Arnar Davíð í 34. sæti.

Facebook
Twitter

Keppni var að ljúka í fjórða riðli í einstaklingskeppni HM í keilu og léku Arnar Davíð Jónsson og Magnús Magnússson í þeim riðli.  Strákarnir áttu ágætis dag og þá sérstaklega Arnar Davíð.

 

Magnús lék jafna keilu og endaði með 1211 stig sem gera 201,83 í meðaltal.
Arnar Davíið lék mjög vel ef frá er talinn leikur nr. 2 í dag en sá leikur var 153. Aðrir leikir voru góðir og endaði hann með 1301 sem gera 216,83 í meðaltal og setur hann í 34 sæti af 272 keppendum. Arnar er aðeins 39 pinnum frá 24 sæti en 24 efstu leika í lokin um heimsmeistaratitilinn.

Loka staða okkar manna í einstaklingskeppninni er því þessi:

34  Arnar Davíð Jónsson KFR   1301   216.83
123 Magnús Magnússon ÍR   1211   201,83
134  Hafþór Harðarson  ÍR   1203    200,5
135  Arnar Sæbergsson ÍR   1203   200,5
220  Stefán Claessen   ÍR   1099  183,17

243  Skúli Freyr Sigurðsson ÍA  1067   177,83
 

Á morgun er leikinn tvímenningur og þá er dagskráin þannig:

Stefán og Skúli kl. 5:00 íslendskum tíma
Arnar S og Hafþór kl. 9:30
Arnar Davíð og Magnús kl. 14:00

Einnig er hægt að fá fréttir á Snapchat  „Íslenskakeilan“  og á Facebookhópnum „Jákvæð keila“

Nýjustu fréttirnar