Fréttir
Miđvikudagur, 12. Desember 2007 kl. 11:30 | ŢH
KLÍ leitar að starfsmanni
Keilusamband Íslands auglýstir eftir öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra. Um er að ræða hálft starf.
Starfssvið
- Daglegur rekstur skrifstofu
- Uppfærsla á vef Keilusambandsins
- Ýmis verkefni í tengslum við landslið
- Undirbúningur móta og úrvinnsla, þar á meðal skráning á skori
- Samskipti við fjölmiðla
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af starfi innan íþróttahreyfingarinnar kostur
- Góðir samskiptahæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Hálfdánarson, formaður KLÍ, í síma 899-3654 eða tölvupósti, kli@kli.is.
Umsóknir ásamt ferilskrá berist á netfangið kli@kli.is
|