|
Fréttir
Mánudagur, 21. Júlí 2008 kl. 22:57 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmennaÍ undanúrslitum mættust síðan England og Ísland annars vegar og Svíþjóð og Singapore hins vegar.
Skemmst er frá því að segja að England vann Ísland með 15 stiga mun en samt var sigurinn ekki í höfn fyrr en í 10 ramma þar sem englendingar tengdu til að ná fram sigri, Róbert fékk 224 stig og Hafþór 199 stig – samtals 423 stig á móti 438 stigum Englendinga.
Í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Svíþjóð Singapore 414 stig á móti 366 stigum og leika því England og Svíþjóð til úrslita.
Í úrsliunum höfðu Svíar betur 417 gegn 399.
Ísland og Singapore fá því brons í tvimenning pilta.
Hafþór Harðarson er nú í 9 - 10. sæti í samanlögðum árangri – keppt verður í liðakeppni á morgun og miðvikudag.
Ekki gekk eins vel hjá hinum tvímenningnum, en Stefán og Jón Ingi enduðu í 84. sæti.
Magna og Karen luku keppni í gær og enduðu í 52, sæti með 2018.
Frekari uppslýsingar er að finna á heimasíðu mótsins www.2008wyc.com
|