Fréttir
Miđvikudagur, 27. Desember 2006 kl. 15:02 | KLÍ
Jólamót KFR 2006
 Góð þátttaka var í Jólamót KFR sem fram fór í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð á annan dag jóla, 26. desember. Alls tóku 35 keppendur þátt í mótinu og urðu úrslit sem hér segir:
*-flokkur (180 og yfir): 1. sæti Robert Anderson ÍR 713, 2. sæti Sigfríður Sigurðardóttir KFR 679 og 3. sæti Jón Ingi Ragnarsson KFR 650. A-flokkur (165 - 179): 1. sæti Hafliði Ólafsson ÍR 596, 2. sæti Snæbjörn B. Þormóðsson ÍR 593 og 3. sæti Magnús S. Guðmundsson KFA 571. B-flokkur (146 - 164): 1. sæti Karen Rut Sigurðardóttir ÍR 561, Baldur Bjartmarsson ÍR 546 og 3. sæti Helga Sigurðardóttir KFR 542. C-flokkur (145 og undir): 1. sæti Sigurbjörn Vilhjálmsson ÍR 410, 2. sæti Berglind Scheving ÍR 404 og 3. sæti Karólína Geirsdóttir ÍR 332.
   
|