13. umferð 1. deildar kvenna

Facebook
Twitter

13. umferð 1. deildar kvenna fór fram í vikunni. ÍR-Buff vann stórsigur 16 – 4 á ÍR-TT og þar með komust KFR-Afturgöngurnar upp í 2. sæti deildarinnar. KFR-Valkyrjur unnu öruggan 20 – 0 sigur á KFR-Skutlunum og auka forystu sína á toppnum með 193 stig í efsta sæti. KFR-Afturgöngurnar unnu ÍF-Eldingu 16 – 4 og eru í 2. sæti með 177 stig og hafa 4 stiga forystu á ÍR-TT sem er í 3. sæti með 173 stig. ÍR-Buff kemur síðan í 4. sæti með 158,5 stig. Sjá stöðuna eftir 13. umferð

Úrslit annarra leikja umferðarinnar sem fóru fram í Öskjuhlíðinni voru þannig að ÍR-BK vann ÍR-N 14 – 6 og ÍR-SK tók 4 stig á móti 16 hjá ÍR-KK sem komst með sigrinum upp um eitt sæti. ÍA sat hjá í þessari umferð.

Úrslit leikja í 13. umferð voru eftirfarandi:
ÍR-BK – ÍR-N 14 – 6
ÍR-SK – ÍR-KK 4 – 16
ÍR-TT – ÍR-Buff 4 – 16
KFR-Valkyrjur – KFR-Skutlurnar 20 – 0

Helstu afrek umferðarinnar voru að Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum spilaði 593 seríu, Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff spilaði 553 og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT spilaði 550. ÍR-Buff spilaði hæstu seríuna 2.158, en KFR-Valkyrjur hæsta leikinn 738.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 13. umferð:
1. KFR-Valkyrjur 193 (12)
2. KFR-Afturgöngurnar 177,5 (12)
2. ÍR-TT 173 (12)
4. ÍR-Buff 158,5 (12)
5. ÍR-BK 136,5 (12)
6. ÍR-N 113 (12)
7. ÍFH-Elding 96 (12)
8. KFR-Skutlurnar 80,5 (11)
9. ÍR-KK 76,5 (12)
10. ÍA 73,0 (11)
11. ÍR-SK 22,5 (12)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 172,75, ÍR-Buff er með 165,71, KFR-Afturgöngurnar eru með 165,15, og ÍR-TT er með 164,08. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 190,3 að meðaltali í 34 leikjum. Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum er með 187,33 að meðaltali í leik í 15 leikjum og Alda Harðardóttir KFR-Valkyrjum er með 178,4 í 15 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Elín er með 0,867 í 15 leikjum, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT er með 0,833 í 36 leikjum og Jóna Gunnarsdóttir KFR-Afturgöngunum er með 0,817 að meðaltali í 30 leikjum. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,79 að meðaltali í leik, Elín er með 4,27 og Guðný með 4.25. Dagný Edda á hæsta leik deildarinnar 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós Pétursdóttir á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Elín kemur næst 100 pinnum á eftir með 620 og þriðja er Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum með 604 seríu.

Sjá stöðuna eftir 13. umferð

Í 14. umferð sem fer fram þriðjudaginn 28. janúar 2014 tekur ÍR-Buff á móti ÍR-SK í Egilshöllinni. En í Öskjuhlíðinni mætast KFR-Skutlurnar og KFR-Afturgöngurnar, ÍFH-Elding tekur á móti ÍR-TT, ÍR-KK og ÍR-BK mætast og ÍR-N tekur á móti ÍA. KFR-Valkyrjur sitja hjá í 14. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.

Nýjustu fréttirnar