|
Fréttasafn: Júní 2006
Miđvikudagur, 28. Júní 2006 kl. 22:35 | KLÍ
Námskeið í keilu Keiludeild ÍR hefur samið við Svíann Robert Anderson, sem er nú meðal bestu keilara í Evrópu í dag, að leiðbeina á námskeiðum í keilu í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Fyrsta námskeið var í haldið vikuna 19. - 23. júní og var almenn ánægja meðal þátttakenda með kennsluna. Robert verður hér næst með námskeið í vikunni 10. - 14. júlí n.k. og hvetjum við keilara til að nýta vel þetta tækifæri til að sækja sér þjálfun fyrir næsta keppistímabil. Verð fyrir hvern tíma (80 mínútur) er aðeins kr 2.000 og komast 8 manns að í einu. Einnig er hægt að fá æfingatíma (80 mínútur) og kostar hver tími þá 1.000 kr. Skráning í tíma fer fram hjá Reyni Þorsteinssyni formanni Keiludeildar ÍR í síma 825 1213. Sjá nánar í auglýsingu.
Ţriđjudagur, 27. Júní 2006 kl. 23:21 | KLÍ
World Youth Championship WYC2006 Þýskaland er land HM mótanna þessi misserin og næsta heimsmeistarmót í keilu, Heimsmeistaramót unglinga verður haldið í Berlín í Þýskalandi dagana 21. - 30 júlí n.k. Undirbúningur fyrir mótið er nú í fullum gangi, en keppendur fyrir Íslands hönd verða þeir Hafþór Harðarson KFR, Magnús S. Guðmundsson KFA og Stefán Claessen ÍR. Þjálfari og fararstjóri er Theódóra Ólafsdóttir. Sjá nánar á heimasíðu mótsins
Ţriđjudagur, 27. Júní 2006 kl. 23:16 | KLÍ
Youth friendship games 2006![]() Í fyrsta skipti taka íslenskir keilarar þátt í Youth friendship games sem að þessu sinni fara fram í Hollandi dagana 28. - 30 júlí n.k. Mótið er ætlað ungmennum á aldrinum 11 - 19 ára og keppendur verða þau Ástrós Pétursdóttir, Bergþóra R. Ólafsdóttir, Hafliði Örn Ólafsson, Jón Kristinn Sigurðsson, Karen Sigurðardóttir og Linda B. Gunnarsdóttir öll úr keiludeild ÍR. Fararstjóri hópsins verður Árni Geir Ómarsson. Þess má geta að keiludeild ÍR fékk úthlutaðar 150.000 kr vegna þessa verkefnis úr Afreks- og styrktarsjóði SPRON og ÍBR í júní, sjá nánar á heimasíðu ÍBR . Ţriđjudagur, 27. Júní 2006 kl. 23:11 | KLÍ
Norrænn samráðsfundur 2006 Árlegur fundur Norrænu keilusambandanna var haldinn í Lillehammer í Noregi dagana 6. og 7. maí s.l. og sóttu fundinn fyrir hönd KLÍ þau Valgeir Guðbjartsson formaður og Sigríður Klemensdóttir f.v. gjaldkeri. En þessa fundi sækja að jafnaði tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna. Á fundunum er m.a. rædd staða íþróttagreinarinnar í hverju landi, útbreiðslustarf, sameiginleg baráttumál á alþjóðavettvangi og annað samstarf sambandanna.
Ţriđjudagur, 27. Júní 2006 kl. 22:50 | KLÍ
Úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði SPRON og ÍBR
Ţriđjudagur, 27. Júní 2006 kl. 22:38 | KLÍ
Stórmót ÍRŢriđjudagur, 6. Júní 2006 kl. 19:09 | KLÍ
Þjálfarastyrkir ÍSÍ afhentir til 11 íþróttagreina![]() Þriðjudaginn 6. júní afhenti Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ þjálfarastyrki Verkefnasjóðs ÍSÍ. Að þessu sinni bárust 28 umsóknir, 21 frá karlmönnum, 6 umsóknir frá konum og 1 frá félagi. Íþróttagreinar umsækjenda voru alls 16. Í dag voru veittir 11 styrkir að upphæð kr. 50.000 hver og 2 styrkir að upphæð kr. 25.000. Heildarúthlutun styrkja er því kr. 600.000,- til 11 íþróttagreina. Tveir keilarar hlutu styrki að þessu sinni, þeir Arnar Sæbergsson og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR, sem hlutu 25.000 kr. styrk hvor til að sækja framhaldsnámskeið til þjálfunar erlendis. Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍ Ţriđjudagur, 6. Júní 2006 kl. 19:00 | KLÍ
Sumarleikur LottósinsTaktu Lottó í áskrift og þú gætir unnið borgarferð fyrir tvo með Icelandair, kvöldverð fyrir tvo hjá Humarhúsinu eða árskort í líkamsrækt hjá World Class. Skelltu þér á miða á www.lotto.is Ţriđjudagur, 6. Júní 2006 kl. 18:50 | KLÍ
Stórmót ÍRKeiludeild ÍR stendur fyrir Stórmóti ÍR í keilusalnum Arctic Bowl sunnudaginn 11. júní n.k. og verður það sennilega síðasta tækifæri keilara til að spila í salnum áður en Varnarliðið yfirgefur landið. Sjá nánar í auglýsingu |