|
Fréttir
Fimmtudagur, 28. Desember 2006 kl. 12:21 | KLÍ
Íþróttamenn og íþróttakonur ársins 2006
Dagskrá hófsins samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttamanna og íþróttakvenna sérgreina íþrótta, beinni útsendingu Íþróttadeildar Sýnar af staðnum og sameiginlegri útsendingu Sjónvarpsins og Sýnar þar sem kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2006 verður lýst. Í kvöld verður nýr verðlaunagripur afhentur í fyrsta sinn til Íþróttamanns ársins 2006. ÍSÍ lét hanna og útbúa verðlaunagripinn til minningar um látna íþróttamenn og íþróttaforystumenn en Íþróttamaður ársins mun einnig fá afhentan eignarbikar sem vísar til verðlaunagripsins. Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍ |