|
Fréttasafn: Ágúst 2005
Þriðjudagur, 23. Ágúst 2005 kl. 20:29 | KLÍ
Haustmótið 2005ÍR-TT stendur fyrir móti sem hlotið hefur nafnið Haustmótið 2005. Keppt verður tvisvar í viku á miðvikudögum og sunnudögum kl. 20:00 í Keilu í Mjodd, alls 8 umferðir. Mótið byrjar miðvikudaginn 24. ágúst og lýkur sunnudaginn 18. september. Mótið er tilvalið tækifæri til að koma sér í æfingu og hitta félagana. Allar nánari upplýsingar gefa Guðný 860 8830 og Sigga 895 8080. ÁHE Laugardagur, 20. Ágúst 2005 kl. 20:31 | KLÍ
Fækkun hjá konunumFækkun hefur orðið í 1. deild kvenna en þar munu sjö lið leika á komandi tímabili. Er þetta slæm þróun og vonandi mun verða fjölgun í deildinni í framtíðinni. ÁHE Laugardagur, 20. Ágúst 2005 kl. 20:23 | KLÍ
Leikjaniðurröðun komin fyrir deildirnarLeikjaniðurröðun deildanna er komin á netið án brautaskipunar. Hægt er að skoða hana á slóðinni www.kli.is/deildir/dagskra/ ÁHE Fimmtudagur, 18. Ágúst 2005 kl. 09:09 | KLÍ
Lenging opna tímabilsinsStjórn KLÍ hefur ákveðið að lengja opna liðaskiptatímabilið til 31. ágúst. Er þetta gert vegna dráttar á ákvarðanatöku varðandi fyrirkomulag deilda í vetur. Öll liðaskipti skulu tilkynnt til KLÍ á til þess gerðu eyðublaði sem hægt er að nálgast hér á síðunni undir Upplýsingar hér vinstra megin. Liðaskiptagjald er kr. 1000.- ÁHE Þriðjudagur, 16. Ágúst 2005 kl. 00:35 | KLÍ
Dregið í töfluraðirMiðvikudaginn 17. ágúst kl. 19:00 hefur KLÍ boðað til fyrirliðafundar í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 2. hæð. Á fundinum verður dregið í töfluraðir í deildunum og farið yfir keppnisfyrirkomulag vetrarins og þær breytirngar sem orðið hafa. "Skyldumæting" er hjá fyrirliðum allra liða og eins eru aðrir keilarar velkomnir. ÁHE Laugardagur, 13. Ágúst 2005 kl. 09:40 | KLÍ
Keppni lokið hjá Íslendingum í ÁlaborgÞátttöku Íslenska kvennalandsliðsins er lokið á HM í Álaborg. Stelpunum gekk ekki vel í einstaklingskeppninni. Elín Óskarsdóttir varð efst íslensku stelpnanna með 184 í meðaltal sem skilaði henni í 109 sæti. Sigfríður Sigurðardóttir endaði með 169 í meðaltal og í 179. sæti. Alda Harðadóttir spilaði á 166 í meðaltal og varð í sæti 189, Dagný Þórisdóttir spilaði á 157 meðaltali og varð í 208. sæti, Guðný Gunnarsdóttir endaði með 154 í meðaltal og í 211. sæti og Jóna Þórisdóttir spilaði á 141 í meðaltal og í sæti 213. Alls voru 214 keppendur. Í samanlögðu varð Elín efst íslensku keppendanna með 187 í meðaltal og í 114. sæti, Sigfríður endaði á 184 í meðaltal og í 128. sæti, Alda spilaði á 172 í meðaltal og varð í 179. sæti, Guðný endaði með 165 í meðaltal og í 201. sæti, Dagný endaði með 161 í meðaltal og í 207. sæti og Jóna spilaði á 160 í meðaltal og varð í 211 sæti. Miðvikudagur, 10. Ágúst 2005 kl. 23:08 | KLÍ
Liðakeppni á HM í ÁlaborgNú er lokið liðakeppninni á Heimsmeistaramótinu og endaði íslenska kvennaliðið í 31. sæti með 169 að meðaltali í leik. Sigurvegarar urðu lið Chinese Taipei með 203 að meðaltali í leik, í öðru sæti og með aðeins 12 pinna mun urðu Bandaríkjamenn einnig með 203 að meðaltali og í þriðja sæti heimamenn Danir með 202 að meðaltali. En Danir hafa átt keppendur á verðlaunapalli í öllum keppnum sem lokið er þrátt fyrir að þeir hafi ekki sigrað ennþá. Staðan er nú þannig í einstaklingskeppninni (All Events) að Yu-Ling Wang frá Chinese Taipai leiðir ennþá keppnina keppnina, í öðru sæti er Jin-A-Choi frá Kóreu og í þriðja sæti er Lynda Barnes frá Bandaríkjunum. Sigfríður er nú orðin efst íslensku keppendanna í 107. sæti með 189 að meðaltali í leik eftir 18 leiki, en Elín fylgir henni fast á eftir og er í 113. sæti með 188 að meðaltali. Töluvert bil er síðan í aðra keppendur, Alda er í 172. sæti með 173 að meðaltali, Guðný er í 189. sæti með 169 að meðaltali, Jóna í 201. sæti með 166 að meðaltali og Dagný í 209. sæti með 162 að meðaltali. Á morgun fimmtudag 11. ágúst og á föstudag 12. ágúst verða spilaðir 6 leikir í einstaklingskeppni. Guðný og Alda spila í 1. riðli og Sigfríður og Elín í 2. riðli sem báðir eru spilaðir á morgun, en Jóna og Dagný spila í 4. riðli sem spilaður verður á föstudaginn. Að lokinni einstaklingskeppninni komast 16 efstu keppendurnir áfram í úrslit (Master Round Robin) sem fara fram á laugardaginn 13. ágúst. Sjá nánar á heimasíðu mótsins, <a:http://www.wwc2005.dk/>www.wwc2005.dk</a> ÁHE Mánudagur, 8. Ágúst 2005 kl. 21:31 | KLÍ
Þrímenning lokiðNú er lokið keppni í þrímenningi á heimsmeistarmótinu. Sigfríður (191), Elín (193) og Dagný (175) enduðu í 36. sæti með 186 að meðaltali í leik en Alda (178), Jóna (176) og Guðný (168) voru í 55. sæti með 174 að meðaltali, en alls kepptu 70 þrímenningar að þessu sinni. Sigurvegarnir í þrímenningnum komu frá Chinese Taipai með 212 að meðaltali í leik, í öðru sæti og aðeins þremur pinnum á eftir kom lið frá Singapore með 211 að meðaltali og í þriðja sæti lið heimamanna frá Danmörku með 208 að meðaltali. Staðan er nú þannig í einstaklingskeppninni (All Events) að Yu-Ling Wang frá Chinese Taipai leiðir keppnina, í öðru sæti er Jin-A-Choni frá Kóreu og í þriðja sæti er Kamilla Kjeldsen frá Danmörku. Elín Óskarsdóttir og Sigfríður Sigurðardóttir hafa spilað best íslensku keppendanna og eru nú í 87. og 92. sæti báðar með 193 að meðaltali í leik. Aðrir okkar keppanda hafa ekki náð sér alveg á strik. Næst kemur Alda Harðardóttir sem er í 166. sæti með 174 að meðaltali, Jóna Kristbjörg Þórisdóttir í 172. sæti með 173, Guðný Gunnarsdóttir í 186. sæti með 170 og Dagný Edda Þórisdóttir í 197. sæti með 167 að meðaltali í leik. Alls taka 216 konur þátt í keppninni að þessu sinni. Á morgun þriðjudag 9. ágúst hefst keppni í liðakeppni 5 manna liða. Sjá nánar á heimasíðu mótsins www.wwc2005.dk ÁHE Sunnudagur, 7. Ágúst 2005 kl. 22:17 | KLÍ
Fréttir frá ÁlaborgNú er lokið tvímenningi á HM kvenna í Álaborg. Í tvímenningi gekk okkar stelpum ágætlega. Sigfríður og Elín spiluðu saman og enduðu í 41. sæti með 194 í meðaltal. Guðný og Jóna enduðu í 95. sæti með 170 í meðaltal og Dagný og Alda enduðu í 102. sæti með 164 í meðaltal. Alls spiluðu 105 tvímenningar. Nú stendur yfir keppni í þrímenningi og komum við með úrslit úr honum á morgun. Þeir sem vilja fylgjast með geta gert það á slóðinni online1.wwc2005.dk ÁHE Fimmtudagur, 4. Ágúst 2005 kl. 23:25 | KLÍ
Heimsmeistaramót kvennaHeimsmeistaramót kvenna fer fram dagana 2 - 14 ágúst í Álaborg. Lið Íslands er þannig skipað: Alda Harðardóttir KFR, Elín Óskarsdóttir KFR, Dagný Edda Þórisdóttir KFR, Guðný Gunnarsdóttir ÍR, Jóna Kristbjörg Þórisdóttir KFR, Sigfríður Sigurðardóttir KFR. Hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu mótsins, slóðin er <a:http://www.wwc2005.dk/>www.wwc2005.dk</a> Þar er að finna allar upplýsingar um mótið, þ.m.t. dagskrá og úrslit. ÁHE Fimmtudagur, 4. Ágúst 2005 kl. 22:01 | KLÍ
Venslasamningur liðaStjórn KLÍ hefur samþykkt reglugerð fyrir venslasamning liða. Í vetur geta lið úr efri deild og lið úr neðri deildum gert með sér venslasamning sem heimilar leikmönnum þessara liða að leika með báðum liðum eftir ákveðnum skilyrðum, sjá reglugerðina hér að neðan. Venslasamningseyðublaðið verður komið hér inn á heimasíðuna innan skamm. Reglugerð um venslasamninga liða. Venslasamningur liða felur það í sér að lið innan sama félags gera samning sín á milli um að liði í efri deild (hér eftir kallað lið A) og liði í neðri deild (hér eftir kallað lið V) geti skipst á leikmönnum á því tímabili sem samningurinn kveður á um. Eftir að slíkum samningi er komið á verða leikmenn hlutgengir með báðum liðum og mega því taka þátt í leikjum beggja liða í Íslandsmóti liða á viðkomandi leiktíð. Eftirfarandi reglur gilda um Venslasamninga liða: 1. Hverju liði er aðeins heimilt að gera einn venslasamning á hverju tímabili. Hægt er að gera venslasamning frá byrjun keppnistímabils (deilda) og til og með 31. janúar. Frá 1. febrúar og til loka keppnistímabils er lokað fyrir gerð venslasaminga. 2. Lið sem gera venslasamning mega ekki leika í sömu deild. 3. Gildistími venslasamnings er til loka þess keppnistímabils sem hann er gerður og skal samningur ekki taka gildi fyrr en hann hefur verið formlega staðfestur af KLÍ. 4. Allir löglegir leikmenn liða A og V heyra undir venslasamninginn og hafa rétt á að færast á milli liðanna að því undanskyldu að tveir leikja hæstu leikmenn liðs A mega ekki leika með liði V. Ef fleiri en tveir leikmenn liðs A eru með jafn marga leiki skal meðaltal gilda og þá mega tveir meðaltals hæstu (deildarmeðaltal) ekki leika með liði V. Ef leikmaður liðs A hefur ekki leikið með liðinu í 3 umferðir en er samt einn af tveimur leikjahæstu leikmönnum liðsins má hann leika með liði V fyrstu umferð eftir að hann hefur leik í deildarkeppni KLÍ aftur. 5. Leikmaður má ekki spila með báðum liðum í sömu leikviku í deildarkeppni. Leikvika hefst á mánudegi og líkur á sunnudegi. 6. Leikmaður á rétt á einstaklinsverðlaunum í þeirri deild þar sem hann hefur leikið fleiri leiki að öðrum skilyrðum um verðlaun í deildum uppfylltum. 7. Sé leikmaður uppvís af því að brjóta ofangreindar reglur, dæmist skor hans að engu og leikur þess liðs sem hann lék með síðar í leikvikunni telst því liði tapaður með fullu húsi stiga. 8. Lið sem brýtur gegn reglum þessum, getur misst réttinn á venslasamning á næstu leiktíð. 9. Aganefnd KLÍ fjallar um brot á reglugerð þessari. ÁHE Fimmtudagur, 4. Ágúst 2005 kl. 19:45 | KLÍ
Skráningarfrestur liðaSkráningarfrestur fyrir lið í deildakeppni, bikarkeppni og deildabikar rennur út á morgun, 5. ágúst. Þau félög sem enn eiga eftir að tilkynna sín lið til keppni geta sent tölvupóst á asgrimur@kli.is þar sem taka þarf fram nafn liðs, fyrirliða og í hvaða keppnir liðið ætlar. ÁHE |