Nýtt meðaltal 28. febrúar 2014

Facebook
Twitter

Birt hefur verið allsherjarmeðaltal miðað við 28. febrúar 2014

Nýkrýndur Íslandsmeistari Magnús Magnússon ÍR er nú kominn í efsta sæti meðaltalslistans með 214 pinna að meðaltali í leik, tveimur pinnum meira en Hafþór Harðarson ÍR sem hefur verið í efsta sæti listans síðustu mánuði. Skúli Freyr Sigurðsson ÍA er svo kominn í 3. sætið með 206 að meðaltali. Dagný Edda Þórisdóttir KFR er efst kvenna á listanum með 191 pinna og hækkar um tvo pinna milli mánaða. Alda Harðardóttir KFR kemur næst með 187 að meðaltali í leik og nýkrýndur Íslandsmeistari Ástrós Pétursdóttir ÍR er komin í 3. sætið með 184 pinna að meðaltali.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Nýjustu fréttirnar