|
Fréttir
Sunnudagur, 24. Ágúst 2008 kl. 16:15 | ÞI
Ágústa Þorsteinsdóttir er látinÁgústa fæddist í Reykjavík 1942. Hún hóf að æfa sund 1955, 14 ára gömul. Ári síðar setti hún 11 Íslandsmet og vann með því gullmerki ÍSÍ. Ágústa keppti fyrir Íslands hönd í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 1960. Hún setti alls 52 Íslandsmet í sundi á ferli sínum og var fjórum sinnum tilnefnd til kjörs íþróttamanns ársins. Ágústa var ein af fremstu sundkonum Norðurlanda í sinni grein. Hún varð einnig þrisvar sinnum Íslandsmeistari einstaklinga kvenna, árin 1992, 1995 og 1996 og setti nokkur Íslandsmet. Hún lék í mörg ár fyrir Íslands hönd með landsliðinu í keilu og var sæmd heiðursmerki KLÍ á 10 ára afmæli félagsins. Kæri Gaui og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur frá Keilusambandi Íslands, Gústu verður sárt saknað. |