Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Ţri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Desember 2005

Föstudagur, 30. Desember 2005 kl. 09:21 | KLÍ
Auglýsing fyrir Íslandsmótin

Nú á nýju ári munu Íslandsmót para, unglinga, einstaklinga með og án forgjafar og í tvímenningi verða hvert á eftir öðru. Auglýsing fyrir mótin er komin á netið og er hægt að sjá hana hér. Að gefnu tilefni er minnt á að skrái keppendur sig í æfingatíma fyrir mótin þá er sú skráning bindandi og þurfa keppendur að greiða fyrir æfingatímann hvort sem þeir mæta í hann eða ekki. Skráning í mótin er á keppnisstöðunum, Keilu í Mjódd og Keiluhöllinni, og á netfanginu skraning@kli.is

ÁHE




Miđvikudagur, 28. Desember 2005 kl. 18:03 | KLÍ
Félagakeppni KLÍ

Fyrsta umferð í Félagakeppni KLÍ verður 4. janúar í Keilu í Mjódd kl. 20:00. Keppt verður eftir nýju fyrirkomulagi í 4 manna liðum, sjá reglugerð KLÍ um félagakeppni.  Keilufélögin eru beðin um að tilkynna þátttöku til KLÍ fyrir 2. janúar á netfangið asgrimur@kli.is.

ÁHE




Fimmtudagur, 22. Desember 2005 kl. 17:12 | KLÍ
Gleðileg jól

 Keilusamband Íslands óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.  Þökkum samstarfið á árinu sem er að ljúka. Sjáumst hress á nýju keiluári.

 




Mánudagur, 19. Desember 2005 kl. 15:02 | KLÍ
Meistaramót ungmenna 4. umferð

Fjórða umferð í Meistaramóti ungmenna verður í Keilu í Mjódd sunnudaginn 8. janúar kl. 9:00.
Verði þátttaka mikil áskilur unglinganefnd KLÍ sér rétt til að bæta við leiktíma síðar sama dag.
Skráning er í afgreiðslu Keilu í Mjódd og líkur skráningu 30. desember 2005.

Unglinganefnd KLÍ.




Miđvikudagur, 14. Desember 2005 kl. 15:09 | KLÍ
Leikdagar í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla

Gengið hefur verið frá brautaskipan og leikdögum í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla:

Laugardagur 7. janúar 2006 kl. 9:00 í Keilu í Mjódd:
1 - 2  ÍR-NAS - KR-B
3 - 4  Keila.is - Lærlingar
5 - 6  ÍR-L - ÍR-KLS
7 - 8  KR-C - ÍA-A

Sunnudagur 8. janúar 2006 kl. 13:00 á Akranesi
2 - 3  ÍA-B - JP-Kast

Laugardagur 14. janúar 2006 kl. 9:00 í Keilu í Mjódd
1 - 2  ÍR-PLS - ÍR-P
3 - 4  ÍR-G - ÍR-A
5 - 6  Þröstur - Stormsveitin

Liðum sem eru með venslasamning í gildi er bent á að kynna sér reglur um venslasamning sem snúa að bikarkeppni liða.

ÁHE




Mánudagur, 12. Desember 2005 kl. 22:35 | KLÍ
U-18 ára landlið valið
Eftirtaldir unglingar hafa verið valin til þátttöku í Evrópumeistaramóti Unglinga undir 18 ára sem fram fer í Danmörku dagana 8. - 17. apríl. n.k.
 
Andri Már Ólafsson
Bjarni Páll Jakobsson
Jón Ingi Ragnarsson
Róbert Dan Sigurðsson
Skúli Freyr Sigurðsson
Stefán Claessen
Magna Ýr Hjálmtýrsdóttir
 
 
ÁHE



Miđvikudagur, 7. Desember 2005 kl. 11:59 | KLÍ
Bikardráttur

Í gær var dregið í 16 liða úrslitum karla í Bikarkeppni KLÍ. Eftirtalin lið drógust saman:

ÍA-B  - KFR-JP-Kast *
ÍR-NAS - KR-B*
 KFK-Keila.is - KFR-Lærlingar
KFR-Þröstur - KFR-Stormsveitin
KR-C - ÍA-A
ÍR-PLS - ÍR-P
ÍR-G - ÍR-A
ÍR-L - ÍR-KLS

*Heimaleikjaréttur fluttist þar sem liðið sem kom síðar upp úr hattinum er í neðri deild.

Leiktímar og brautaskipan kemur á næstunni og verður auglýst hér á síðunni.

ÁHE




Ţriđjudagur, 6. Desember 2005 kl. 08:28 | KLÍ
Bikarkeppni KLÍ - 16 liða úrslit karla

Í kvöld verður dregið í 16 liða úrslit í bikarkeppni karla. Dregið verður í Keilu í Mjódd kl. 19:45. Eftirtalin lið verða í pottinum:

ÍA
ÍA-B
KFR - Stormsveitin
KFR - JP-Kast
KFR - Lærlingar
KFR - Þröstur
ÍR-KLS
ÍR-PLS
ÍR-L
ÍR-P
ÍR-A
ÍR-NAS
ÍR-G
KR-B
KR-C
KFK-Keila.is

Leikið verður laugardaginn 7. janúar 2006.

ÁHE




Ţriđjudagur, 6. Desember 2005 kl. 08:24 | KLÍ
Reykjavíkurmóti para lokið

Reykjavíkurmóti para lauk um helgina. Sigurvegarar urðu Arnar Sæbergsson og Magna Hjálmtýsdóttir. Þau sigruðu Halldór Ragnar Halldórsson og Guðnýu Gunnarsdóttir í úrslitum í tveimur leikjum 743 - 668. Í þriðja sæti urðu Hafþór Harðarson og Dagný Edda Þórisdóttir.

ÁHE