|
Fréttir
Sunnudagur, 12. Mars 2006 kl. 18:35 | KLÍ
Sigfríður Íslandsmeistari þriðja árið í röð
Freyr og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR léku áberandi best í undanúrslitum í karlaflokki í dag, en Freyr, sem var í þriðja sæti eftir milliriðil, náði að vinna sig upp fyrir Steinþór og í fyrsta sætið. Í úrslitum sigraði Steinþór fyrsta leikinn 224-184, en þá fór Freyr aftur á skrið og vann þrjá leiki, 228-201, 195-194 og 229-155. Í þriðja sæti varð Magnús Magnússon úr KR. Sigfríður leiddi kvennaflokkinn gegnum allt mótið og lék einnig best í undanúrslitum, en Ragna Matthíasdóttir úr KFR, sem var 12 pinnum á eftir Mögnu Ýr Hjálmtýsdóttur úr KFR fyrir undanúrslitin, náði að vinna þá upp og endaði 11 pinnum á undan Mögnu, og lék því til úrslita gegn Sigfríði. Í úrslitum byrjaði Ragna á að vinna þrjá æsispennandi leiki, 183-182, 164-158 og 205-200, en það náði ekki fjórða sigrinum sem hún hefði þurft til að ná titlinum, og Sigfríður vann þrjá næstu leiki, 258-184, 175-171 og 185-135. |