|
Fréttir
Fimmtudagur, 13. Mars 2008 kl. 10:19 | ÁGÓ
Evrópumót unglinga.Á morgun heldur íslenska unglingalandsliðið til Finnlands til að taka þátt í í evrópumóti unglinga. Hópurinn sem að var valinn til fararinnar samanstendur af Ástrósu Pétursdóttur, Mögnu Ýr Hjálmtýsdóttur, Karen Rut Sigurðardóttur, Andra Má Ólafssyni og Skúla Frey Sigurðssyni. Keppni hefst á mánudaginn hjá stúlkunum og heldur síðan áfram út vikuna. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins. Hörður Ingi Jóhannsson mun stýra liðinu meðan á keppni stendur og óskum við þeim öllum góðs gengis og góðrar ferðar. |