Fréttasafn: Ágúst 2006
Fimmtudagur, 31. Ágúst 2006 kl. 22:48 | KLÍ
Evrópumeistaramót kvenna 2006
 Jemma Smith, Katie Jowsey og Fiona Banks Englandi sigruðu í þrímenningi á Evrópumeistaramóti kvenna þegar þær sigruðu Britt Bröndsted, Mai Ginge Jensen og Kamilla Kjeldsen Danmörku í úrslitaleiknum, 611-568. Englendingarnir sigruðu Hollendingana, Wendy Kok, Marieke de Jong og Ghislaine van der Tol, 705-696, en Danir sigruðu Þjóðverjana Martina Beckel, Tina Hulsch og Patricia Schwarz, 694-650. Danir eru þá búnir að bæta öðru silfri í safnið, eftir að vinna gull og silfur í tvímenningnum, en Englendingar eru búnir að tryggja sér gull og brons. Sjá nánar á heimsíðu mótsins.
Mánudagur, 28. Ágúst 2006 kl. 23:03 | KLÍ
Félagsfundur KFR
 Félagsfundur Keilufélags Reykjavíkur verður haldinn í Berjarima 65 þriðjudaginn 29. ágúst og hefst kl. 18:00. Félagsmenn eru hvattir til að mæta til að kynna fyrirkomulagið á næsta keppnistímabili.
Mánudagur, 28. Ágúst 2006 kl. 22:50 | KLÍ
Fundur keiludeildar ÍR
 Almennur félagsfundur Keiludeildar ÍR verður haldinn í Félagsheimili ÍR við Skógarhlíð þriðjudaginn 29. ágúst og hefst kl. 20:00. Á fundinum verður m.a. farið yfir ýmis málefni varðandi næsta keppnistímabil. Lögð er mikil áhersla á að það mæti a.m.k. einn fulltrúi frá hverju keiluliði. Sjá nánar á heimsíðu keiludeildarinnar.
Mánudagur, 28. Ágúst 2006 kl. 22:07 | KLÍ
Heimsmeistaramót karla 2006
  Heimsmeistaramót karla 2006 fer fram í borginni Busan í Kóreu dagana 27. ágúst til 8. september n.k. Til leiks eru mættir keppendur frá 45 þjóðum, en því miður reyndist of kostnaðarsamt að senda íslenska keppendur til þátttöku að þessu sinni. Keppni á mótinu hefst fimmtudaginn 31. ágúst með fyrri seríu í tvímenningi sem spiluð verður í langri olíu. Á keppendalistanum er að finna mörg kunnugleg nöfn frá alþjóðlegum mótum. Í sænska karlalandsliðinu, sem er byggt upp á ungum leikmönnum og reynsluboltum, er m.a.að finna Íslandsvininn Robert Andersson. Sendum við honum okkar bestu óskir um gott gengi á mótinu. Aðrir í sænska liðinu eru hinn gamlareyndi Tomas Leanderson, sem kominn er í landsliðið á nýja leik, Anders Öhman, Martin Larsen og nýliðarnir Tobias Karlsson og Peter Ljung. Fylgist með á heimasíðu mótsins og/eða á Bowling digital
Fimmtudagur, 24. Ágúst 2006 kl. 12:32 | KLÍ
Evrópumeistaramót kvenna 2006
 Nú er hafin keppni á Evrópumóti kvenna í keilu 2006 sem fram fer í Böblingen í Þýskalandi dagana 25. ágúst til 2. september n.k. Að þessu sinni sendu 22 þjóðir fulltrúa sína til keppni, eða 118 keppendur alls, og eru það nokkuð færri en á undanförnum mótum. Íslenska kvennalandsliðið er því miður fjarri góðu gamni og svo er einnig um fleiri þjóðir að þessu sinni. Norðmenn mæta hins vegar með tvo keppendur undir stjórn nýs kvennalandsliðsþjálfara Peters "Peppe" Engström, sem er okkur að góðu kunnur.
Keppni í tvímenningi lauk í dag með seinni 6 leikja seríunni og að loknum undanúrslitum og úrslitum stóðu frændur vorir Danir uppi sem tvöfaldir sigurvegarar. Evrópumeistarar í tvímenningi eru systurnar Mai Ginge-Jensen og Anja Ginge-Jensen sem enduðu í undankeppninni með 5.205 eða með 216,88 að meðaltali eftir 24 leiki. Í öðru sæti urðu landar þeirra Kamilla Kjeldsen og Britt Bröndsted með 5.101 eða 212,54 og í þriðja sæti Piritta Kantola og Reija Lunden frá Finnlandi 5.202, 216,75 og Fiona Banks og Katie Jowsey frá Englandi 5.099, 212,46. Spilamennska dagsins í langri olíu var mjög góð og voru t.d. fjórir tvímenningar með yfir 2.600 seríu. Patricia Schwartz Þýskalandi spilaði best allra keppendanna í dag og stóð uppi með einn 300 leik og 1.477 seríu. Á morgun þriðjudag hefst síðan keppni í þrímenningi í stuttri olíu. Sjá nánar á heimasíðu mótsins og einnig er að finna umfjöllum um mótið á Bowling digital
|