QubicaAMF mótið – Annar keppnisdagur

Facebook
Twitter

Þá er öðrum keppnisdegi lokið á QubicaAMF Bowling World Cup, heimsbikarmóti einstaklinga í keilu sem nú fer fram í Krasnoyarsk í Síberíu í Rússlandi. Spilamennskan er enn mjög há og fjórir 300 leikir voru spilaðir í dag.

Guðný Gunnarsdóttir hóf keppni kl. 16:00 að staðartíma eða kl. 8:00 að íslenskum tíma. Hún átti frábæran keppnisdag og spilaði sig upp um nokkur sæti. Leikir hennar í dag voru 192, 209, 171, 244, 229 og 211, samtals 1.256 eða 209,33 að meðaltali í 6 leikjum og Guðný bætti sinn besta árangur í 6 leikjum um 39 pinna. Guðný er nú í 28 sæti með samtals 2.419 með 201,58 að meðaltali og vantar 65 pinna upp á 24. sætið og sæti í úrslitum. Sjá leiki Guðnýjar , stöðuna í kvennaflokki og útsendingu frá holli B kvenna á öðrum keppnisdegi. Guðný keppir næst kl. 8:00 að staðartíma á morgun miðvikudaginn 20. nóvember, eða kl. 24:00 að íslenskum tíma.

Arnar Sæbergsson hóf keppni í morgun kl. 8:00, eða kl. 24:00 að íslenskum tíma. Hann átti ekki góðan dag og er að glíma við smávægileg meiðsli, en nær vonandi að jafna sig fyrir morgundaginn. Leikir Arnars í dag voru 175, 198, 223, 146, 224 og 202 eða samtals 1.168 pinnar. Arnar er nú í 45. sæti með samtals 2.525 eða 210,17 að meðaltali í 12 leikjum og vantar 198 pinna upp á 24 sætið. Sjá leiki Arnars , stöðuna í karlaflokki og útsendingu frá holli A karla á öðrum keppnisdegi. Arnar keppir næst kl. 20:00 að staðartíma miðvikudaginn 20. nóvember, sem er kl. 12:00 á hádegi að íslenskum tíma.

Mats Maggi frá Belgíu spilaði best allra í dag eða 1.599 og bætti met Peter Hellström frá því í gær og komst upp í 5. sæti. Peter er hins vegar í nokkuð öruggri forystu í karlaflokki með samtals 3.061 pinna eða 255,08 að meðaltali í 12 leikjum. Í 2. sæti er nú Bodo Konieczny frá Þýskalandi með 2.949 pinna og William Ching frá Venasúela er í 3. sæti með samtals 2.932 pinna. Þrír 300 leikir voru spilaðir í dag í karlaflokki. Í dag voru spilaðir fjórir 300 leikir. Fyrstur var Or Aviram Ísrael, síðan kom Chis Sloan Írlandi og loks spilaði Tore Torgersen Noregi tvo 300 leiki í röð og spilaði sig úr 45. í 17. sæti. Eins og staðan er nú er meðaltalið í karlaflokki 213,94 og það þarf 226,67 pinna að meðaltali í leik til að komast áfram í úrslitin. Sjá stöðuna í karlaflokki 

Fyrrum mótsmeistari Caroline Lagrange frá Kanada er ennþá efst í kvennaflokki með samtals 2.959 pinna eða 246,58 að meðaltali í 12 leikjum. Í 2. sæti er nú Cheri Tan frá Singapore með samtals 2.860, en tvöfaldi mótsmeistarinn Aumi Guerra frá Dóminikanska lýðveldinu er komin upp í 3. sæti með 2.836 pinna. Eins og staðan er nú er meðaltalið í kvennaflokki 195,83 og þarf 207,0 að meðaltali í leik til að komast áfram í úrslitin. Sjá stöðuna í kvennaflokki

 

Dagskrá mótsins:
Föstudagur 15. og laugardagur 16. nóvember – Koma
Sunnudagur 17 . nóvember  – Æfingar og setningarathöfn
Mánudagur 18. nóvember – Fyrstu 6 leikir, Arnar keppir í holli A kl. 12:00 (4:00) og Guðný keppir í holli B kl. 20:00 (12:00)
Þriðjudagur 19. nóvember – Aðrir 6 leikir, Arnar keppir í holli A kl. 8:00 (24:00) og Guðný keppir í holli B kl. 16:00 (8:00)
Miðvikudagur 20. nóvember – Þriðju 6 leikir, Guðný keppir í holli B kl. 8:00 (24:00) og Arnar keppir í holli A kl. 20:00 (12:00)
Fimmtudagur 21. nóvember – Fjórðu 6 leikir, Guðný keppir í holli B kl. 12:00 (4:00) og Arnar keppir í holli A kl. 16:00 (8:00)
Föstudagur 22. nóvember – Efstu 24 keppendurnir spila 8 leiki, Konur kl. 8:00 og karlar kl. 11:30
Laugardagur 23. nóvember – Efstu 8 keppendurnir spila 8 leiki kl. 9:00 og efstu 3 keppa til úrslita kl. 14:00

Tíminn í Krasnoyarsk er GMT + 8 klst þannig að þegar klukkan þar er 24:00 á miðnætti er hún 16:00 á Íslandi. Sjá World Clock

Hægt verður að fylgjast með gangi keppninnar á heimasíðu mótsins og Facebook síðunni og boðið verður upp á bæði beina útsendingu á You tube rás Qubica AMF (live streaming) og að fylgjast með skori í leikjunum (On-line scoring) á heimasíðu mótsins

Nýjustu fréttirnar