|
Fréttasafn: Nóvember 2005
Mánudagur, 28. Nóvember 2005 kl. 21:14 | KLÍ
Reykjavíkurmeistarar 2005 - Hafþór og GuðnýHafþór Harðarson KFR og Guðný Gunnarsdóttir ÍR eru Reykjavíkurmeistarar árið 2005. Mótinu lauk í Keilu í Mjódd um helgina. Sjá úrslit mótsins hér. Föstudagur, 25. Nóvember 2005 kl. 21:26 | KLÍ
Opna Reykjavíkurmót Para 2005
Skráning er hafin í Reykjavíkurmót para. Forkeppni er föstudaginn 2. desember og laugardaginn 3. desember, 4 leikir hvorn dag. Reykjavíkurfélögin
Föstudagur, 25. Nóvember 2005 kl. 21:24 | KLÍ
Bikar á morgunÁ morgun verður leikið í 32. liða úrslitum í bikarkeppni liða. Þá eigast við kl. 9:00 í Keilu í Mjódd: KR-C - ÍR-Línur ÁHE
Sunnudagur, 20. Nóvember 2005 kl. 22:18 | KLÍ
Michael Schmidt og Lynda Barnes sigruðuAMF World Cup lauk í dag. Það voru Michael Schmidt frá Kanada og Lynda Barnes frá Bandaríkjunum sem stóðu uppi sem sigurvegarar. ÁHE Föstudagur, 18. Nóvember 2005 kl. 18:29 | KLÍ
Arnar endaði í 19.-20. sætiArnar Sæbergsson lauk í dag keppni á Heimsbikarmóti einstaklinga. Spilaðir voru 8 leikir í dag og spilaði Arnar á 200 meðaltali eða 1603. Arnar endaði því í 19.-20. sæti með 208,91 í meðaltal ásamt Koichi Takahashi frá Japan. Arnar getur verið ánægður með árangur sinn og óskum við honum til hamingju með hann. Hér má sjá stöðu eftir 24 manna úrslit. Nú keppa 8 efstu keppendur í karla- og kvennaflokki eftir úrsláttarfyrirkomulagi en mótinu líkur á sunnudag. Hægt er að fylgjast með framvindu mála hér.
ÁHE Fimmtudagur, 17. Nóvember 2005 kl. 22:23 | KLÍ
Frábært hjá ArnariArnar Sæbergsson komst í dag áfram í gegnum niðurskurð á Heimsbikarmóti einstaklinga í Ljubljana í Slóveníu. Arnar spilaði vel í dag, 1250 sem er 208.33 að meðaltali. Þetta skilaði honum í 17. sæti. Nú verða spilaðir 8 leikir í viðbót og síðan verður skorið niður þar sem 8 efstu keppendurnir komast áfram. Nú er bara að bíða og sjá hvort Arnari text að halda áfram þessu góða gengi. Í áttunda sæti nú er Steve Thornton frá Englandi með 219,25 í meðaltal en Arnar er með 211,75. Það verður því á brattan að sækja en það eru margir leikir eftir og með góðri spilamennsku er allt hægt. Hér er hægt að sjá stöðuna í karlakeppninni.
ÁHE Miđvikudagur, 16. Nóvember 2005 kl. 23:20 | KLÍ
Dagur 3 - Arnar stendur sig velÞegar þremur dögum er lokið á Heimsbikarmóti einstaklinga er Arnar Sæbergsson í 16 sæti með 213 í meðaltal. Arnar náði sér vel á strik í dag, spilaði 1346 eða 224 í meðaltal. Arnar á góða möguleika á að komast í 24 manna úrslit en á morgun verða leiknir síðustu 6 leikirnir áður en skorið verður niður. ÁHE Ţriđjudagur, 15. Nóvember 2005 kl. 22:01 | KLÍ
AMF World Cup - dagur 2Í dag var annar keppnisdagur á Heimsbikarmóti einstaklinga. Eftir frábæran dag í gær náði Arnar Sæbergsson sér ekki á strik í dag. Arnar spilaði á 184,5 í meðaltali í dag og féll úr 2. sæti niður í það 23. og er með 207 í meðaltal í heildina. Enn eru eftir 12 leikir áður en skorið verður niður í 24 keppendur og vonandi nær Arnar að komast þar inn. Efstu þrír karlarnir eru: Efstu þrjár konurnar eru: Þriðji keppnisdagur af fjórum verður leikinn á morgun en þá verða leiknir 6 leikir. Smellið hér til að skoða stöðu. Ţriđjudagur, 15. Nóvember 2005 kl. 10:59 | KLÍ
Meistaramót ungmenna 3. umferðÞriðja umferð í Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 4. desember 2005 kl. 9:00. Unglinganefnd mun bæta við riðli síðar um daginn ef þátttaka verður góð. Unglinganefnd KLÍ / ÁHE Mánudagur, 14. Nóvember 2005 kl. 22:33 | KLÍ
AMF World Cup - dagur 1Í dag hófst Heimsbikarbikarmót einstaklinga í Ljubljana í Slóveníu. Fyrir Íslands hönd keppa þar Arnar Sæbergsson og Guðný Gunnarsdóttir úr ÍR.
ÁHE Mánudagur, 14. Nóvember 2005 kl. 16:44 | KLÍ
Fréttir frá Ljubljana SlóveníuStaðan hjá körlunum eftir fyrstu sex leikina í AMF World Cup: 1. Michael Schmidt, CAN, 1413, 226,00, 2. Arnar Sæbergsson ICE, 1379, 229,83, 3. Dominic Lim Zhong, SIN, 1365, 216,83, 4. Petter Hansen, NOR, 1356, 213,50, 5. Nayef Oqab, UAE. 1349, 212,67, 6. Nikita Koshelev, RUS, 1344, 211,67, 7. Steve Thornton, ENG, 1342, 211,33, 8. Gery Verbruggen, BEL. 1327, 211,17, 9. Daniel Falconi, MEX, 1317, 211,17, 10. Massimo Pirozzi, ITA, 1301, 211,17. Frábært hjá Arnari. Það verður gaman að fylgjast með Guðnýju Gunnarsdóttur en hún byrjar um kl. 18 á íslenskum tíma. LHM Mánudagur, 14. Nóvember 2005 kl. 15:49 | KLÍ
Fréttir frá LjubljanaArnar Sæbergsson og Guðný Gunnarsdóttir eru stödd í Ljubljana Slóveníu en þar fer fram AMF World Cup þessa dagana. Með þeim í för er Sigríður Klemensdóttir gjaldkeri KLÍ. Allar aðstæður eru til fyrirmyndar, hvort sem um er að ræða hótel eða keppnissalinn. Í gær var æfing fyrir mótið og hefst það í dag með fyrstu 6 leikjunum. Hægt er að skoða heimasíðu mótsins hér. Fimmtudagur, 10. Nóvember 2005 kl. 20:05 | KLÍ
Keila í EgilshöllinniEgilshallarblaðið, sem fylgdi með Grafarvogsblaðinu í dag (10. tbl. 16. árg. 2005 - nóvember), segir frá því að senn verður hafist handa við að byggja viðamikið hús við Egilshöll. M.a. kemur fram að í húsinu verði 24 brauta keilusalur. Áformað er að salurinn opni snemma vorið 2006. BMB Ţriđjudagur, 1. Nóvember 2005 kl. 21:10 | KLÍ
Utandeild á fimmtudag - riðill 1Á fimmtudag hefst önnur umferð í Utandeild KLÍ en þá er leikið í riðli 1. Þá mætast eftirtalin lið:
Keppni hefst í Keilu í Mjódd kl. 18:30. ÁHE |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||