Dagskrárbreytingar

Facebook
Twitter

Kæru keilarar:

 Að beiðni eigenda Keiluhallarinnar, hefur mótanefnd í samráði við formann KLÍ samþykkt að breyta tímasetningum lokaumferðar allra deilda laugardaginn 11. apríl, þannig að leikir hefjist klukkutíma fyrr en áætlað var.

 
1. og 2. deild kvenna ásamt 3.deild karla byrja því kl. 8:00
1. og 2. deild karla byrja því kl. 11:00
 
Vinsamlegast komið boðum á ykkar liðsfélaga um þessa breytingu og mætið tímanlega því upphitun verður sett á á öllum brautum samtímis kl.08:00 og 11:00 hvort sem búið er að skrá inn nöfn eða ekki. Þetta er gert til að geta haldið tímaáætlun.
 
Með von um góðar undirtektir og vilja til að halda keilunni á lofti.

Fyrir hönd Mótanefndar

Andrés H. Hreinsson

Nýjustu fréttirnar