla á mánudögum kl. 19:00, en í 1. deild karla á þriðjudögum kl. 19:00. Leikir í keilusalnum á Akranesi fara hins vegar fram á sama tíma og á síðasta tímabili, þ.e. á sunnudögum kl. 13:00 og 16:00.

7 lið eru skráð til keppni í 1. deild kvenna og hefst keppni í deildinni mánudaginn 2. október 2006.  Allir leikir umferðarinnar fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og hefjast leikirnir á upphitun kl. 19:00. Í 1. umferð mætast ÍR-BK - KFR-Skutlurnar, ÍR-TT - KFA-ÍA, ÍR-KK - KFR-Valkyrjur og KFR-Afturgöngurnar sitja hjá.

Í 1. deild karla hefur liðum verið fækkað úr 12 í 10 lið frá síðasta keppnistímabili og eiga öll liðin í deildinni nú  heimavöll í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Í 1. umferð þriðjudaginn 3. október kl. 19:00 mætast KR-A - KR-B, ÍR-L - ÍR-PLS, ÍR-P - KFR-Stormsveitin, KFR-Lærlingar - ÍR-KLS og KFR-Þröstur - ÍR-A.

9 lið eru skráð til keppni í 2. deild karla að þessu sinni.  Í 1. umferð mætast í Keilusalnum á Akranesi sunnudaginn 1. október kl. 13:00 KFA-ÍA - KR-C og og kl. 16:00 mætast þar KFA-ÍA-B - KFR-JP-kast. Leikir ÍR-NAS - KFK-Keila.is og ÍR-T - ÍR-Línur fara síðan fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð mánudaginn 2. október og hefjast leikirnir á upphitun kl. 19:00.




Sunnudagur, 17. September 2006 kl. 20:49 | KLÍ
Reykjavíkurmót 2006

Reykjavíkurmót einstaklinga með og án forgjafar hafa nú verið sett á.  Leiknir eru 6 leikir í forkeppni og halda 4 efstu áfram í úrslit.

Mótið án forgjafar fer fram helgina 23. og 24. september, og lýkur skráningu fimmtudaginn 21. september.  Með forgjöf fer fram helgina 30. september og 1. október, og lýkur skráningu fimmtudaginn 28. september. Reykjavíkurmót para fer síðan fram helgina 7. og 8. október.




Laugardagur, 16. September 2006 kl. 16:20 | KLÍ
Utandeild KLÍ 2006 - 2007

Skráning er hafin í Utandeild KLÍ, sem haldin hefur verið nokkur ár í röð, og 30 lið verið skráð til leiks undanfarin ár.  Að þessu sinni er það Keilufélagið Keila (KFK) sem hefur umsjón með Utandeildinni.  Utandeildin er tilvalið tækifæri fyrir fyrirtækjahópa, saumaklúbba, matarklúbba eða hvers konar hópa til að hittast einu sinni í mánuði í keilu.  Keppni hefst í október, en skráningu lýkur 29. september.

Utandeildin fer fram á fimmtudögum í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð.  Nánari upplýsingar má fá hjá Ásgrími Helga Einarssyni hjá KFK í síma 660-5367.

 

 




Miđvikudagur, 13. September 2006 kl. 12:20 | KLÍ
Fundur vegna keppnistímabilsins 2006 - 2007
Boðað er til fundar með forráðamönnum félaga og fyrirliðum deildarliða í fundarsal ÍSÍ fimmtudaginn 14. september kl. 19:00. Á fundinum verður dregið í töfluröð í Íslandsmóti liða í 1. deild kvenna, 1. deild karla og 2. deild karla, og farið yfir dagskrá keppnistímabilsins, breytingar á reglugerðum o.fl. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa og mikilvægt er að það mæti a.m.k. einn fulltrúi frá stjórn allra félaga/deilda og auk þess frá hverju deildarliði. Keppnistímabilið hefst á keppni í Meistarakeppni KLÍ sem fram fer í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmtudaginn 21. september kl. 19:00 og keppni á Íslandsmóti liða mun síðan hefjast í fyrstu viku október.  Í Keiluhöllinni verður keppt í 1. deild kvenna og 2. deild karla á mánudögum kl. 19:00, en í 1. deild karla á þriðjudögum kl. 19:00. Leikir í keilusalnum á Akranesi fara hins vegar fram á sama tíma og á síðasta tímabili, þ.e. á sunnudögum kl. 13:00 og 16:00.



Miđvikudagur, 13. September 2006 kl. 12:20 | KLÍ
Keiluæfingar fyrir börn og unglinga

Keiluæfingar félaganna fyrir börn og unglinga eru nú byrjaðar í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð.

Keilufélag Reykjavíkur verður með sínar æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 16:30 til 18:00. Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir og henni til aðstoðar verða Dagný Edda Þórisdóttir og Hafþór Harðarson. Hægt er að skrá sig hjá KFR í síma 661-9585 eða kfr@kfr.is.

Keiludeild ÍR verður með æfingar fyrir börn og unglinga, 18 ára og yngri á mánudögum og miðvikudögum frá kl.16:30 – 18:00. Þjálfarar eru Steinþór G. Jóhannsson og Stefán Claessen og skráning er í síma 862-5431 (Steinþór) og 897-7357 (Stefán). Sjá nánar í auglýsingum.




Miđvikudagur, 13. September 2006 kl. 12:18 | KLÍ
Stórmót ÍR

Síðasta mót sem var haldið í Arctic Bowl á Keflavíkurflugvelli var Stórmót ÍR á laugardaginn 9. september s.l. Alls tóku 24 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni og var keppni jöfn og spennandi.

Sigurvegari í kvennaflokki var Guðný Gunnarsdóttir 977 og sigurvegari í karlaflokki var Stefán Claessen 1.212 og hlutu þau að launum ferð á mót á Evróputúrnum. Sigurvegari í gestaflokki var Hafþór Harðarson KFR 1.133. Sigurvegari í kvennaflokki með forgjöf var Halldóra Í. Ingvarsdóttir 1.171 og í karlaflokki með forgjöf sigraði Steinþór G. Jóhannsson 1.277. Útdráttarverðlaunin hlaut Árni Geir Ómarsson og fékk hann mótsgjaldið endurgreitt. Sjá nánar á heimasíðu keiludeildar ÍR.




Miđvikudagur, 13. September 2006 kl. 12:18 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla

Nú er keppni lokið á heimsmeistarmóti karla í keilu í Busan í Kóreu en alls tóku þar þátt 247 keppendur frá 44 löndum.  Biboy Rivera frá Filippseyjumi sigrað Achim Grabowski Þýskalandi í úrslitum í Masters keppni einstaklinga og spilaði 300 í síðasta leik. Í 3. sæti varð Jason Belmonte Ástralíu og í 4. sæti Rhino Page BNA. Í einstaklingskeppninni sigraði Remy Ong frá Singapore, í 2. sæti var Rhino Page BNA, og Jo Nam-Yi frá Kóreu varð í 3. sæti.  Sjá úrslit á heimasíðu mótsins og góða umfjöllun á Bowling digital




Ţriđjudagur, 5. September 2006 kl. 22:06 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla 2006
Lið Bandaríkjanna með Scott Pohl, Ronnie Sparks, David Haynes, Rhino Page, Bill Hoffman og Dan Patterson vann í dag til gullverðlauna á liðakeppni fimm manna liða á heimsmeistaramóti karla í Busan í Kóreu. Þetta er fyrsta gullið sem BNA vinna síðan árið 1971 en þeir unnu til silfurverðlauna í Abu Dhabi (1999) and Kula Lumpur (2003). Lið Malasíu skipað þeim Daniel Lim, Ben Heng, Azidi Ameran, Alex Liew, Zulmazran Zulkifli var í 2. sæti og Finnland með þeim Kimmo Lehtonen, Osku Palermaa, Kai Virtanen, Petri Mannonen ogLasse Lintilä, tryggði sér bronsverðlaunin með því að leggja Svía, sem voru sigurvegarar síðustu tveggja móta með 14 pinnum. Lið Svía skipuðu sigurvegararnir í tvímenningi Robert Andersson og Martin Larsen, Anders Öhman, Peter Ljung og Tomas Leandersson og Tobias Karlsson.

Á morgun byrjar einstaklingskeppni í stuttri olíu. Bill Hoffman BNA leiðir nú einstaklingskeppni All Event eftir frábæra spilamennsku með liðinu 4.138 (229,89), Jason Belmonte Ástralíu er í 2. sæti með 4.117(228,72 ) og Petri Mannonen Finnlandi er í 3. sæti með 4.073 (226,28).  Svíinn Robert Anderson er sem stendur í 17. sæti í einstaklingskeppni 22 pinnum á eftir Finnanum Lasse Lintilä í 16. sæti.



Mánudagur, 4. September 2006 kl. 22:15 | KLÍ
Meistarakeppni KLÍ
Meistarakeppni KLÍ fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmtudaginn 21. september kl. 19:00. Að þessu sinni keppa til úrslita í kvennaflokki Íslands- og bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur og lið ÍR-TT sem var í öðru sæti Bikarkeppninnar. Í karlaflokki keppa Íslandsmeistararnir ÍR-PLS og bikarmeistararnir KFR-Lærlingar.  Búast má við að þetta verði hörkuviðeignir og hvetjum við alla keilara til að koma og fylgjast með keppninni og upphafi tímabilsins.



Mánudagur, 4. September 2006 kl. 22:01 | KLÍ
Stórmót ÍR
Stórmót ÍR verður haldið í Arctic Bowl á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 9. september n.k. og verður það væntanlega allra, allra síðast mótið sem haldið verður í þeim keilusal. Lagt verður af stað með rútu frá ÍR-heimilinu við Skógarhlíð kl. 15:00. Verð kr. 3.500 fyrir rútu og mót. Sjá nánar í auglýsingu.



Mánudagur, 4. September 2006 kl. 21:25 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla 2006
Að loknum fyrri keppnisdegi í liðakeppni 5 manna liða á heimsmeistaramóti karla í keilu hefur lið Bandaríkjanna tekið forystu með 3.395. Svíar eru í 2. sæti með 3.307, Japan í 3. sæti með 3.257, Finnar í 4. sæti með 3.242, Quatar í 5. sæti með 3.237, Þýskaland í 6. sæti með 3.233 og Norðmenn í 7. sæti með 3.196.

Einstaklingskeppnin All Event er einnig mjög spennandi. Jason Belmonte Ástralíu leiðir keppnina ennþá með 3.480 eða 232,0 að meðaltali. Martin Larsen Svíþjóð fylgir honum fast eftir með 3.442 og 229,47 að meðaltali,  Bill Hoffman BNR er nú þriðji með 3.432 og 228,40 og Petri Mannonen Finnlandi fjórði með 3.426 og 228,40. Robert Anderson Svíþjóð féll aðeins niður listann eftir spilamennsku dagsins og er nú í 19. sæti með 3.298 eða 219,87 að meðaltali og vantar 3 pinna til að vera inni í 16 efstu.  Fylgist með á heimasíðu mótsins.



Sunnudagur, 3. September 2006 kl. 22:33 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla 2006
Heimamenn í Kóreu tryggðu sér í dag gull og silfur í þrímenningi á heimsmeistaramóti karla í keilu og  lið Malasíu hlaut bronsverðlaunin. Sjá nánar á heimasíðu mótsins og í umfjöllun á Bowling Digital. Finninn Petri Mannonen (235,33) leiðir nú keppnina í All Events, en Þjóðverjinn Achim Grabowski (230,42) og Ástralinn Jason Belmonte (230,25), sem leitt hefur keppnina til þessa, fylgja honum fast á eftir. Robert Anderson er nú í 11. - 12. sæti með 224,42 í meðaltal, en eins og áður  hefur komið fram tryggði hann sér heimsmeistaratitil í tvímenningi ásamt Martin Larsen.



Sunnudagur, 3. September 2006 kl. 22:23 | KLÍ
Evrópumeistaramót kvenna 2006
Helen Johnsson frá Svíþjóð sigraði í Masters keppni á Evrópumeistaramóti kvenna þegar hún vann Britt Bröndsted frá Danmörku í úrslitaleiknum 2 - 1. Bronsverðlaun hlutu Minna Mäkelä Finnlandi og Priscilla Maaswinkel Hollandi. Sjá nánar á heimasíðu mótsins og einnig er að finna góða umfjöllun á Bowling Digital.



Sunnudagur, 3. September 2006 kl. 22:13 | KLÍ
Evrópumeistaramót kvenna 2006
Fiona Banks frá Englandi sigraði í All Events á Evrópumeistaramóti kvenna  og setti nýtt met með seríum upp á 1.214, 1.422, 1.473 og 1.334, sem gerir samtals 5.443 eða 226,79 í meðaltal. Í 2. sæti var Mai Ginge-Jensen, Danmörku með 5.282 (220,08) og í 3. sæti Patricia Schwarz, Þýskalandi sem spilaði eina 300 leik mótsins og endaði með 5.261 (219,21). Sjá nánar á heimasíðu mótsins.



Sunnudagur, 3. September 2006 kl. 22:01 | KLÍ
Evrópumeistaramót kvenna 2006
Hollendingar eru Evrópumeistarar í liðakepnni kvenna en þeir lögðu Svía í undanúrslitunum og Finna í úrslitaleiknum. En Finnar unnu Dani í hinum undanúrslitaleiknum. Sjá nánar á heimasíðu mótsins.
Liðin voru þannig skipuð:
1. Holland: Marieke de Jong, Wendy Kok, Wendy van der List, Ghislaine van der Tol, Priscilla Maaswinkel, Jolanda Visser.
2. Finnland: Reija Lunden, Mari Santonen, Jaana Stromberg, Minna Mäkelä, Piritta Kantola, Tiia Einola.
3. Svíþjóð: Nina Flack, Christel Carlsson, Malin Glendert, Anna Mattsson-Baard, Helen Johnsson, Diana Alfredsson.
3. Danmörk: Britt Bröndsted, Anja Ginge Jensen, Rikke Holm Rasmussen, Mai Ginge Jensen, Kamilla Kjeldsen, Anne Gales.



Sunnudagur, 3. September 2006 kl. 21:50 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla 2006
Robert Andersson og Martin Larsen Svíþjóð eru heimsmeistarar í tvímenningi 2006 og er það í fjórða skiptið í röð sem Svíar tryggja sér þennan titil. Á síðasta heimsmeistaramóti voru þeir félagarnir Robert og Martin í 3. sæti en náðu nú að tryggja sér sigurinn. Óskum við þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn og óskum þeim góðs gengis í áframhaldandi keppni. Í 2. sæti voru Mike Quarry og Daniel Stride Englandi og í þriðja sæti Jarrod Lean og Jason Belmonte Ástralíu. Sjá nánar á heimasíðu mótsins.