|
Fréttasafn: Október 2006
Ţriđjudagur, 31. Október 2006 kl. 18:14 | KLÍ
Meistarakeppni ungmenna 2006 - 2007
Keppt er í Meistarakeppni ungmenna einu sinni í mánuði á keppnistímabilinu frá nóvember fram í mars a.m.k. 4 umferðir. Keppt er í einstaklingskeppni í 4 flokkum pilta og stúlkna á aldrinum 11 til 22 ára og veitt eru 1 – 12 stig fyrir sæti í flokki í hverri umferð. Spilaðir eru 6 leikir í 1. – 3. flokki (3 keppendur á braut), skipt um brautir eftir hverja tvo leiki og tekur spilamennskan u.þ.b. 2 ½ - 3 klst í hverri umferð ef engar tafir verða. Í 4. flokki eru spilaðir 3 leikir (3 keppendur á braut) og tekur spilamennskan u.þ.b. 2 ½ klst í hverri umferð ef engar tafir verða. Fjöldi keppenda var á bilinu 24 - 29 í hverri umferð á síðasta keppnistímbili. Umsjón mótsins er í höndum KLÍ, en þátttakendur greiða kostnað vegna brautarleigu. Sjá nánar í reglugerð um Meistarakeppni ungmenna. Sjá nánar í dagskrá unglingamóta keppnistímabilið 2006 - 2007 Fimmtudagur, 26. Október 2006 kl. 22:36 | KLÍ
Íslandsmót unglingaliða 2006 - 2007
Keppt er í Íslandsmóti unglingaliða að jafnaði einu sinni í mánuði á keppnistímabilinu frá október/nóvember til mars/apríl, auk úrslitakeppni 4 stigahæstu liðanna í lok keppnistímabilsins. Keppt er í liðakeppni 3 manna liða og í hverri umferð er spiluð einföld umferð, allir á móti öllum, upp á stig, 2 stig fyrir unninn leik og 1 stig fyrir jafntefli. Skipt er um mótherja og brautir eftir hvern leik. Rétt til þátttöku í Íslandsmóti unglingaliða hafa öll félög sem starfa innan KLÍ og keppnisrétt með liðunum hafa unglingar sem eru í 6. – 10. bekk grunnskóla. Keppnistímabilið 2006 – 2007 taka 4 lið þátt í Íslandsmóti unglingaliða, spilaðir verða 3 leikir í hverri umferð og miðað við þann fjölda tekur spilamennskan u.þ.b. 2 klst ef engar tafir verða. Umsjón mótsins er í höndum KLÍ, en félögin greiða kostnað vegna brautarleigu. Sjá nánar í reglugerð KLí um Íslandsmót unglingaliða Meira Sunnudagur, 15. Október 2006 kl. 13:10 | KLÍ
Dómaranámskeið KLÍ Haldið verður dómaranámskeið á vegum KLÍ fimmtudaginn 19. október kl. 19:00 í fundarsal C (kennslustofu) á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Allir keilarar sem ekki hafa dómararéttindi og/eða vilja rifja upp reglurnar eru hvattir til að mæta. Skráning á skrifstofa@kli.is
Fimmtudagur, 12. Október 2006 kl. 02:33 | KLÍ
Opna hjóna- og paramót KFR Fyrirhugað er að hafa Hjóna- og paramót KFR í vetur eins og undanfarin ár. Mótin hafa löngum þótt meðal þeirra skemmtilegustu sem boðið er upp á. Fyrsta mótið í vetur verður á sunnudaginn 15. okt. kl. 20:00 í Öskjuhlíð. Vegna þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í keilunni á árinu varðandi salamál ofl. eru þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í mótinu beðnir um að senda tölvupóst á kfr@kfr.is og láta vita af áhuga sínum.
Ţriđjudagur, 10. Október 2006 kl. 08:33 | KLÍ
Opna Keiluhallarmótið Opna Keiluhallarmótið verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð laugardaginn 14. október og hefst kl. 9:00. Spilaðir eru 2 leikir í fyrstu umferð og komast 16 keppendur áfram í næstu umferð. Tveir japanskir atvinnukeilarar keppa í þessu móti. Skráning er hjá Tóta sími 820 6404 og Reyni sími 825 1213. Skráningu lýkur föstudaginn 11. október kl. 12:00. Verð kr. 2.500. Sjá nánar í auglýsingu.
Ţriđjudagur, 3. Október 2006 kl. 19:35 | KLÍ
Utandeild KLÍ 2006 - 2007Alls eru skráð 20 lið til keppni í Utandeild KLÍ í vetur. Keppt verður í tveimur riðlum og að jafnaði spilað fyrstu tvo fimmtudaga í mánuði. Keppnin verður með örlítið breyttu sniði frá því áður, þannig að spilaðir verða 3 leikir á kvöldi á móti þremum mótherjum og skipt um brautir eftir hvern leik. Leikdagar Utandeildar 2006-2007
Meira Ţriđjudagur, 3. Október 2006 kl. 18:57 | KLÍ
Evrópubikar landsmeistara 2006 Freyr Bragson og Sigfríður Sigurðardóttir úr KFR luku keppni á Evrópubikar landsmeistara í Riga í Lettlandi á föstudaginn. Freyr lauk keppni í 25. sæti með 186 í meðaltal eftir 24 leiki. Sigurvegari í karlaflokki var Or Avriam Ísrael, í 2. sæti var Norðmaðurinn Mads Sandbakken og í 3. sæti Dominic Barrett Englandi. Sigfríður endaði í 26. sæti með 177 í meðaltal eftir 24 leiki. Sigurvegari í kvennaflokki var Annika Kilander Svíþjóð, í 2. sæti var Heidi Thorstensen Noregi og í 3. sæti Patricia Klug Austurríki. Sjá nánarŢriđjudagur, 3. Október 2006 kl. 11:11 | KLÍ
Reykjavíkurmót para 2006
Mánudagur, 2. Október 2006 kl. 23:22 | KLÍ
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf
Sjá skor mótsins og úrslit
Mánudagur, 2. Október 2006 kl. 23:05 | KLÍ
Leikir kvöldsins 2. októberÍ kvöld mánudaginn 2. október fóru fyrstu leikir keppnistímabilsins fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð, 3 leikir í 1. deild kvenna og 2 leikir í 2. deild karla. ÍR-BK (1.447) - KFR-Skutlurnar (1.654) 6 - 14 Hæsta sería Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT 531, hæsta skor Karen Thorsteinsson KFR-Skutlurnar, hæsti leikur liðs ÍR-TT 696, hæsta sería liðs ÍR-TT 1.996, flestar stjörnur ÍR-TT 9. ÍR-NAS (1.884) - KFK-Keila.is (1.875) 11 - 9 Hæsta sería Jafet Óskarsson ÍR-NAS 509, hæsta skor Birgir Guðlaugsson KFK-Keila.is 203, hæsti leikur liðs ÍR-Línur 704, hæsta sería liðs ÍR-Línur 1.947, flestar stjörnur ÍR-Línur og ÍR-NAS 3 Dagskrá fyrstu umferðanna er nú að finna á heimasíðunni undir Deildir > Dagskrá Meira |