|
Fréttasafn: Júlí 2006
Fimmtudagur, 20. Júlí 2006 kl. 21:59 | KLÍ
Framkvæmdum við Egilshöll frestað Á forsíðu Blaðsins í dag kemur fram Nýsir hefur stöðvað framkvæmdir við Egilshöll vegna þess að fjármálastofnanir hafi stöðvað lánveitingar í slíkar framkvæmdir. Í samtali Blaðsins við Helga S. Gunnarsson framkvæmdastjóra Nýsis kemur fram að fyrirhugaðri framkvæmd við stækkun Egilshallarinnar hefur því verið frestað um óákveðinn tíma. Þetta eru slæm tíðindi fyrir keilara þar sem að í þessari byggingu átti m.a. að vera bíóhús, 32 brauta keilusalur og sýningarsvæði.
Fimmtudagur, 20. Júlí 2006 kl. 21:32 | KLÍ
Heimsmeistaramót unglinga í keilu WYC2006 Heimsmeistaramót unglinga í keilu, keppenda 23 ára og yngri, verður haldið í Berlín í Þýskalandi dagana 21. – 30. júlí n.k. Fyrir Íslands hönd taka þar þátt í keppninni þrír piltar, Hafþór Harðarson úr Keilufélagi Reykjavíkur og Magnús Sigurjón Guðmundsson úr Keilufélagi Akraness, sem báðir verða tvítugir í lok ársins, og Stefán Claessen úr Keiludeild ÍR, sem verður 18 ára á lokadegi mótsins. Þjálfari liðsins og fararstjóri er Theódóra Ólafsdóttir.Mótið verður haldið í keilusalnum Schillerpark sem er staðsettur í miðborg Berlínar. Hann var byggður árið 1999 og er stærsti keilusalur í Þýskalandi. Alls taka að þessu sinni þátt í Heimsmeistaramótinu 168 keppendur frá 46 löndum. Keppt verður í einstaklingskeppni 6 leikir í stuttri olíu, tvímenningi 6 leikir í langri olíu, og liðakeppni 6 leikir í tveimur 3 leikja seríum í stuttri og langri olíu. 16 efstu leikmennirnir eftir þessa 18 leiki komast áfram og keppa í úrslitum samkvæmt útsláttarkeppni. Sjá nánar í dagskrá á heimasíðu mótsins. Mánudagur, 3. Júlí 2006 kl. 23:18 | KLÍ
Erlend mótÍslenskir keilarar hafa að undanförnu verið duglegir að taka þátt í erlendum mótum og vonandi verður það einnig svo á næstu mánuðum og misserum. Þannig tóku Arnar Sæbergsson, Árni Geir Ómarsson, Þórhallur Hálfdánarson og Hafþór Harðarson þátt í mótum í Svíþjóð í vor. Og þeir Andrés Páll Júlíusson, Björn G. Sigurðsson, Magnús Magnússon og Magnús S. Guðmundsson spiluðu í Brunswick Aalborg International í lok maí. Þeir Hafþór Harðarson og Róbert Dan Sigurðsson stefna einnig að því að taka þátt í Danish Masters og Super Series í Svíþjóð síðar í sumar. Fyrir þá sem vilja kynna sér þau keilumót sem í boði eru þá eru upplýsingar um erlend mót m.a. að finna á heimasíðu Evrópusambandsins undir Tournament Calendar og einnig er hægt að fletta upp heimasíðum keilusambanda undir Federations. Á heimasíðu Bowling Digital er listi yfir erlend mót undir Events Calendar og eflaust er hægt að finna fleiri síður með þessum upplýsingum. Stefnt er að því að gera hafa upplýsingar um helstu mótin í Evrópu einnig aðgengilegar á dagatali Keilusambands Íslands. Upplýsingar um alþjóðleg mót á vegum keilusambanda, Evrópusambandsins ETBF og heimssambandsins WTBA er að finna á heimasíðunni undir Championship Calendar. Varðandi flug og fargjöld til og frá Íslandi er m.a. hægt að skoða heimasíður Flugleiða , Iceland Express og British Airways. |