Fréttir
Föstudagur, 25. Nóvember 2005 kl. 21:26 | KLÍ
Opna Reykjavíkurmót Para 2005
Skráning er hafin í Reykjavíkurmót para. Forkeppni er föstudaginn 2. desember og laugardaginn 3. desember, 4 leikir hvorn dag. Keppni hefst kl. 20:00 á föstudeginum og 10:00 á laugardeginum í Keilu í Mjódd. Þrjú efstu pörin á pinnafalli úr leikjunum átta komast í úrslit. Úrslitin eru leikin strax að lokinni forkeppninni. Úrslit eru 3-2-1-1 og er úrslitaleikurinn tvöfaldur. Sigurvegararnir hljóta titilinn Reykjavíkurmeistarar para 2005. Verð er 6600 á parið. Skráning í afgreiðslu Keilu í Mjódd.
Reykjavíkurfélögin
|