Fréttir
Mánudagur, 18. Desember 2006 kl. 14:53 | KLÍ
Námskeið hjá Robert Anderson
 Keiludeild ÍR stendur fyrir kennslu í keilu í næstu viku. Kennari verður Svíinn Robert Anderson sem er meðal bestu keilara í Evrópu í dag og er núverandi heimsmeistari í tvímenningi. Kennslan verður fimmtudaginn 28. desember og hver kennslustund er 80 mínútur og hægt er að velja um eftirtalda tíma: kl. 13:00 - 14:20, 14:30 - 15:50, 18:30 - 19:50 og 20:00 - 21:20. Verð er kr. 2.000 á mann og komast hámark 8 manns að í hvern tíma. Skráning fer fram hjá Þórarni Þorbjörnssyni í síma 820 6404. Sjá nánar í auglýsingu
|