Íslandsmeistarar Öldunga 2015

Facebook
Twitter

Ragna Matthíasdóttir KFR og Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR Íslandsmeistarar öldunga 2015Í kvöld fór fram úrslitakeppni í Íslandsmóti öldunga 2015. Íslandsmeistarar urðu þau Ragna Matthíasdóttir úr Keilufélagi Reykjavíkur (KFR) og Þórarinn Már Þorbjörnsson úr ÍR. Ragna sigraði Lindu Hrönn Magnúsdóttur fráfarandi Íslandsmeistara öldunga í tveim leikjum 170 pinnar gegn 151 og svo 206 gegn 185. Í þriðja sæti varð svo Helga Sigurðardóttir úr KFR. Þórarinn sigraði Davíð Löve úr KR í þrem leikjum 135 pinnar gegn 202, 185 gegn 162 og svo 205 gegn 180. Í þriðja sæti varð svo Magnús Reynisson úr KR.

Sjá nánar úrslit kvenna og úrslit karla.

Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR, Ragna Matthíasdóttir KFR og Helga Sigurðardóttir KFR

  Davíð Löve KR, Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR og MAgnús Reynisson KR

Nýjustu fréttirnar