|
Fréttir
Þriðjudagur, 20. September 2005 kl. 12:12 | KLÍ
Deildakeppni hafinÍ gærkvöld hófst deildakeppnin með þremur leikjum í 1. deild kvenna. Eins og kunnugt er var stigagjöf breytt fyrir þetta tímabil þannig að alls eru nú 20 stig í pottinum; 2 fyrir hvern unnin leik liðs, 2 fyrir hærra heildarskor, og síðan 1 fyrir sigur leikmanns innbyrðis, þ.e. liðsmanni mótherja sem er á sama stað í rásröðinni. Sé jafnt er stigum skipt til helminga. Staðan í deildinni eftir þessa þrjá leiki 1. umferðar er sem hér segir:
Í kvöld kl.20:00 hefst síðan keppni í 1. deild karla með 5 leikjum í Keilu í Mjódd, en sá sjötti verður leikinn á Akranesi á sunnudag kl. 16:00. 1. umferð í 2. deild verður svo leikin annað kvöld, en allir fjórir leikir umferðarinnar verða á sama tíma, kl. 20:00, í Keilu í Mjódd. |