|
Fréttasafn: Desember 2006
Fimmtudagur, 28. Desember 2006 kl. 22:56 | KLÍ
Reykjavíkurmót unglinga 2006 Alls tóku 13 unglingar þátt í Reykjavíkurmóti unglinga að þessu sinni og kepptu í þremur flokkum pilta og tveimur flokkum stúlkna. Úrslit fóru þannig að Karen Rut Sigurðardóttir ÍR sigraði í 1. flokki stúlkna og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR var í 2. sæti. Ástrós Pétursdóttir ÍR sigraði í 2. flokki stúlkna og Bergþóra Rós Ólafsdóttir var í 2. sæti. Jón Ingi Ragnarsson KFR sigraði í 1. flokki pilta, Róbert Dan Sigurðsson ÍR varð í 2. sæti og Stefán Claessen ÍR í 3. sæti. Andri Már Ólafsson KFR sigraði í 2. flokki pilta, Hafliði Örn Ólafsson ÍR varð í 2. sæti og Guðmundur Óli Magnússon ÍR var í 3. sæti. Í 3. flokki pilta varð Guðlaugur Valgeirsson KFR Reykjavíkurmeistari.
Meira Fimmtudagur, 28. Desember 2006 kl. 14:33 | KLÍ
Keilarar ársins 2006
Sigfríður varð Íslandsmeistari einstaklinga og para 2006 og einnig varð lið hennar KFR-Valkyrjur deildar-, bikar- og Íslandsmeistarar liða. Freyr varð Íslandsmeistari einstaklinga 2006, auk þess sem hann varð bikarmeistari með liði sínu KFR-Lærlingum. Sem Íslandsmeistarar tóku Sigfríður og Freyr þátt í Evrópubikarkeppni einstaklinga á árinu og náðu þar ágætis árangri. Bæði hafa þau verið í fremstu röð keilara á Íslandi undanfarin ár og verið fyrirmynd ungra og upprennandi keilara.
Fimmtudagur, 28. Desember 2006 kl. 14:32 | KLÍ
Kampavínsmót KFR 2006![]() Kampavínsmót KFR verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð á gamlársdag, sunnudaginn 31. desember og hefst keppni kl. 11:00. Mótið er C-mót, keppt verður í 4 flokkum eftir meðaltali, spilaðir 3 leikir og kostar 1.200 kr. á mann. Fimmtudagur, 28. Desember 2006 kl. 12:21 | KLÍ
Íþróttamenn og íþróttakonur ársins 2006
Meira Miđvikudagur, 27. Desember 2006 kl. 15:02 | KLÍ
Jólamót KFR 2006
Meira Fimmtudagur, 21. Desember 2006 kl. 10:44 | KLÍ
Jóla- og nýárskveðja
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Fimmtudagur, 21. Desember 2006 kl. 10:42 | KLÍ
Fréttabréf KLÍ
Ef þú vilt hætta áskrift, breyta netfanginu, eða bæta við nýju/nýjum á póstlistann þá vinsamlegast sendu póst á kli@kli.is Ţriđjudagur, 19. Desember 2006 kl. 21:10 | KLÍ
Sjóvá mótið, bikarkeppni einstaklinga 2007 Forkeppni í Sjóvá mótinu, bikarkeppni einstaklinga hélt áfram um síðustu helgi og hafa nú 57 keppendur tekið þátt í mótinu, 39 karlar og 18 konur. Vegna fjölda áskorana hefur verið bætt við riðlum laugardaginn 6. janúar kl. 9:00, 10:00 og 11:00. Skráning er á netfangið skraning@keila.is . Hafþór Harðarson KFR er með forystu í karlaflokki með 697 seríu, Róbert Dan Sigurðsson ÍR kemur á hæla honum með 695 og Bragi Már Bragson KR er þriðji með 694. Í kvennaflokki á Sigfríður Sigurðardóttir KFR langhæstu seríuna eða 666, Ágústa Þorsteinsdóttir KFR kemur næst með 567 og Sigríður Klemensdóttir ÍR er þriðja með 561. Sjá nánar stöðuna í mótinu
Ţriđjudagur, 19. Desember 2006 kl. 15:32 | KLÍ
Jólamót KFR og Kampavínsmót KFR![]()
Ţriđjudagur, 19. Desember 2006 kl. 10:52 | KLÍ
Evrópumót unglinga 2007
Meira Mánudagur, 18. Desember 2006 kl. 22:51 | KLÍ
Evróputúrinn í keilu 2006
Meira Mánudagur, 18. Desember 2006 kl. 14:53 | KLÍ
Námskeið hjá Robert Anderson
Mánudagur, 18. Desember 2006 kl. 14:50 | KLÍ
Opna Reykjavíkurmót unglinga 2006
Föstudagur, 15. Desember 2006 kl. 11:11 | KLÍ
Bikarkeppni liða 2006-2007Tilkynnt verður hvenær verður spilað þegar búið er að semja við salina. Eftirtalin lið drógust saman:
Meira Miđvikudagur, 13. Desember 2006 kl. 11:40 | KLÍ
Deildarbikar liða 2006-2007, 2. umferð
Í b-riðli tóku ÍR-KLS og KR b 6 stig, KR c 4 stig, en ÍR-L og ÍR-BK 2 stig. Staðan í b-riðli er þannig að efstir eru KR b með 12 stig, ÍR-KLS 10, ÍR-L 10, KR c 6 og ÍR-BK með 2 stig. Ţriđjudagur, 12. Desember 2006 kl. 16:38 | KLÍ
Utandeildin 2006 - 2007Þriðja umferð Utandeildar KLÍ hófst s.l. fimmtudag með keppni í Riðli 1. Mikil spenna er komin í riðilinn en 4 stig skilja að liðin í 1. - 5. sæti. Álftanes og nágrenni, meistararnir frá fyrra ári, fengu fullt hús stiga í þessari umferð eða 6 stig og Sirrý Hrönn Haraldsdóttir leikmaður liðsins spilaði 769 með forgjöf eða 256 að meðaltali. Flytjandi leiðir nú í Riðli 1 með 14 stig, Eggert er í 2. sæti með 12 stig, Mammút er í 3. sæti einnig með 12 stig, RB er í 4. sæti með 12 stig og Álftanes og nágrenni sem er á hraðri uppleið er komið í 5. sæti með 10 stig. Keppni í þriðju umferð í Riðli 2 fer fram fimmtudaginn 14. desember. Sjá nánar um stöðuna í deildinni, úrslit, skor og dagskrá næstu umferðar á keila.is og heimasíðu KLÍ Ţriđjudagur, 12. Desember 2006 kl. 12:22 | KLÍ
Íslandsmetin og deildarmetin féllu Í gærkvöldi fór fram 10. umferð í 1. deild kvenna og áttust meðal annars við toppliðin ÍR-TT og KFR-Valkyrjur. Skemmst er frá því að segja að KFR-Valkyrjur áttu stórleik vetrarins og féllu bæði Íslandsmet og deildarmet. Viðsnúningur varð því á úrslitum úr fyrstu umferðinni og liðin höfðu sætaskipti á toppnum. Úrslitin úr leikjum kvöldsins voru: KFR-Skutlurnar - KFR-Afturgöngurnar 3 - 17, ÍR-KK - ÍR-BK 10 - 10, KFR-Valkyrjur - ÍR-TT 14 - 6. KFA-ÍA sátu hjá. Meira Sunnudagur, 10. Desember 2006 kl. 16:55 | KLÍ
Jólamót Samkaupa og Nettó 2006
Meira Laugardagur, 9. Desember 2006 kl. 13:43 | KLÍ
Jólamót Nettó 2006
Meira Föstudagur, 8. Desember 2006 kl. 23:43 | KLÍ
Íslandsmót para 2007
Fimmtudagur, 7. Desember 2006 kl. 16:36 | KLÍ
Bikarkeppni liða 2006 - 2007
Meira Fimmtudagur, 7. Desember 2006 kl. 16:24 | KLÍ
Deildarbikar liða 2006 - 2007 Önnur umferð í deildarbikar liða fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þriðjudaginn 12. desember. Keppt er í tveimur riðlum alls 10 lið. ÍR-PLS hefur nú forystu í A-riðli með 6 stig, ÍR-A er í 2. sæti einnig með 6 stig og ÍR-P er í 3. sæti með 4 stig. ÍR-L er í efsta sæti B-riðlis með fullt hús stiga, eða 8 stig, KR-B er í 2. sæti með 6 stig og ÍR-KLS er í 3. sæti með 4 stig. Sjá upplýsingar um stöðuna og leiki næstu umferðar
Ţriđjudagur, 5. Desember 2006 kl. 18:24 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007
Meira Mánudagur, 4. Desember 2006 kl. 16:42 | KLÍ
Meðaltal 30. nóvember Gefið hefur verið út allsherjarmeðaltal miðað við 30. nóvember síðastliðinn. Meðaltalið má nálgast undir Tölfræði og Meðaltal.
Mánudagur, 4. Desember 2006 kl. 09:10 | KLÍ
Jólamót Nettó 2006 Helgina 9. - 10. desember mun hið árlega Jólamót Nettó fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Keppt verður í tveimur riðlum bæði laugardag og sunnudag kl. 9:00 og 10:30. Hámarksfjöldi keppenda er 28 manns í hverjum riðli og fer skráning fram hjá Reyni Þorsteinssyni formanni ÍR í síma 825-1213 eða á netfangið reynirth@postur.is . Að vanda verða glæsileg verðlaun og happdrætti á staðnum. Sjá nánar í auglýsingu
Sunnudagur, 3. Desember 2006 kl. 22:39 | KLÍ
Bikarkeppni einstaklinga
Hlé verður tekið á forkeppninni um næstu helgi vegna Jólamóts Nettó, en næstu riðlar verða: Laugardagur 16. desember 2006 kl. 9:00, 10:00, 11:00, Sunnudagur 17. desember 2006 kl. 9:00, 10:00, 11:00. Skráning er í gegnum netfangið skraning@keila.is. ATH, fram þarf að koma í hvaða skráningarhóp verið er að skrá. Verðið í forkeppninni er 1.500 kr fyrir fyrstu seríuna en aðeins 1.000 kr fyrir hverja seríu í forkeppninni eftir það. Sjá nánar í auglýsingu Vakin er athygli á nýju merki Sjóvá sem kynnt var s.l. föstudag. |