Deildarbikar liða 3. umferð

Facebook
Twitter

Keppni í 3. umferð Deildarbikars liða fer fram þriðjudaginn 17. desember. Liðin í A og C riðli keppa í Keiluhöllinni Egilshöll, en B riðill keppir í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og hefst keppni kl. 19:00.

Staðan að lokinni 2. umferð er þannig að ÍR-TT er í efsta sæti A-riðils með 20 stig eins og ÍR-PLS í 2. sæti. ÍR-L kemur síðan í 3. sæti með 16 stig og KR-A er í 4. sæti með 14 stig. Í B-riðli er KR-B í efsta sæti með 14 stig eins og KFR-Afturgöngurnar sem eru í 2. sæti. Síðan kemur ÍA í 3. sæti með 12 stig eins og ÍR-Buff sem er í 4. sæti. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 14 stig eins og ÍA-W sem er í 2. sæti. Í 3. sæti er KR-C með 10 stig eins og KR-D í 4. sæti. Sjá stöðuna í mótinu

Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.

Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet

Nýjustu fréttirnar