Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Þri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Nóvember 2006

Miðvikudagur, 29. Nóvember 2006 kl. 22:26 | KLÍ
Meistaramót ÍR 2006
Meistaramót ÍR var haldið sunnudaginn 19. nóvember og mættu 23 keppendur til keppni þrátt fyrir erfiða færð. Spilaðir voru 3 leikir í forkeppni og síðan úrslit 4 efstu keppenda með og án forgjafar. Sigurvegari án forgjafar var Halldór Ragnar Halldórsson, í 2. sæti var Hafliði Örn Ólafsson og í 3. sæti varð Arnar Ólafsson. Sigurvegari með forgjöf var Unnar Þór Lárusson, í 2. sæti var Bergþóra Rós Ólafsdóttir og í 3. sæti varð síðan Ástrós Pétursdóttir. Sjá nánar um skor og úrslit mótsins.



Miðvikudagur, 29. Nóvember 2006 kl. 12:03 | KLÍ
Erlend mót
Evrópusambandið hefur uppfært lista yfir samþykkt mót og mót á Evrópsku mótaröðinni á heimasíðu sinni, sjá undir Tournaments. Þar er m.a. að finna upplýsingar um mótin s.s. tímasetningar, staðsetningar, ásamt tengingum við heimasíður mótanna þegar þær eru til staðar. Upplýsingar um mót á vegum Evrópu- og heimssambandsins er síðan að finna undir Championships. Á dagskránni á næsta ári eru m.a. Evrópumót unglinga í Thessaloniki í Grikklandi 6. - 15. apríl 2007, Evrópumót karla í Vín í Austurríki 30. júní - 10. júlí 2007 og Heimsmeistaramót kvenna í Monterrey í Mexíkó 30. ágúst - 9. september 2007. Sjá dagskrá móta



Miðvikudagur, 29. Nóvember 2006 kl. 09:48 | KLÍ
Meistarakeppni ungmenna 2. umferð
2. umferð Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keilusalnum á Akranesi laugardaginn 2. desember n.k. og hefst upphitun kl. 9:00. Verð er kr. 1.800 fyrir þá keppendur sem spila 6 leiki og kr. 900 fyrir þá keppendur sem spila 3 leiki. Skráning er hjá þjálfurum félaganna og á netfangið skraning@kli.is. Athugið að í skráningu þarf að koma fram fullt nafn keppanda og kennitala. Skráningu lýkur fimmtudaginn 30. nóvember kl. 22:00. Sjá nánar í auglýsingu.



Þriðjudagur, 28. Nóvember 2006 kl. 23:14 | KLÍ
Staðan í deildunum

Nú er lokið 8. umferð í öllum deildum í Íslandsmóti liða og búið er að uppfæra stöðuna í 1. deild kvenna og 2. deild karla sem lauk í gær, mánudaginn 27. nóvember.


Meira



Þriðjudagur, 28. Nóvember 2006 kl. 16:15 | KLÍ
Reykjavíkurmót liða 2006

Reykjavíkurmót liða 2006 fór fram laugardaginn 11. nóvember s.l. Alls tóku 11 lið þátt í mótinu og keppt var í tveimur riðlum og síðan fóru fram úrslit milli tveggja efstu liðanna úr hvorum riðli. Lyktaði keppninni þannig að ÍR-L varð Reykjavíkurmeistari liða 2006, KFR-Larsenholt varð í 2. sæti og KR-A varð í 3. sæti.
Skor úr riðli 1
Skor úr riðli 2
Skor úr úrslitum




Sunnudagur, 26. Nóvember 2006 kl. 13:56 | KLÍ
Bikarkeppni einstaklinga

Fyrstu leikirnir í forkeppni Sjóvá mótsins, bikarkeppni einstaklinga 2007, voru spilaðir í Keiluhöllinni um helgina og alls hafa nú keppt í mótinu 15 karlar og 9 konur.

Næstu riðlar eru:
Laugardagur 2. desember 2006                kl. 9:00, 10:00, 11:00
Laugardagur 16. desember 2006              kl. 9:00, 10:00, 11:00
Sunnudagur 17. desember 2006               kl. 9:00, 10:00, 11:00 

Skráning er hafin á netfangið  skraning@keila.is.  ATH, fram þarf að koma í hvaða skráningarhóp verið er að skrá. Verðið í forkeppninni er 1.500 kr fyrir fyrstu seríuna en aðeins 1.000 kr fyrir hverja seríu í forkeppninni eftir það. Sjá nánar í auglýsingu


Meira



Laugardagur, 25. Nóvember 2006 kl. 17:30 | KLÍ
Meistaramót KFR 2006

KFRMeistaramót KFR mun fara fram í Keiluhöllinni sunnudaginn 3. desember næstkomandi.  Leiknir eru 4 leikir í forkeppni með forgjöf, 80% af 200.  Fjórir karlar og fjóarar konur halda áfram í úrslit, þar sem leikið er allir við alla.  Þá er einnig leikið um titilinn Stórmeistari KFR.

Skráning er hjá KFR með tölvupósti á kfr@kfr.is og í síma 587-5885.

Sjá auglýsingu




Miðvikudagur, 22. Nóvember 2006 kl. 20:52 | KLÍ
Íslandsmót unglingaliða 2. umferð
2. umferð Íslandsmóts unglingaliða fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 18. nóvember. ÍR vann alla sína leiki að þessu sinni og hafa því náð forystu með 10 stig og 2.725 pinna, ÍA-1 er í 2. sæti einnig með 10 stig en 2.581 pinna, KFR er í 3. sæti með 2 stig og 1.901 pinna og ÍA-2 er í 4. sæti einnig með 2 stig og 1.755 pinna. Sjá nánar úrslit leikja og skor



Miðvikudagur, 22. Nóvember 2006 kl. 16:46 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007

7. umferðin í Íslandsmóti liða fór fram í vikunni og er nú hörkuspennandi keppni í öllum deildum. Í 1. deild kvenna leiðir ÍR-TT með 100 stig, 4 stigum ofar en KFR-Valkyrjur í 2. sæti og 18,5 stigum hærri en KFR-Afturgöngurnar í 3. sæti. Í 1. deild karla heldur KR-A forystunni með 104,5 stig, KFR-Lærlingar eru í 2. sæti með 101 stig, ÍR-PLS er í 3. sæti með 86 stig og ÍR-KLS í 4. sæti með 83 stig. Í 2. deild karla er baráttan á toppnum æsispennandi KFR-JP-kast er á toppnum með 88 stig, næstir koma KR-C einnig með 88 stig og KFK-Keiluvinir eru síðan í 3. sæti með 83 stig. Sjá nánar um úrslit leikja og stöðuna

8. umferð hefst í Keilusalnum á Akranesi á sunnudaginn með leik KFA-ÍA-B og KFK-Keiluvina kl. 13:00 og KFR-ÍA og ÍR-TT kl. 16:00.




Þriðjudagur, 21. Nóvember 2006 kl. 10:04 | KLÍ
Bikarkeppni liða
S.l. fimmtudag fór fram annar leikur af tveimur í 32ja liða úrslitum karla í Bikarkeppni liða, þegar ÍA-B tók á móti ÍR-L á Akranesi.  ÍR-L hafði sigur úr ferðinni, vann fyrsta leikinn 676-612, annan 643-580 og þann þriðja 740-590, en Halldór Ásgeirsson lék áberandi best, eða 626.
Hinn leikur umferðarinnar, er leikur KFR-Þrasta og ÍR-A, en verið er að vinna í að finna leikdag fyrir þann leik.
16 liða úrslit munu fara fram 18. janúar, en dregið verður þriðjudaginn 12. desember.  16 karlalið munu vera í pottinum, og 8 kvennalið.



Mánudagur, 20. Nóvember 2006 kl. 22:56 | KLÍ
Sjóvá mótið, bikarkeppni einstaklinga 2007

Forkeppni í bikarkeppni einstaklinga, Sjóvá mótinu 2007, hefst um næstu helgi. Fyrstu riðlarnir eru á laugardag 25. nóvember frá kl. 9:00 - 12:00, sunnudag 26. nóvember frá kl. 9:00 12:00 og laugadag 2. desember kl. 9:00 - 12:00. Mótið sem fer að þessu sinni fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð er opið öllum keilurum og er keppt bæði í karla- og kvennaflokki. Í forkeppninni má hver keppandi spila eins margar seríur og hann vill, en hæsta serían ræður stöðu keppanda áfram í keppninni. Verðið í forkeppninni er 1.500 kr fyrir fyrstu seríuna, en aðeins 1.000 kr fyrir hverja seríu í forkeppninni eftir það. Hvetjum við alla keilara til að taka þátt í mótinu. Skráning er á netfanginu skraning@keila.is. Athugið að fjöldi keppenda er takmarkaður í hvern rástíma og keppendur eru því hvattir til að skrá sig tímanlega. Sjá nánar í auglýsingum.




Miðvikudagur, 15. Nóvember 2006 kl. 20:11 | KLÍ
Staðan í 1. deild karla

6. umferð 1. deildar karla fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þriðjudaginn 14. nóvember. Staðan að lokinni umferðinni er sú að KR-A heldur efsta sæti deildarinnar og er nú með 86,5 stig, KFR-Lærlingar eru í 2. sæti með 83 stig, ÍR-KLS er í 3. sæti með 78 stig og ÍR-PLS er í 4. sæti með 71 stig. Róbert Dan Sigurðsson ÍR-PLS spilaði best allra keppenda kvöldsins og á nú hæstu seríu vetrarins 713, en Ágúst Haraldsson úr KFR-Stormsveitinni mætti einnig með látum og spilaði 689 í sinni fyrstu keppni í vetur. Sjá nánar um úrslit leikja og stöðuna í deildinni. Í 7. umferð mætast KFR-Stormsveitin og ÍR-PLS, KFR-Lærlingar og KFR-Þröstur, KR-A og ÍR-P, ÍR-A og ÍR-L og KR-B og ÍR-KLS.




Þriðjudagur, 14. Nóvember 2006 kl. 17:52 | KLÍ
QuibicaAMF World Cup 2006
Steinþór Geirdal Jóhannsson ÍR lauk keppni í 41. sæti á QuibicaAMF World Cup sem fram fór í Caracas í Venesúela dagana 5. - 11. nóvember s.l. Steinþór endaði með 205,5 að meðaltali í leik eftir 24 leiki, en spila þurfti á a.m.k. 212, 71 meðaltali til að komast áfram í 24 manna úrslit. Sigurvegari í mótinu var Finninn Osku Palermaa sem sigraði Norðmanninn Petter Hansen í úrslitunum, en sigurvegari síðasta árs Michael Schmidt varð í þriðja sæti að þessu sinni. Sigurvegari í kvennaflokki var Diandra Asbaty frá Bandaríkjunum sem sigraði Lisu John frá Englandi í úrslitunum, en Mai Ginge-Jensen frá Danmörku varð í þriðja sæti. Sjá nánar á heimasíðu mótsins



Þriðjudagur, 14. Nóvember 2006 kl. 17:44 | KLÍ
Íslandsmót liða 2006 - 2007
6. umferð í 1. deild kvenna og 2. deild karla fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í gærkvöldi, mánudaginn 13. nóvember og 6. umferð í 1. deild karla fer fram í kvöld, þriðjudaginn 14. nóvember. Að vísu þurfti að fresta leik KFR-Skutlanna og KFA-ÍA, þar sem Skagakonur komust ekki í bæinn vegna veðurs og hefur ekki verið ákveðinn nýr tími fyrir leikinn. Staðan er nú þannig í 1. deild kvenna að ÍR-TT hefur endurheimt forystuna og er í efsta sæti með 86 stig, KFR-Valkyrjur eru í 2. sæti með 78 stig og KFR-Afturgöngurnar í 3. sæti með 75,5 stig. Í næstu umferð mætast KFR-Afturgöngurnar og ÍR-TT, en KFR-Skutlurnar keppa við KFR-Valkyrjur. Í 2 deild karla halda KFR-JP-kast ennþá forystunni með 72,5 stig, en KR-C sækir á þá og eru nú með 71 stig í 2. sæti, en KFK-Keiluvinir eru í 3. sæti með 65 stig. Sjá nánar um stöðuna í deildunum



Þriðjudagur, 14. Nóvember 2006 kl. 13:08 | KLÍ
Meistaramót ÍR 2006
Meistaramót ÍR verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíðinni sunnudaginn 19. nóvember kl. 9:00. Keppt verður með og án forgjafar, sem er 80% af mismun á meðaltali og 200, hámark 64 pinnar. Spilaðir verða 3 leikir í forkeppni sem hefst kl. 9.00 og komast 4 efstu keppendurnir með og án forgjafar, áfram í úrslit sem spiluð verða strax að lokinni forkeppninni. Sjá nánar í auglýsingu. Skráning er hjá Reyni formanni ÍR í síma 825 1213, á netfangið reynirth@postur.is fyrir kl. 17:00 föstudaginn 17. nóvember.



Mánudagur, 13. Nóvember 2006 kl. 18:02 | KLÍ
Félagakeppni KLÍ

Fyrsta umferð Félagakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð mánudaginn 6. nóvember. Til keppni voru mætt lið frá 5 félögum, Íþróttafélagi Reykjavíkur ÍR, Keilufélagi Akraness KFA, Keilufélagi Reykjavíkur KFR, Keilufélaginu Keilu KFK og Knattspyrnufélagi Reykjavíkur KR. Staðan er þannig að lokinni þessari fyrstu umferð að KFR er með örugga forystu í 1. sæti með 28 stig, KFA er í 2. sæti með 19 stig, KR í 3. sæti með 17 stig, ÍR er í 4. sæti með 14 stig og KFK rekur lestina í 5. sæti með 12 stig. Sjá nánar um stöðuna og úrslit viðureigna

Önnur umferð í Félagakeppni KLÍ fer fram mánudaginn 22. janúar 2007.




Laugardagur, 11. Nóvember 2006 kl. 22:46 | KLÍ
Deildarbikar liða 2006-2007
1. umferðin í Deildarbikar liða fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þriðjudaginn 7. nóvember. Í ár taka 10 lið þátt í Deildarbikarnum 7 lið frá ÍR, 2 lið frá KR og 1 lið frá KFK, en meistarar síðasta árs KR-A taka ekki þátt að þessu sinni. Keppt verður einu sinni í mánuði á þriðjudagskvöldum í tveimur riðlum, alls 6 umferðir yfir veturinn, sjá nánar í dagskrá. Tvö efstu lið úr hvorum riðli fara áfram í úrslitakeppni, þar sem allir leika við alla, tvöfalda umferð. Að lokinni 1. umferð er staðan sú að ÍR-PLS er efst í A riðli með 6 stig. ÍR-A er í 2. sæti einnig með 6 stig og ÍR-P er í 3. sæti með 4 stig. Í B riðli er ÍR-L í 1. sæti með 8 stig, KR-B er í 2. sæti með 6 stig og ÍR-KLS er í 3. sæti með 4 stig. Önnur umferð í Deildarbikar liða fer fram þriðjudaginn 12. desember n.k. Sjá nánar um stöðu í deildarbikar.



Föstudagur, 10. Nóvember 2006 kl. 12:35 | KLÍ
Staðan í Íslandsmóti liða

Nú er öllum frestuðum leikjum lokið á Íslandsmóti liða og staða eftir 5. umferð birt á síðunni undir Deildir . Í 1. deild kvenna og 2. deild karla verður þó að athuga að staðan verður ekki rétt fyrr en öll lið hafa setið hjá. Staðan er nú jöfn og spennandi í 1. deild karla, KR-A er í efsta sæti með 69 stig, KFR-Lærlingar eru í 2. sæti með 65 stig og KR-B og ÍR-KLS koma fast á hæla þeim með 63 og 61 stig. Í 1. deild kvenna eru KFR-Valkyrjur efstar með 78 stig, ÍR-TT er í 2. sæti með 69 stig og KFR-Afturgöngurnar eru í 3. sæti með 57,5 stig en þau lið hafa leikið einu leik færri en KFR-Valkyrjur sem sitja hjá í næstu umferð. Í 2. deild karla hafa liðsmenn KFR-JP-kast tekið afgerandi forystu í deildinni og eru nú með 72,5 stig að loknum 5 leikjum. Í 2. sæti er KR-C með 58 stig, KFA-ÍA er í 3. sæti með 54 stig og ÍR-Línur eru í 4. sæti með 51 stig.

Dagskrána í deildunum fram að áramótum má finna undir Deildir > Dagskrá




Þriðjudagur, 7. Nóvember 2006 kl. 16:31 | KLÍ
Úrslit úr frestuðum leik í 1. deild kvenna

Í gærkvöldi lauk formlega 3. umferð í 1. deild kvenna með viðureign ÍR-TT og KFR-Valkyrja. Fóru leikar þannig að ÍR-TT lögðu KFR-Valkyrjur með 12 stigum gegn 8. Með sigrinum komust ÍR-TT upp í 2. sætið í deildinni en í næstu umferð eiga KFR-Valkyrjur að sitja hjá.
2065 ( 734 - 685 - 646 )  ÍR-TT
1987 ( 636 - 657 - 694 )  KFR-Valkyrjur
 
Staðan eftir 5. umferðir:
1.   78,0   KFR-Valkyrjur
2.   69,0   ÍR-TT
3.   57,5   KFR-Afturgöngurnar
4.   31,5   ÍR-BK
5.   30,0   KFR-Skutlurnar
6.   17,0   KFA-ÍA
7.   17,0   ÍR-KK
 
Í 6. umferð mánudaginn 13. nóvember eru viðureignirnar þessar:
ÍR-BK - ÍR-TT
ÍR-KK - KFR-Afturgöngurnar
KFR-Skutlurnar - KFA-ÍA
KFR-Valkyrjur sitja hjá.




Sunnudagur, 5. Nóvember 2006 kl. 18:06 | KLÍ
42. QubicaAMF Bowling World Cup 2006

Í dag sunnudaginn 5. nóvember hófst keppni á 42. QubicaAMF World Cup mótinu sem að þessu sinni fer fram í nýuppgerðum keilusal National Bowling Center í Mapote sem er rétt fyrir utan borgina Caracas í Venasúela. Alls taka þátt keppendur frá 94 löndum og þeirra á meðal er Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR.  Fylgist með á heimasíðu mótsins og  Bowling Digital.

 

 




Sunnudagur, 5. Nóvember 2006 kl. 17:31 | KLÍ
Reykjavíkurmót liða 2006
Reykjavíkurmót liða 2006 verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 11. nóvember n.k. og hefst keppni kl. 9:00. Leikið verður 3 manna blönduðum liðum og leikin einföld umferð allir við alla og keppt til stiga. Ef fleiri en 6 liða taka þátt verður dregið í riðla og efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um titilinn Reykjavíkurmeistari liða 2006. Sjá nánar í auglýsingu.



Sunnudagur, 5. Nóvember 2006 kl. 16:53 | KLÍ
Meistarakeppni ungmenna 1. umferð
1. umferðin í Meistarakeppni ungmenna fór fram laugardaginn 4. nóvember. Kepptu unglingar í 1., 2. og 3. flokki í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð en 4. flokkurinn spilaði í Keilusalnum á Akranesi. Alls tóku 27 unglinga þátt í mótinu að þessu sinni og var spilamennska mjög góð. Eini keppandinn í  1. flokki stúlkna var nýr keppandi frá KFA Margrét Jónsdóttir sem tók þátt í sínu fyrsta móti. Í 1. flokki pilta sigraði Hafþór Harðarson KFR með 1.202, í 2. sæti var Magnús S. Guðmundsson KFA með 1.178, í 3. sæti Eiríkur Arnar Björgvinsson ÍR með 1.037. Í 2. flokki stúlkna sigraði Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR með 1.049 og í 2. sæti var Karen Rut Sigurðardóttir með 901. Í 2. flokki pilta sigraði Róbert Dan Sigurðsson ÍR með hæsta skori dagsins 1.224, í 2. sæti var Stefán Claessen ÍR með 1.204 og í 3. sæti var Bjarni Páll Jakobsson KFR með 1.177. í 3. flokki stúlkna sigraði Ástrós Pétursdóttir ÍR með 954, í 2. sæti var Bylgja Ösp Pedersen KFA með 834 og í 3. sæti var Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR með 700. í 4. flokki stúlkna var einn keppandi Steinunn Inga Guðmundsdóttir KFA með 405 seríu í 3 leikjum. Í 4. flokki pilta var jöfn og spennandi keppni, þar sem Kristófer Arnar Júliusson KFA vann með 368, í 2. sæti var Gunnar Ágúst Ómarsson með 363 og í 3. sæti Árni Magnússon með 343. Sjá nánar um úrslit og skor mótsins



Sunnudagur, 5. Nóvember 2006 kl. 16:36 | KLÍ
Íslandsmót unglingaliða 1. umferð
1. umferð í Íslandsmóti unglingaliða fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 28. október. Til leiks voru mætt fjögur lið, eitt frá ÍR, tvö lið frá KFA og eitt lið frá KFR og voru leikir spennandi og góð spilamennska hjá mörgum. Staðan er nú þannig að lið KFA-ÍA 1 vann alla sína leiki og er því með 6 stig að loknum þremur leikjum og 1.294 pinna. Lið ÍR er í 2. sæti með 4 stig og 1.434 pinna. Lið KFA-ÍA-2 er í 3. sæti einnig með 4 stig og 908 pinna og lið KFR er í 4. sæti án stiga með 997 pinna. Sjá nánar um stöðuna, úrslit leikja og skor leikmanna.



Sunnudagur, 5. Nóvember 2006 kl. 16:20 | KLÍ
Dagskráin næstu vikurnar
Í næstu viku verður gert hlé á spilamennsku í deildum en þess í stað fer fram keppni í Félagakeppni KLÍ mánudaginn 6. nóvember  og Deildarbikar liða þriðjudaginn 7. nóvember og hefst keppni á sama tíma og deildirnar eða kl. 19:00.
 
Dagskráin í deildunum fram að áramótum er komin inn á heimasíðuna undir Deildir > Dagskrá, en sjá má drög að dagskrá annarra móta og unglingamóta á keppnistímabilinu hér.