|
Fréttasafn: Júní 2005
Föstudagur, 10. Júní 2005 kl. 09:02 | KLÍ
Fréttir af EvrópumeistramótinuNú er keppni í þrímenningi lokið og eingöngu liðakeppnin eftir. Björn (713 alls 1204), Kristján (574/1184) og Árni Geir (649/1304) enduðu í 21. sæti af 52. með 3693 stig eða 205,17 að meðaltali í þessum 6 leikjum, en Magnús (619/1228), Arnar (611/1155) og Steinþór (611/1167) voru í 32. sæti með 3550 stig eða 197,22 að meðaltali. Björn spilaði mjög vel í dag, eftir slakan dag í gær, og einnig Árni Geir sem hefur náð sér vel á strik þessa tvo daga í þrímenningnum. Keppnin var jöfn í þrímenningnum og skildu aðeins nokkur stig að efstu sætin þegar upp var staðið. Fór að lokum þannig að Finnar báru sigur úr býtum, en liðið sem var skipað þeim Kimmo Lehtonen, Petteri Salonen og Lasse Lintila spilaði samtals 4042 eða 224,56 að meðaltali í leik. Í öðru sæti voru Norðmennirnir Per Kristian Eide, Svein Roger Olsen og Petter Hansen með 4027 eða 223,72 að meðaltali og í þriðja sæti Þjóðverjarnir Oliver Morig, Achim Grabowski og Jens Nickel með 4009 stig eða 222,72 að meðaltali. Staðan er nú þannig í heildarkeppninni að Steinþór er enn efstur Íslendinganna í 58. sæti með 207,89 að meðaltali í leik. Þjóðverjinn Oliver Morig nú efstur með 229,83 að meðaltali í leik, annar er Finninn Petteri Salonen með 229,22 og eftir góða spilamennsku í dag er Finninn Lasse Lintilla kominn í þriðja sætið með 228,56 að meðaltali. Á morgun föstudag hefst keppni í liðakeppni 5 manna liða með fyrstu þremur leikjunum en keppninni lýkur á laugardaginn. Fylgist með á keilusíðunum og á heimasíðu mótsins http://bowlingsport.ru/tur/world/emc2005/english.shtml Fimmtudagur, 9. Júní 2005 kl. 06:28 | KLÍ
Evrópumeistaramót karlaÞá er fimmta keppnisdegi lokið á Evrópumeistaramótinu í Moskvu í Rússlandi Steinþór er ennþá efstur Íslendinganna í heildarkeppninni í 56. sæti með Á morgun fimmtudag 9. júní verða spilaðir seinni þrír leikirnir í Fylgist með á keilusíðunum og á heimasíðu mótsins http://bowlingsport.ru/tur/world/emc2005/english.shtml Ţriđjudagur, 7. Júní 2005 kl. 20:11 | KLÍ
Evrópumeistaramót karlaÞegar keppni er lokið í tvímenningi er staða okkar keppenda þannig í heildarkeppninni (All Events) að Steinþór G. Jóhannsson er efstur íslensku keppendanna í 38. sæti með 2575 stig eða 214,58 að meðaltali í leik og vantar 115 upp í 16. sætið. Finninn Petteri Salonen leiðir nú keppnina með 2811 stig eða 234,25 að meðaltali, í öðru sæti er Norðmaðurinn Lasse Ingebrigtsen með 2795 eða 232,92 að meðaltali og í þriðja sæti er Þjóðverjinn Oliver Morig með 2784 eða 232 að meðaltali, þannig að keppnin er ennþá jöfn og spennandi. Á morgun miðvikudag 8. júní og fimmtudaginn 9. júní verður keppt í þrímenningi. Í tvímenningnum var árangurinn okkar manna þannig að Steinþór og Magnús Magnússon urðu í 36. sæti með 2474 eða 206,17 að meðaltali, Arnar Sæbergsson og Árni Geir Ómarsson voru í 60. sæti með 2285 eða 190,42 að meðaltali og Björn G. Sigurðsson og Kristján Þórðarson enduðu í 67. sæti 2238 186,50. Sigurvegarar í tvímenningnum voru Finnarnir Petteri Salonen og Jari Ratia 2788 stig eða 232,33 að meðaltali í leik. Í öðru sæti voru Þjóðverjarnir Oliver Morig og Kai Gunter með 2731 eða 227,58 að meðaltali og í þriðja sæti voru Norðmennirnir Per Kristian Eide og Lasse Ingebrigtsen með 2716 eða 226, 33 að meðaltali. Að þessu sinni taka 28 þjóðir þátt í Evrópumeistaramótinu og alls 161 keppandi, en ekki mæta allar þjóðir með fullt lið til keppni. Keppt er í einstaklingskeppni 6 leikir, tvímenningi 6 leikir, þrímenningi 6 leikir og liðakeppni 5 manna liða 6 leikir eða samtals 24 leikir. Efstu 16 efstu keppendurnir eftir þessa 24 leiki komast áfram og spila maður á móti manni (Round robin) samtals 15 leiki, þar sem veittir eru 30 pinnar í bónus fyrir unninn leik og 15 pinnar fyrir jafntefli. Hægt er að fylgjast með fréttum á www.keila.is og á heimasíðu mótsins http://bowlingsport.ru/tur/world/emc2005/english.shtml Sunnudagur, 5. Júní 2005 kl. 14:29 | KLÍ
KLÍ óskar eftir starfsmanniKeilusamband Íslands óskar eftir að ráða starfsmann til starfa á skrifstofu sambandsins. Í starfinu felst m.a. undirbúningur móta, skráning á skori, viðhald vefjar KLÍ, samskipti við fjölmiðla o.fl. Hægt að sjá starfslýsinguna alla með því að smella hér. Umsóknarfrestur er til 10. júní 2005. Nánari upplýsingar gefa Bragi Már Bragason og Sigríður Klemensdóttir. Stjórn KLÍ |