Óhætt er að segja að spennan hafi verið óbærileg í Keilu í Mjódd þegar þriðja og síðasta viðureign í úrslitum 1. deildar karla fór fram. Konurnar léku líka en sá leikur náði aldrei að verða spennandi. Þar léku KFR-Valkyrjur á móti KFR-Afturgöngum og sigruðu KFR-Valkyrjur einvígið nokkuð örugglega, 33 - 27 þrátt fyrir að KFR-Afturgöngur hafi sigrað viðureignina í gær 11 - 9.
KFR-Afturgöngur
Ragna M
153
182
190
525
Ágústa
181
160
171
512
Ragna G
198
149
191
538
Jóna
157
206
179
542
2117
KFR-Valkyrjur
Dagný
203
179
144
526
Magna
164
172
190
526
Unnur
146
155
155
456
Sigfríður
191
205
165
561
2069
Hjá körlunum var hins vegar mikil spenna, þó svo að eftir tvo leiki í gær hafi útlitið verið dökkt hjá KR-A en þá var staðan í heldina orðin 30 - 22 fyrir ÍR-PLS. Héldu flestir að aðeins formsatriði yrði fyrir ÍR-PLS að klára málið en það lið sem fyrr næði 30,5 stigum var orðið íslandsmeistari. En KR-A var ekki á þeim buxunum að gefa eftir og þegar níu rammar voru búnir í síðasta leiknum leit út fyrir að KR-A tæki öll stigin úr þeim leik sem og stigin fyrir heildina og jafnaði því 30 - 30. KR-A hefði þá hampað titlinum á hærra meðaltali. En heilladísirnar voru með ÍR-PLS, Davíð Löve KR-A opnaði 10 ramma og tapaði þar með fyrir Jóni Bragasyni. ÍR-PLS voru þar af leiðandi búnir að tryggja sér titilinn, sigruðu í heildina 31 - 29 en jafntefli varð í viðureigninni í gær 10 - 10. Segja má að Hörður Ingi hafi verið bjargvættur ÍR-PLS en hann spilaði mjög vel í gær eða 659.
ÍR-PLS
Jón Helgi
187
220
171
578
H. Ragnar
205
190
184
579
Hörður
258
169
232
659
Steinþór
224
192
192
608
2424
KR-A
Davíð
235
182
168
585
Björn S.
227
185
258
670
Magnús
191
196
256
643
Björn B.
186
179
234
599
2497
Íslandsmeistarar KFR-Valkyrjur Íslandsmeistarar ÍR-PLS 2. sæti KR-A 2. sæti KFR-Afturgöngur Áhorfendur voru fjölmargir.