Nýtt meðaltal 31. janúar 2014

Facebook
Twitter

Birt hefur verið allsherjarmeðaltal miðað við 31. janúar 2014

Hafþór Harðarson ÍR er í efsta sæti meðaltalslistans og hækkar sig um 6 pinna frá síðasta mánuði og er nú með 220  pinna að meðaltali í leik, en hann spilaði 220 að meðaltali í leik í síðasta mánuði. Dagný Edda Þórisdóttir KFR er efst kvenna á listanum með 189 pinna og lækkaði lítillega milli mánaða. Magnús Magnússon ÍR kemur næstur á listanum yfir karlana með 213 að meðaltali í leik og Arnar Sæbergsson ÍR er þriðji með 212 að meðaltali. Hjá konunum er Alda Harðardóttir KFR í 2. sætið með 187 að meðaltali í leik, eins og Guðný Gunnarsdóttir ÍR.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Nýjustu fréttirnar