Meistarakeppni ungmenna – Úrslit 4. umferð

Facebook
Twitter

4. umferð í Meistarakeppni ungmenna fór fram í Egilshöllinni laugardaginn 1. febrúar.  Að þessu sinni tóku þátt 43 keppendur, 32 piltar og 11 stúlkur sem kepptu í 5 aldursflokkum. Bestu spilamennskuna þennan dag áttu Hlynur Örn Ómarsson ÍR sem spilaði 1.280 eða 213,33 að meðaltali í 6 leikjum, Andri Freyr Jónsson KFR  sem spilaði 1.090 eða 181,66 að meðaltali og Andri Þór Göthe ÍR sem spilaði 1.085 eða 180,83 að meðaltali. Sjá úrslit 4. umferðar og stöðuna í mótinu.

5. umferð Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð laugardaginn 22. mars 2014.

Í Meistarakeppni ungmenna taka þátt börn og ungmenni, 20 ára og yngri sem æfa hjá keilufélögunum og er skráning í mótið hjá þjálfurum félaganna. Keppni í Meistarakeppni ungmenna í keilu fer fram u.þ.b. mánaðarlega yfir veturinn, sjá leikdaga í dagskrá 

Keppt er í fimm aldursflokkum:
1. flokkur 18 – 19 – 20 ára
2. flokkur 15 – 16 – 17 ára
3. flokkur 12 – 13 – 14 ára
4. flokkur 9 – 10 – 11 ára
5. flokkur 7 – 8 ára

Miða skal við afmælisár, en keppendur halda sínum flokki fram yfir áramótin og til loka móts.

Raðað er í sæti eftir heildarskori í hverjum flokki í hverri umferð. Stig eru gefin fyrir öll sæti í hvert skipti. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. sæti hlýtur 12 stig
2. sæti hlýtur 10 stig
3. sæti hlýtur 8 stig
4. sæti hlýtur 7 stig
5. sæti hlýtur 6 stig
6. sæti hlýtur 5 stig
7. sæti hlýtur 4 stig
8. sæti hlýtur 3 stig
9. sæti hlýtur 2 stig
10. sæti og neðar hlýtur 1 stig

Nýjustu fréttirnar