Fréttir
Fimmtudagur, 29. September 2005 kl. 07:24 | KLÍ
Meistaramót ungmenna, 1. umferð
Fyrsta umferð í Meistaramóti ungmenna fer fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 2.október kl. 9:00. Alls eru 25 unglingar frá þremur félögum (KFR, ÍR og KFA) skráðir til leiks. Keppendur eru beðnir um að vera mættir tímanlega til keppni á sunnudag svo hægt verði að byrja á réttum tíma. Verð fyrir 4.flokk pilta og stúlkna er kr. 900 en fyrir aðra flokka kr. 1800.
Unglinganefnd KLÍ
|