Deildarbikar liða 4. umferð

Facebook
Twitter

Keppni í 4. umferð Deildarbikars liða fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll og Öskjuhlíð þriðjudaginn 4. febrúar. A riðill keppir í Öskjuhlíðinni en B og C riðlar keppa í Egilshöll. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð og  stöðuna í mótinu

Staðan að lokinni 3. umferð er þannig að ÍR-PLS er nú komið í efsta sæti A-riðils með 30 stig, tveimur stigum meira en ÍR-TT sem er í 2. sæti með 28 stig. KR-A sem átti gott kvöld í 3. umferðinn kemur síðan í 3. sæti með 25 stig og hafði sætaskipti við ÍR-L sem er í 4. sæti með 21 stig. Í B-riðli eru KFR-Afturgöngurnar búnar að taka efsta sætið af KR-B og eru með 24 stig, en KR-B er með 20 stig. ÍR-Buff er komið í 3. sæti með 18 stig, en ÍA er í 4. sæti með 16 stig. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 24 stig, en ÍA-W er í 2. sæti með 20 stig. Í 3. sæti er KR-C með 16 stig, en KR-D er í 4. sæti með 14 stig. Sjá stöðuna í mótinu eftir 3. umferð

Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.

Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet

Sjá stöðuna í mótinu eftir 2. umferð

Nýjustu fréttirnar