14. umferð 2. deildar karla

Facebook
Twitter

ÍR L heldur sigurgöngu sinni áfram og eins og hefur komið fram nokkuð öruggir upp á næsta tímabili Broskarlar halda smá fjarlægð á liðin í 3-5 sæti og nú eru einungis 4 umferðir eftir. Naddóður er svo gott sem fallinn í þriðju deild en ÍR Nas og Keila.is heyja harða baráttu um það hvort liðið kemst hjá því að fara með þeim. Tölfræðilega er ýmislegt hægt en svo er að sjá spilamennskuna á vellinum. Sjá stöðuna í 2. deild karla

 Á braut 1 og 2 áttust við Keila.is og Þrestir fyrsti leikurinn frekar jafn en Þrestir unnu 588-562,Keila.is tóku annan leikinn sem var ekki síður á jöfnu 650-637 en síðasta leikinn áttu Þrestir með 100 pinnum og kláruðu einvígið 1904-1791 eða 14-6.

Jökull með hæstan leik 188 en  Sigurður Valur með hæstu seríu 518
 
Á braut 3 og 4 spiluðu ÍR Blikk og ÍR A þar áttu liðsmenn Blikkara ekki í teljandi vandræðum með þriggja manna lið ÍR A unnu fyrsta leikinn 659-528 næsta 747-579 og þriðja 702-619 2108-1726 eða 17-3 með þessum sigri skelltu Blikkarar sér upp fyrir ÍR A í deildinni.
Skúli með hæstan leik og seríu 234 og 584
 
Á braut 5 og 6 léku ÍR Nas gegn ÍR L þar reyndar léku þeir fram í 8.ramma en þá gafst önnur vélin upp og var leikurinn færður á annað sett þetta hafði þó ekki teljandi áhrif á toppliðið sem skilaði góðum sigri í kvöld unnu alla þrjá leikina 740-633,744-571 og 727-566 eða 2211-1770 17-3 sigur.
Birgir með hæstan leik og flotta seríu 215 og 618
Á braut 7 og 8 öttu kappi ÍR Broskarlar og ÍR T þar byrjuðu ÍR T á að leggja öll trompin á borðið og höfðu góðan sigur 751-682 eftir það sáu þeir ekki til sólar Broskarlar unnu næstu tvo 676-546 og 821-602 heildin 2179-1899 eða 16-4.
Stebbi með hæstan leik og seríu 258 og 585
 
Á braut 9 og 10 kepptu ÍR Naddóður gegn JP Kast sem byrjuðu vel og unnu alla þrjá leikina 625-542,691-595 og þann síðasta einungis með þremur pinnum 624-621 heild 1940-1758 eða 14-6.
Konráð með hæstu seríu 565 en Svavar með hæstan leik 217
 
Lítil breyting á stöðunni önnur en sú að Blikkarar skella sér upp fyrir ÍR A
 
1.ÍR L 217
2.ÍR Broskarlar 182,5
3.KFR JP Kast 165,5
4.ÍR Blikk 154,5
5.ÍR A 152,5
6.KFR Þröstur 139,5
7.ÍR T 122,5
8.ÍR Keila.is 107
9.ÍR Nas 99,5
10.ÍR Naddóður 59,5

Sjá stöðuna í 2. deild karla

Nýjustu fréttirnar