Fréttir
Mánudagur, 3. Apríl 2006 kl. 08:37 | KLÍ
Deildakeppni lokið
Deildakeppni KLÍ er lokið og að því tilefni var lokahóf KLÍ haldið í Félagsheimili Seltjarnarness s.l. laugardag í umsjón landsliðsmanna. Hápunktur kvöldsins var afhending viðurkenninga fyrir spilamennsku í deildum. Framfaraverðlaunin hlutu þau Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR og Stefán Claessen ÍR. Hér má sjá lista yfir þær viðurkenningar sem veittar voru. Nú tekur við úrslitakeppni í 1. deild karla og kvenna. Undanúrslit verða leikin 18. og 19. apríl en úrslitin 24. - 26. apríl. |
|
 |
|