|
Fréttasafn: September 2005
Fimmtudagur, 29. September 2005 kl. 19:30 | KLÍ
2. umferð í 1. deildum karla og kvenna2. umferð er nú lokið bæði hjá körlum og konum. Leikir fóru sem hér segir: 1. deild kvenna: 1. deild karla: Fimmtudagur, 29. September 2005 kl. 07:40 | KLÍ
Utandeild 2005Riðlaskipting fyrir utandeildina í keilu er tilbúin og er sem hér segir:
Riðill 1 hefur keppni fimmtudaginn 6. október kl. 18:30 í Keilu í Mjódd ÁHE Fimmtudagur, 29. September 2005 kl. 07:24 | KLÍ
Meistaramót ungmenna, 1. umferðFyrsta umferð í Meistaramóti ungmenna fer fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 2.október kl. 9:00. Unglinganefnd KLÍ Fimmtudagur, 29. September 2005 kl. 06:41 | KLÍ
Þrestir búnir að koma sér fyrir á toppnumÖnnur umferð 2. deildar karla fór fram í Keilu í Mjódd. Úrslit urðu sem hér segir: ÍR-Línur - KFR-Þrestir 1 - 19 KFR-Þrestir eru eftir umferðina búnir að koma sér fyrir á toppi deildarinnar með 35 stig tveimur stigum á undan ÍR-T. Staðan í deildinni er annars sem hér segir:
Miđvikudagur, 28. September 2005 kl. 19:01 | KLÍ
Aganefnd úrskurðarAganefnd hefur dæmt leikmann í 1. deild karla í 1.500 króna sekt vegna búningamála. Í 19. grein Reglugerðar KLÍ um keilumót segir: "Allir leikmenn liðs skulu vera í keppnistreyjum af sama lit og sömu tegund. Karlar skulu vera í síðbuxum af sama lit, en konur mega vera í síðbuxum, pilsum eða stuttbuxnadressi af sama lit. Dómari skal veita hverjum þeim leikmanni áminningu sem ekki fylgir þessu ákvæði. Í A-mótum, sem og öllum mótum sem sjónvarpað er frá, er óheimilt að leika í gallabuxum. Sé einhver þannig klæddur að ósæmilegt megi teljast, getur mótstjóri/dómari bannað honum að keppa, nema ráðin sé bót á því." ÁHE Sunnudagur, 25. September 2005 kl. 22:20 | KLÍ
Síðasti leikur í 1. umferðar 1. deildar karlaÍ dag fór fram á Akranesi leikur ÍA-A og KR-A, en gestirnir snéru til baka með 16 stig og eru því nú í 2. sæti deildarinnar.
Fimmtudagur, 22. September 2005 kl. 15:37 | KLÍ
Skráning unglingamótMeistaramót ungmenna hefst 2. október en þá verður leikin fyrsta umferð í Keilu í Mjódd. Leikið verður með sama fyrirkomulagi og í fyrra. Skráningafrestur í Íslandsmót unglingaliða, sem hefst 27. október er til og með 30/9 2005 og skulu skráningar sendar til KLÍ á netfangið asgrimur@kli.is
ÁHE
Fimmtudagur, 22. September 2005 kl. 12:58 | KLÍ
Keppni hafin í 2. deild karlaKeppni hófst í gær í 2. deild karla en þá var fyrsta umferð leikin í Keilu í Mjódd. Úrslit urðu þannig:
Staðan í deildinni er því þannig:
Verið er að leggja loka hönd á breytingu tölvukerfa KLÍ vegna nýja fyrirkomulagsins, og er ítarlegri staða væntanleg bráðlega. ÁHE Fimmtudagur, 22. September 2005 kl. 08:57 | KLÍ
Deildabikar Deildabikar liða hefst 3. og 4. október. Riðlaskipting er tilbúin og er hún sem hér segir:
Leikið verður í Keilu í Mjódd og hefst keppni kl. 20:00 ÁHE Fimmtudagur, 22. September 2005 kl. 08:37 | KLÍ
Unglingamót vetrarinsMótaskrá fyrir unglingamót vetrarins er komin út. Mót vetrarins eru: Meistarakeppni ungmenna. 1. umferð 2. október 2. umferð 6. nóvember 3. umferð 4. desember 4. umferð 8. janúar 5. umferð 5. febrúar
Íslandsmót unglingaliða.
Íslandsmót unglinga.
ÁHE Miđvikudagur, 21. September 2005 kl. 20:52 | KLÍ
1. deild karla Leiknir voru 5 leikir í 1. deildar karla í gærkvöldi. Nýliðarnir í deildinni, KFK-Keiluvinir og ÍR-L öttu kappi og fóru ÍR-L með sigur af hólmi, 14,5 gegn 5,5, sem skilaði þeim í 3.-4. sæti með ÍR-A, sem sigruðu KFR-Stormsveitina einnig 14,5 gegn 5,5. Þá sigruðu KR-B JP-Kast með 15,5 gegn 4,5 stigum og Íslandsmeistarar ÍR-KLS sigruðu KFR-Lærlinga með 13 stigum gegn 7. Það eru ÍR-PLS sem sitja nú einir í efsta sæti deildarinnar með 17 stig eftir sigur gegn ÍR-P, sem tóku 3 stig af ÍR-PLS. Staðan í deildinni í deildinni er þessi:
Verið er að leggja loka hönd á breytingu tölvukerfa KLÍ vegna nýja fyrirkomulagsins, og er ítarlegri staða væntanleg bráðlega. Ţriđjudagur, 20. September 2005 kl. 23:35 | KLÍ
VenslasamningarTveir venslasamningar hafa verið staðfestir af KLÍ. Samningur milli KR-B og KR-C sem gildir frá 20/9 2005 til loka keppnistímabilsins. ÁHE Ţriđjudagur, 20. September 2005 kl. 12:12 | KLÍ
Deildakeppni hafinÍ gærkvöld hófst deildakeppnin með þremur leikjum í 1. deild kvenna. Eins og kunnugt er var stigagjöf breytt fyrir þetta tímabil þannig að alls eru nú 20 stig í pottinum; 2 fyrir hvern unnin leik liðs, 2 fyrir hærra heildarskor, og síðan 1 fyrir sigur leikmanns innbyrðis, þ.e. liðsmanni mótherja sem er á sama stað í rásröðinni. Sé jafnt er stigum skipt til helminga. Staðan í deildinni eftir þessa þrjá leiki 1. umferðar er sem hér segir:
Í kvöld kl.20:00 hefst síðan keppni í 1. deild karla með 5 leikjum í Keilu í Mjódd, en sá sjötti verður leikinn á Akranesi á sunnudag kl. 16:00. 1. umferð í 2. deild verður svo leikin annað kvöld, en allir fjórir leikir umferðarinnar verða á sama tíma, kl. 20:00, í Keilu í Mjódd. Mánudagur, 19. September 2005 kl. 23:02 | KLÍ
Keila.is breytir um heimavöllLið Keila.is úr KFK hefur ákveðið að færa heimavöll sinn úr Keiluhöllinni Öskjuhlíð í Keilu í Mjódd. Vegna þessa verða einhverjar breytingar á niðurröðun 2. deildar, við birtum hér tvær fyrstu umferðirnar en plani fyrir deildina verður dreift á liðin í fyrstu umferð.
ÁHE Mánudagur, 19. September 2005 kl. 23:00 | KLÍ
Hætt við breytingu á olíuburðiTækninefnd KLÍ hefur hætt við fyrirhugaða breytingu á olíuburði sem átti að taka gildi við byrjun deildakeppninnar. Ákveðið hefur verið að það sé í höndum félaganna sem eiga heimavöll í Mjódd í samvinnu við eiganda Keilu í Mjódd að ákveða olíuburðinn. Laugardagur, 17. September 2005 kl. 00:54 | KLÍ
Meistarar meistarannaÍ gær var leikin Meistarakeppni KLÍ þar sem mættust Íslands- og Bikarmeistara síðasta árs. KFR-Valkyrjur og ÍR-KLS unnu báða þess titla á síðast ári og því mættu liðin sem urðu í örðu sæti í bikar til leiks, KFR-Flakkarar í kvennaflokki og KFR-Lærlingar. Íslandsmót liða hefst á mánudag en þá er leikið í kvennadeild, á þriðjudag í 1. deild karla og miðvikudag í 2. deild karla. ÁHE Fimmtudagur, 15. September 2005 kl. 23:01 | KLÍ
Olíuburði breyttTækninefnd hefur ákveðið að breyta olíuburði í Keilu í Mjódd fyrir deildakeppnina. Lengd verður 40ft og fer mest í 45-50 einingar. Graf af olíunni verður birt um leið og starfsmaður Keilu í Mjódd kemur til vinnu eftir frí. ÁHE Fimmtudagur, 15. September 2005 kl. 15:50 | KLÍ
Keppnisbanni afléttKeppnisbanni yfir Ívari G. Jónassyni ÍR-KLS hefur verið aflétt. Ívar var dæmdur í keppnisbann af stjórn KLÍ vegna skuldar við sambandið en hefur nú gengið frá sínum málum og er því löglegur með ÍR-KLS gegn Lærlingum í kvöld í meistarakeppninni. ÁHE Fimmtudagur, 15. September 2005 kl. 09:37 | KLÍ
300 leikur hjá HafþóriHafþór Harðarson úr KFR spilaði fullkomin leik í gær, 300, í Haustmótinu í Keilu í Mjódd. Hafþór er áttundi íslendingurinn til þess að spila 300. Áður hafa Ásgeir Þór Þórðarson ÍR (2), Sigurður Lárusson KFR, Jón Helgi Bragason ÍR, Magnús Magnússon KR, Freyr Bragason KFR, Björn Birgisson KFR og Steinþór Jóhannsson ÍR spilað fullkomin leik. ÁHE Miđvikudagur, 14. September 2005 kl. 10:12 | KLÍ
Utandeild í keilu 2005 - 2006Hefur þú/þið áhuga á að taka þátt í skemmtilegri keppni í vetur? Keilusamband Íslands mun í vetur standa fyrir liðakeppni í keilu "utan deilda" eins og undanfarin fjögur ár og fer keppnin fram í keilusalnum Keilu í Mjódd. Er þetta tilvalið tækifæri fyrir vinnufélaga, vinahópa, saumaklúbba, spilaklúbba, veiðifélaga og aðra að vera með í skemmtilegri keppni einu sinni í mánuði yfir veturinn. Eftirfarandi eru helstu upplýsingar um keppnisfyrirkomulag og annað er máli skiptir: Keppnisfyrirkomulag: Keppnistímabilið er frá október 2005 og fram í apríl 2006 og er keppt einu sinni í mánuði á fimmtudögum og hefst keppni kl. 18:30. Keppt verður í 3ja manna liðum og spilaðir 3 leikir og tekur keppnin um 2 klst. í hverri umferð. Að lokinni riðlakeppni komast tvö efstu liðin úr hverjum riðli áfram í úrslitakeppni. Þátttaka: Reglur eru einfaldar og rétt til þátttöku hafa allir sem áhuga hafa og geta myndað 3 manna lið og þurfa liðsmenn ekki að vera skráðir í keilufélag. Engin takmörk eru á fjölda leikmanna sem er skráðir eru í deildarkeppni á vegum KLÍ. Hægt er að skipta um alla leikmenn liðs á milli leikja. Skor og stigagjöf: Veitt eru 2 stig fyrir sigur liðs í hverjum leik, 2 stig fyrir hærra heildarskor liðs í umferð og 1 stig fyrir jafnt skor í leik eða umferð, þannig að í hverri viðureign getur lið mest fengið 8 stig. Skráð er skor leikmanna og liðs í hverjum leik og reiknað út meðaltal leikmanna og liðs eftir hverja umferð. Forgjöf: Leikið er með forgjöf sem leggst við skor keppanda í hverjum leik. Þetta er gert til að jafna mun á milli keppniskeilara og áhugamanna, karla og kvenna. Þátttökugjald og brautarleiga: Þátttökugjald í utandeildinni er kr. 10.000 fyrir hvert lið ef greitt er fyrir 1. nóvember. Brautarleiga til keilusalarins er kr. 3.300 fyrir liðið hver umferð. Sjá nánari upplýsingar um utandeildina og reglur á heimasíðu Keilusambands Íslands www.kli.is Skráningarfrestur í keppnina er til og með 22. september 2005. Þann 22. september verður haldin kynning á deildinni í Keilu í Mjódd. Húsið verður opið frá kl. 18:30 til 21:00. Þar verður boðið upp á kennslu í keilu ásamt því að tekið verður á móti skráningum í deildina. Þegar lið er skráð þarf að taka fram heiti liðs, nafn, netfang og símanúmer fyrirliða sem er tengiliður við KLÍ og einnig þarf að taka fram á hvern á að stíla reikning vegna þátttökugjalds ef greiðandi er annar en fyrirliði. Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Ásgrími Helga Einarssyni starfsmanni KLÍ asgrimur@kli.is sími 856 0558. Sjá auglýsingu ÁHE Ţriđjudagur, 13. September 2005 kl. 23:31 | KLÍ
Lið bætist við í 1. deild kvennaStjórn Keiludeildar ÍR nýtti í dag þann frest sem félagið hafði fengið hjá stjórn KLÍ til þess að skrá inn lið í 1. deild kvenna. ÍR hafði til loka dags í dag til þess að skrá inn lið og mun því ÍR-KK verða með í deildinni. Þetta þýðir að engin yfirseta verður í deildinni í vetur. Búið er að lagfæra fyrstu tvær umferðirnar sem birtar vour hér í frétt í gær og er sú niðurröðun sem fylgdi þeirri frétt rétt. ÁHE Mánudagur, 12. September 2005 kl. 21:46 | KLÍ
Fyrstu umferðir í deildunumÍslandsmót liða hefst mánudaginn 19. september. Þá hefst 1. deild kvenna, 1. deild karla hefst daginn eftir og 2. deild karla miðvikudaginn 21. september. Heildarplan fyrir deildirnar verður gefið út í vikunni en við birtum tvær fyrstu umferðirnar hér.
Laugardagur, 10. September 2005 kl. 23:08 | KLÍ
Magnús og Sigfríður hafa lokið keppniMagnús Magnússon KR og Sigfríður Sigurðardóttir KFR hafa bæði lokið keppni á Evrópubikarmótinu í Þýskalandi. Bæði stóðu sig mjög vel og voru ekki langt frá því að komast áfram í 8 manna úrslit. Í dag voru svo 8 manna úrslitin spiluð. Í kvennaflokki sigraði Tanya Petty frá Þýskalandi löndu sína Michaelu Göbel 228-187 og 216-199. ÁHE Fimmtudagur, 8. September 2005 kl. 22:57 | KLÍ
Gott gengi í ÞýskalandiÍ dag var annar dagur Evrópubikarsins í Þýskalandi. Magnús Magnússon lék vel í dag, fyrri 6 leikina 1203 og síðari 6 leikina 1280 og er því með 207 í mtl eftir 18 leiki sem setur hann í 8. sæti í heildina. Efstur er Lasse Lintila frá Finlandi með 229 í mtl. Einn 300 leikur leit dagsins ljós í dag, hann spilaði Jose I Estavez frá Spáni. Heimasíða mótsins er http://eci2005.dbu-bowling.de/ ÁHE Miđvikudagur, 7. September 2005 kl. 22:49 | KLÍ
Fréttir af Evrópubikar einstaklingaÍ dag hófst keppni á Evrópubikarmóti einstaklinga í keilu sem fram fer í Böblingen í Þýskalandi og getum við ekki verið annað en ánægð með gang okkar keppenda á mótinu eftir fyrsta daginn. Sigfríður Sigurðardóttir hóf keppni í morgun og var eftir fyrstu 6 leikina í 8. sæti með 1198 pinna eða 198,17 að meðaltali í leik. Seinni partinn í dag spilaði hún síðan aftur 6 leiki í langri olíu og var þá í 14. sæti með 1127 pinna eða 187,83 að meðaltali. Í heildina er Sigfríður nú í 9. sæti með 2316 pinna eða 193,00 að meðaltali. Piritta Kantola frá Finnlandi leiðir nú keppnina í kvennaflokki með 2645 pinna eða 220,42 að meðaltali í leik, í öðru sæti er heimamaðurinn og meistarinn frá síðasta ári Tanya Petty með 2590 pinna og 215,83 að meðaltali og í þriðja sæti er samlanda henna Michaela Göbel með 2577 pinna og 214,75. Magnús Magnússon hóf keppni um hádegi og spilaði fyrstu 6 leikina í dag á samtals 1237 eða 206,17 að meðaltali í leik og er nú í 10. sæti. Paul Moor leiðir nú keppnina í karlaflokki með 1344 eða 224,00 að meðaltali, í öðru sæti er Lasse Lintilä frá Finnalandi með 1307 og 217,83 að meðaltali og í þriðja sæti er Austurríkismaðurinn Thomas Gross með 1294 og 215,67 í meðaltal. Á morgun hefur Magnús keppni snemma um morguninn með 6 leikja seríu og spilar síaðn aftur 6 leiki seinnipartinn, en Sigfríður spilar 6 leiki um miðjan daginn. Bestu kveðjur til Þýskalands! Ţriđjudagur, 6. September 2005 kl. 23:36 | KLÍ
Evrópubikar landsmeistaraEvrópubikar landsmeistara ECI 2005 haldið í borginni Böblingen í Þýskalandi dagana 5. til 11. september 2005. ÁHE Ţriđjudagur, 6. September 2005 kl. 09:04 | KLÍ
Fréttabréf KLÍHaustmótið 2005 Ef þú vilt fá fréttbréf KLÍ til þín í tölvupósti um leið og það er gefið út þá sendu okkur tölvupóst á kli@kli.is, eða skráðu þig hér
Föstudagur, 2. September 2005 kl. 08:47 | KLÍ
Meistari meistaranna 15. septemberÞann 15. september kl. 20:00 verður Meistarakeppni KLÍ. Þar eiga að mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs. Sömu lið unnu þessa titla á síðasta ári, ÍR-KLS í karlaflokki og Valkyrjur í kvennaflokki. Því munu liðin sem lentu í öðru sæti í bikarkeppninni mæta til leiks, Lærlingar og Flakkarar. Keila í Mjódd ÍR-KLS - Lærlingar brautir 1 - 2 ÁHE |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||