|
Fréttir
Ţriđjudagur, 25. Nóvember 2008 kl. 16:03 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklingaSkráning er hafin í Reykjavíkurmót einstaklinga sem verður leikið núna um helgina 29.-30. nóv. nánari uppl. hér. Opna Reykjavíkurmótið í keilu 2008 Einstaklingskeppni karla og kvenna. Skráning er hafin í Reykjavíkurmót einstaklinga. Skráning fer fram hjá Reyni ÍR reynirth@postur.is og hjá Tóta ÍR í síma 8206404 og netfang toti@landsbanki.is. Keppnin fer fram í Keiluhöllini í Öskjuhlíð. Skráningu lýkur föstudaginn 28. nóvember, kl. 21:00. Leiknir verða 9 leikir í forkeppni og komast fjórir efstu (karlar og konur) áfram í úrslit. Úrslitin eru þannig að 1. – 4., 2. – 3. sætið úr forkeppninni leika saman. Sá/sú sem fyrr vinnur tvo leiki heldur áfram. Sigurvegararnir úr leikjunum leika svo innbyrðis og sá/sú er fyrr vinnur tvo leiki hlýtur Reykjavíkurmeistaratitilinn. Þeir sem tapa spila innbyrðis um þriðja sætið og sigrar sá/sú er fyrr vinnur tvo leiki. Forkeppnin er laugardaginn 29. nóvember kl 09:00, 6 leikir og sunnudaginn 30. nóvember kl 09:00 eru 3 leikir í forkeppni og úrslit strax á eftir. Verð er kr. 2500. Vinsamlegast skráið ykkur tímanlega. Undirbúningsnefnd áskilur sér rétt til breytinga í forkeppninni. Reykjavíkurfélögin
|