Nýtt meðaltal 31. október 2013

Facebook
Twitter

Birt hefur verið nýtt allsherjarmeðaltal miðað við 31. október 2013

Robert Andersson er efstur á listanum, en af þeim sem eru virkir spilarar hér er Hafþór Harðarson ÍR með hæsta meðaltalið eða 213 pinna að meðaltali í leik. Magnús Magnússon ÍR kemur næstur með 211 og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA er þriðji með 205 eins og Arnar Sæbergsson ÍR.

Ástrós Pétursdóttir ÍR er með hæsta meðaltal kvenna 191 pinna að meðaltali í leik. Næstar á eftir henni koma Dagný Edda Þórisdóttir KFR með 189 og Guðný Gunnarsdóttir ÍR með 183.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Nýjustu fréttirnar