12. umferð 1. deildar kvenna

Facebook
Twitter

12. umferð 1. deildar kvenna fór fram í vikunni. KFR-Valkyrjur eru nú með 173 stig í efsta sæti og hafa 4 stiga forystu á ÍR-TT sem er í 2. sæti með 169 stig. KFR-Afturgöngurnar eru í 3. sæti með 161,5 stig og ÍR-Buff er í 4. sæti með 142,5 stig. Sjá stöðuna eftir 12. umferð

Í 12. umferð tók ÍA á móti ÍR-BK á Skaganum og tóku 6 stig af gestunum sem unnu 14 – 6 og náðu því að halda 5. sæti deildarinnar. ÍR-N og ÍR-SK mætttust í Öskjuhlíðinni og fór viðureign þeirra 18 – 2 og náði ÍR-N með sigrinum að vinna sig upp um eitt sæti. ÍFH-Elding tók á móti KFR-Valkyrjum sem unnu öruggan sigur 1,5 – 18,5. ÍR-KK tók á móti ÍR-TT sem tók nú 3,5 stig á móti 16,5. ÍR-Buff tók síðan á móti KFR-Afturgöngunum í Egilshöllinni og náðu 6 stigum á móti 14 stigum gestanna. KFR-Skutlurnar sátu hjá í þessari umferð.

Úrslit leikja í 12. umferð voru eftirfarandi:
ÍA- ÍR-BK 6 – 14
ÍR-N – ÍR-SK 18 – 2
ÍR-KK – ÍR-TT 3,5 – 16,5
ÍFH-Elding – KFR-Valkyrjur 1,5 – 18,5
ÍR-Buff – KFR-Afturgöngurnar 6 – 14

Spilamennskan var þó nokkuð lægri en var í fyrri olíburðinum, en vonandi á það eftir að breytast. Helstu afrek umferðarinnar voru að Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum spilaði 548 seríu, Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum spilaði 547 og Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum spilaði 531. KFR-Afturgöngurnar spiluðu hæstu seríuna 2.035, en ÍR-Buff spilaði hæsta leikinn 694.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 12. umferð:
1. KFR-Valkyrjur 173 (11)
2. ÍR-TT 169,0 (11)
3. KFR-Afturgöngurnar 161,5 (11)
4. ÍR-Buff 142,5 (11)
5. ÍR-BK 122,5 (11)
6. ÍR-N 107,0 (11)
7. ÍFH-Elding 92,0 (11)
8. KFR-Skutlurnar 80,5 (10)
9. ÍA 73,0 (11)
10. ÍR-KK 60,5 (11)
11. ÍR-SK 18,5 (11)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 172,2, KFR-Afturgöngurnar eru með 165,36, ÍR-Buff er með 164,42 og ÍR-TT er með 164,12. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 189,6 að meðaltali í 31 leik. Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum er með 187,33 að meðaltali í leik í 15 leikjum og Alda Harðardóttir KFR-Valkyrjum er með 179,5 í 12 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Elín er með 0,867 í 15 leikjum, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT er með 0,843 í 33 leikjum og Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT er með 0,803 að meðaltali í 33 leikjum. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,84 að meðaltali í leik, Guðný Gunnarsdóttir er með 4,27 eins og Elín. Dagný Edda á hæsta leik deildarinnar 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Elín kemur næst 100 pinnum á eftir með 620 og þriðja er Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum með 604 seríu.

Sjá stöðuna eftir 12. umferð

Í 13. umferð sem fer fram þriðjudaginn 21. janúar 2014 mætast ÍR-BK og ÍR-N, ÍR-SK og ÍR-KK í Öskjuhlíðinn. Í Egilshöllinni mætast síðan ÍR-TT og ÍR-Buff, KFR-Valkyrjur og KFR-Skutlurnar. KFR-Afturgöngurnar sitja hjá í 13. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.

Nýjustu fréttirnar