Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Lau, 18. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn
Fréttasafn: Mars 2006

Föstudagur, 31. Mars 2006 kl. 00:20 | KLÍ
ÍR-PLS deildarmeistarar í 1. deild karla
ÍR-PLS urðu í kvöld deildarmeistarar í 1. deild5karla eftir æsispennandi lokaumferð. ÍR-PLS hlutu 307 stig í deildinni en KR-A, sem urðu í 2. sæti hlutu 305. Réðust úrslit í síðasta ramma í leik ÍR-PLS og Lærlinga. Því er orðið ljóst að í undanúrslitum mætast ÍR-PLS og ÍR-KLS annarsvegar og hinsvegar KR-A og KFR-Lærlingar.  


Deildarmeistarar ÍR-PLS




Fimmtudagur, 30. Mars 2006 kl. 16:52 | KLÍ
Valkyrjur deildameistarar

Nú er lokið keppni í 1. deild kvenna og enduðu KFR-Valkyrjur í 1. sæti með 324,5 stig, KFR-Afturgöngur í 2. sæti með 310,5 stig, ÍR-TT í 3. sæti 297,5 stig og KFR-Flakkarar í 4. sæti með 263,5. Þessi fjögur lið keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna en úrslitakeppnin hefst 18. apríl n.k.

ÁHE

 


Valkyrjur, á myndina vantar Sigfríði.




Miđvikudagur, 29. Mars 2006 kl. 13:49 | KLÍ
Breyting á Bikarkeppni Sjóvá

Vegna óviðráðanlegra orsaka þarf að breyta áður auglýstum dagsetningum í Bikarkeppni Sjóvá.
8 manna úrslitin verða spiluð föstudaginn 21. apríl kl. 20
4 manna úrslitin verða spiluð laugardaginn 22. apríl kl. 10 og svo úrslitin strax á eftir.

Í 8 manna úrslitum mætast:
Ragna Matthíasdóttir - Ágústa Þorsteinsdóttir/Sigfríður Sigurðardóttir,
Magna Ýr Hjálmtýsdóttir - Guðný Gunnarsdóttir,
Theódóra Ólafsdóttir/Linda Hrönn Magnúsdóttir - Sigríður Klemensdóttir,
Sigurlaug Jakobsdóttir - Dagný Edda Þórisdóttir,
Hafþór Harðarson - Atli Þór Kárason,
Halldór R. Halldórsson/Freyr Bragason - Stefán Claessen,
Björn G. Sigurðsson - Konráð Ólafsson,
Steinþór G. Jóhannsson - Magnús Reynisson.

GG

 



Miđvikudagur, 29. Mars 2006 kl. 10:30 | KLÍ
Ársþing KLÍ

Ársþing KLÍ 2006 verður haldið miðvikudaginn 3. maí kl. 17.00 að Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum á Akranesi.

“Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda það. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu keppenda í keilu í ársmeðaltali, þannig að fyrir allt að 20 keppendur koma 3 fulltrúar og síðan tveir fyrir hverja 20 upp í 100 keppendur og þá einn fyrir hverja 40 þar fram yfir. Miðað skal við ársmeðaltal síðasta almanaksárs. Þingið skal árlega háð í apríl. Skal boða það bréflega með minnst 6 vikna fyrirvara. Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn KLÍ minnst 4 vikum fyrir þingið. Þá skal stjórn KLÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins, ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa, í síðasta lagi 2 vikum fyrir þing”. "Á þinginu hafa fulltrúar eini atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt: Stjórn KLÍ, Framkvæmdastjórn ÍSÍ, Fastráðnir starfsmenn KLÍ og ÍSÍ, Formenn nefnda, Íþróttafulltrúi ríkisins. Auk þess getur stjórn KLÍ boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er í félagi sem iðkar keiluíþróttir innan sérráðs eða héraðssambands er kjörgengur fulltrúi þess á ársþingið. Hver fulltrúi hefur aðeins eitt atkvæði." Sjá nánar í lögum Keilusambands Íslands http://www.kli.is/upplysingar/log/

Fyrsta þingboðun var send út til sambandsaðila á þriðjudaginn í síðustu viku, þ.e. til viðkomandi héraðssambands. Fulltrúafjöldi er eftirfarandi: ÍBR 14 fulltrúar, UMSK 5 fulltrúar, ÍA 5 fulltrúar.

 



Mánudagur, 27. Mars 2006 kl. 09:44 | KLÍ
KFR Þröstur í 1. deild og KR-C í umspil
Í þessari viku klárast deildakeppnin og eru línur farnar að skýrast. Ljóst er að KFR-Þrestir hafa sigrað 2. deild karla og munu því leika í 1. deild á næsta tímabili. Eins er ljóst að KR-C verður í 2. sæti og mætir liðinu í 9. sæti 1. deildar í tveimur leikjum um sæti í 1. deild. Þeir leikir fara fram 18. og 19. apríl.
Þá eru KFR-Valkyrjur deildameistarar kvenna og þær ásamt KFR-Afturgöngum, ÍR-TT og KFR-Flökkurum leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
Í 1. deild karla er aftur á móti ekki hægt að spá neinu fyrir um úrslit. Þó er ljóst að það verða KFR-Lærlingar, KR-A, ÍR-PLS og ÍR-KLS sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en ekki er hægt að spá hvaða lið verður deildameistari. Að sama skapi er ekki hægt að spá fyrir um hvað lið falla í 2. deild en fjögur lið koma þar til greina, ÍA, KFK-Keiluvinir, KFR-JP-Kast og KFR-Stormsveitin. Þrjú lið falla beint en liðið í 9. sæti leikur við KR-C um sæti í 1. deild.
Í kvöld kl. 20 verður síðasta umferð í kvennadeildinni í Mjódd, á morgun næst síðasta umferð 1. deildar karla, á miðvikudag síðasta umferð 2. deildar karla og á fimmtudag síðasta umferð 1. deildar karla. Á laugardag verður síðan lokahóf KLÍ.
 



Fimmtudagur, 23. Mars 2006 kl. 13:57 | KLÍ
Landsliðshópar valdir

Valdir hafa verið æfingahópar landsliða karla og kvenna í keilu. Hóparnir eru eftirfarandi:

Karlahópur:   

Arnar Sæbergsson                    ÍR
Árni Geir Ómarsson                  ÍR
Björn Birgisson                         KR
Björn G. Sigurðsson                  KR
Freyr Bragason                         KFR
Hafþór Harðarson                      KFR
Halldór R. Halldórsson               ÍR
Magnús Magnússon                  KR
Steinþór G. Jóhannsson            ÍR
Jón H. Bragason                       ÍR  

Kvennahópur:

Alda Harðardóttir                       KFR
Dagný E. Þórisdóttir                  KFR
Elín Óskarsdóttir                       KFR
Guðný Gunnarsdóttir                 ÍR
Jóna K. Þórisdóttir                    KFR
Linda H. Magnúsdóttir               ÍR
Ragna Matthíasdóttir                 KFR
Sigfríður Sigurðardóttir               KFR
Sigríður Klemensdóttir               ÍR
Sigurlaug Jakoobsdóttir             ÍR

Þessir hópar eru valdir til undirbúnings landsliðsverkefna næstu 15-18 mánuði a.m.k. og þessir hópar geta tekið breytingum á tímabilinu í samræmi við gengi manna/kvenna í hópnum og þeirra sem utan hópsins eru.

 



Fimmtudagur, 16. Mars 2006 kl. 08:52 | KLÍ
Breyting á dagskrá

Vegna lokahófs KLÍ sem verður 1. apríl hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á dagskránni:

1. Leikur ÍR-L og ÍR-KLS sem settur var á miðvikudaginn 29/3 verður leikinn mánudaginn 27/3 kl. 20:00 á brautum 3 - 4 í Keilu í Mjódd.
2. Íslandsmót unglingaliða 5. umferð sem sett var á fimmtudagskvöldið 30/3 verður leikin laugardaginn 1/4 kl. 9:00
3. 22. umferð 1. deildar karla sem vera átti þriðjudaginn 4/4 verður leikin fimmtudaginn 30/3 kl. 20:00 í Keilu í Mjódd og í Keilusalnum á Akranesi.
4. Íslandsmót í tvímenningi sem vera átti helgina 1/4 - 2/4 verður spilað helgina 5/5 og 6/5.

 

 



Mánudagur, 13. Mars 2006 kl. 14:43 | KLÍ
Fyrirliðafundur liða í 1. deild karla
KLÍ boðar til fyrirliðafundar með fyrirliðum liða í 1. deild karla kl. 19:15  á morgun þriðjudag í Keilu í Mjódd. Umræðuefni fundarins verður breyting á tveimur síðustu umferðum deildarinnar. Nauðsynlegt er að allir fyrirliðar, eða staðgenglar þeirra, mæti.  



Sunnudagur, 12. Mars 2006 kl. 18:35 | KLÍ
Sigfríður Íslandsmeistari þriðja árið í röð

Freyr Bragason og Sigfríđur Sigurđardóttir

Nýkrýndir Íslandsmeistarar, Freyr Bragason og Sigfríður Sigurðardóttir

Í dag tryggðu þau Sigfríður Sigurðardóttir og Freyr Bragason, bæði úr KFR, sér Íslandsmeistaratitla einstaklinga, þegar úrslit fóru fram í Keilu í Mjódd.  Er þetta þriðja árið í röð sem Sigfríður verður Íslandsmeistari, en Freyr vann Íslandsmeistaratitilinn árið 1999.

Freyr og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR léku áberandi best í undanúrslitum í karlaflokki í dag, en Freyr, sem var í þriðja sæti eftir milliriðil, náði að vinna sig upp fyrir Steinþór og í fyrsta sætið.  Í úrslitum sigraði Steinþór fyrsta leikinn 224-184, en þá fór Freyr aftur á skrið og vann þrjá leiki, 228-201, 195-194 og 229-155.  Í þriðja sæti varð Magnús Magnússon úr KR.

Sigfríður leiddi kvennaflokkinn gegnum allt mótið og lék einnig best í undanúrslitum, en Ragna Matthíasdóttir úr KFR, sem var 12 pinnum á eftir Mögnu Ýr Hjálmtýsdóttur úr KFR fyrir undanúrslitin, náði að vinna þá upp og endaði 11 pinnum á undan Mögnu, og lék því til úrslita gegn Sigfríði.  Í úrslitum byrjaði Ragna á að vinna þrjá æsispennandi leiki, 183-182, 164-158 og 205-200, en það náði ekki fjórða sigrinum sem hún hefði þurft til að ná titlinum, og Sigfríður vann þrjá næstu leiki, 258-184, 175-171 og 185-135.




Laugardagur, 11. Mars 2006 kl. 14:42 | KLÍ
Góð spilamennska í milliriðlum

Milliriðlar karla og kvenna í Íslandsmóti einstaklinga voru leiknir í Keiluhöllinni í morgun.  Spilamennska var nokkuð betri en í forkeppni, bæði hjá körlum og konum, en meðaltal allra leikja dagsins, bæði í karla og kvennaflokki, var 192,9.  Meðaltal þeirra 8 karla sem komust áfram í undanúrslit hvorki meira né minna en 216,4.  Það var Steinþór Geirdal úr ÍR spilaði hæst allra, 1.413 (235,5 að meðaltali), en hans fyrsti leikur í dag, 279, var jafnframt hæsti leikur dagsins.  Mikil spenna var í húsinu í síðasta leik, þegar barist var um sæti í undanúrslitum, en Jóni Helga Bragasyni, ÍR, tókst með 236 að skjóta sér upp fyrir Halldór Ragnar, sem spilaði 256 í síðasta leik, og Hafþór Harðarson, sem var aðeins 14 pinnum á eftir Halldóri Ragnari sem er í 8. sætinu.

Í kvennaflokki fór Ragna Matthíasdóttir, sem fyrir skömmu varð Íslandsmeistari kvenna með forgjöf, upp í þriðja sæti, og Sigurlaug Jakobsdóttir fór uppfyrir Águstu Þorsteinsdóttur.

Undanúrslit verða leikin í Keilu í Mjódd í fyrramálið, 6 efstu konurnar hefja keppni kl. 10:00, og 8 efstu karlarnir kl. 11:30.  Úrslit verða svo að loknum undanúrslitum hjá körlunum.




Laugardagur, 11. Mars 2006 kl. 08:38 | KLÍ
Forkeppni lokið í Íslandsmóti einstaklinga

Í gærkvöld lauk forkeppni í Íslandsmótinu, og fór svo að til að komast inn í 16 manna milliriðil hjá körlunum þurfti rúma 184 pinna að meðaltali.  Það var Atli Þór Kárason, ÍR, sem lék manna best í gær, eða 1.270, en hann átti einnig hæsta leik gærdagsins, 279, en hann byrjaði leikinn á 9 fellum í röð.




Föstudagur, 10. Mars 2006 kl. 13:44 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga í fullum gangi

Í gærkvöldi hélt keppni áfram í Íslandsmótinu, og var spilamennskan nokkuð betri en á miðvikudag.  Freyr Bragason, KFR, lék manna best og er sem stendur efstur að meðaltali, með 230,2.  Núverandi Íslandsmeistari, Magnús Magnússon, KR, kemur næstur, með 204,7.  Jón Helgi Bragason, sem var efstur eftir fyrsta daginn, lauk keppni í forkeppni í gær, og er með 202 í meðaltal í fjórða sæti.  Þá átti Árni Geir Ómarsson hæsta leik mótsins hingað til í gærkvöldi, en hann lék 290 í síðasta leik sínum í forkeppni, sem skilaði honum 1.305 í gær, og er hann með 196,8 að meðaltali í 7. sæti.

Í kvennafokki er Sigfríður Sigurðardóttir, KFR, efst, en hún kláraði forkeppina í gær eins og meirihluti kvennanna.  Er hún með 172,3 í meðaltal, en næst á eftir henni er liðsfélagi hennar Magna Ýr Hjálmtýsdóttir með 169,8.  Guðný Gunnarsdóttir, ÍR, sem var efst eftir fyrsta daginn, er svo í þriðja sæti með 168,7 í meðaltal.




Fimmtudagur, 9. Mars 2006 kl. 12:01 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga hafið

Magnús Magnússon og Sigfríður Sigurðardóttir, Íslandsmeistarar 2005, munu bæði reyna að verja titla sína.  Sigfríður er í öðru sæti eftir 1. leikdag, en Magnús mun hefja keppni í Íslandsmótinu í kvöld kl. 18:00

Í gær hófst keppni í Íslandsmóti einstaklinga, þegar tveir riðlar léku, en í þeim léku 17 karlar af 31 og 10 konur af 11  Forkeppnin fer fram í Keilu í Mjódd og heldur áfram í kvöld, fimmtudag, og lýkur annað kvöld.  Að henni lokinni fara 16 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar áfram í milliriðil, sem verður leikinn í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð á laugardag kl. 9:00.

Eftir gærkvöldið er Jón Helgi Bragason, ÍR, efstur í karlaflokki með 213,3 í meðaltal, og í kvennaflokki er Guðný Gunnarsdóttir, ÍR, efst með 183,7 í meðaltal.

 

 

 

 

 

 




Miđvikudagur, 8. Mars 2006 kl. 15:10 | KLÍ
ÍR sigraði Félagakeppni KLÍ 2006

Síðasta umferð Félagakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð um helgina. Úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta ramma síðasta leiks. Niðurstaðan varð sú að lið ÍR sigraði með 80 stig, hálfu stig á undan liði KR.  Í þriðja sæti varð lið KFR með 65 stig, í fjórða sæti lið KFK með 26 stig og í því fimmta lið KFA með 25,5 stig.

ÁHE

 


Sigurlið ÍR




Miđvikudagur, 8. Mars 2006 kl. 14:25 | KLÍ
Skráning nr. 200 á póstlista KLÍ
Karen Rut Sigurðardóttir varð í byrjun febrúar 200. einstaklingurinn sem skráður er á póstlista Fréttabréfs KLÍ og fékk hún af því tilefni afhenta viðurkenningu frá KLÍ. Frá upphafi fréttabréfs KLÍ þann 9. apríl 2002 hafa verið skráð 331 netfang á póstlistann og send út 156 skeyti. Gaman væri að heyra frá keilurum hvaða fréttir og hvernig þeir vilja sjá fréttabréfið http://kli.is/upplysingar/fyrirspurnir/ en þar er einnig hægt að skrá sig á póstlistann.
 


Karen tekur við viðukenningunni.




Miđvikudagur, 8. Mars 2006 kl. 13:03 | KLÍ
"Héra" vantar
Vegna forfalla vantar "héra" í Íslandsmóts einstaklinga. Fyrir þá sem ekki vita þá er "héri" uppfylling í mót, skor hans/hennar er ekki gilt í mótið og fer ekki inn í meðalta. "Héra" vantar á eftirfarandi tíma:

Í kvöld 8/3 kl. 18:00 6 leikir
Annað kvöld 9/3 kl 18:00 6 leikir
Annað kvöld 9/3 kl. 21:00 6 leikir

"Héri" má ekki vera keppandi í mótinu og "hérinn" þarf ekki að greiða fyrir spilaða leiki. Áhugasamir geta hringt í starfsmann KLÍ í síma 660-5367
 



Miđvikudagur, 8. Mars 2006 kl. 09:49 | KLÍ
Skóflustunga að viðbyggingu Egilshallar
Á morgun, fimmtudag, kl. 14:00 verður tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu Egilshallar en þar verður m.a. 32 brauta keilusalur. Salurinn verður án efa mikil lyftistöng fyrir keiluna á Íslandi. Við hvetjum keilara til að mæta við Egilshöll á morgun.  



Ţriđjudagur, 7. Mars 2006 kl. 13:44 | KLÍ
Meistarakeppni ungmenna
Fimmta umferð í Meistarakeppni ungmenna var leikin um síðustu helgi. Ágætis spilamennska var í mótinu en hægt er að sjá allt um mótið hér.
   
   



Ţriđjudagur, 7. Mars 2006 kl. 11:35 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga hefst á morgun
Íslandsmót einstaklinga hefst á  morgun, miðvikudag. Riðlaskipting og brautaniðurröðun er tilbúin og hægt að sjá hana hér.  



Sunnudagur, 5. Mars 2006 kl. 17:26 | KLÍ
Meðaltal 28. febrúar

Birt hefur verið meðaltal miðað við 28. febrúar.  Steinþór Jóhannsson er nú efstur með 214 í meðaltal, hækkar sig um 7 pinna frá síðasta mánuði.  Þá hækkar Halldór Ragnar Halldórson sig um 2,7 pinna í 204, og Björn Birgisson um 8,7 pinna í 203.

Í meðaltalinu er nú í fyrsta skipti birtur fjöldi mánuða sem liðið hafa frá því að leikmaður átti síðast leik sem taldi til meðaltals, en þess ber að geta að ekki eru birtir á meðaltalslista leikmenn sem ekki hafa átt leik undanfarin tvö ár.  Einnig eru birtir 6 hæstu leikir, ásamt hæsta staka leik og hæstu 3 leikum eins og tíðkast hefur, en það skal tekið fram að hæstu 6 leikir eru aðeins taldir frá 1. apríl 2005.




Fimmtudagur, 2. Mars 2006 kl. 13:18 | KLÍ
Frestun á bikarleik

Leik KFR-Valkyrja og KFR-Afturgangna í undanúrslitum Bikarkeppni KLÍ sem vera átti laugardaginn 18. mars hefur verið frestað til miðvikudagsins 22. mars kl. 20:00.

ÁHE

 



Fimmtudagur, 2. Mars 2006 kl. 13:13 | KLÍ
Íslandsmót einstaklinga
Skráningu í Íslandsmót einstaklinga lauk í gærkvöldi. Alls skráðu sig 42 einstaklingar, 30 karlar og 12 konur. Smellið hér til að sjá þátttakendalista.
Að gefnu tilefni vill KLÍ taka fram að KLÍ mun ekki standa fyrir skipulögðum æfingum fyrir mótið. Vilji keppendur æfa sig í þeim olíuburði sem notaður verður í mótinu, stuttum eða löngum, þurfa viðkomandi að semja um það sjálf við salina.