Íslandsmót unglingaliða – Úrslit

Facebook
Twitter

Lið ÍR 1 er Íslandsmeistari unglingaliða fjórða árið í röð, en liðið tryggði sér titilinn í úrslitakeppni mótsins sem fór fram í  Keiluhöllinni í Egilshöll laugardaginn 29. mars s.l. Deildarmeistararnir ÍA 1 urðu í 2. sæti og lið KFR 1 og ÍR 2 höfnuðu í 3. –  4. sæti. Í liði ÍR 1 voru Erlingur Sigvaldason, Þorsteinn Hanning Kristinsson, Ágúst Ingi Stefánsson og Steindór Máni Björnsson. Erlingur og Þorsteinn spiluðu best allra í úrslitunum. Sjá úrslit leikja og skor í úrslitakeppninni

Liðin sem kepptu í úrslitakeppni Íslandsmóts unglingaliða 2014. KFR 1, ÍR 2, Deildarmeistararnir ÍA 1 og Íslandsmeistararnir ÍR 1.

Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Efsta liðið að loknum þessum 5 umferðum hlýtur titilinn Deildarmeistari unglingaliða, en efstu fjögur liðin keppa síðan til úrslita þar sem  liðið í 1. sæti keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti og það lið sem fyrr vinnur tvo leiki keppir til úrslita. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í úrslitunum sigrar og hlýtur nafnbótina „Íslandsmeistari unglingaliða.“

Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.

Nýjustu fréttirnar