NMU 2013 – Úrslitakeppni

Facebook
Twitter

Arnar Davíð Jónsson varð í 6. sæti í úrslitakeppninni (Masters) á Norðurlandamóti ungmenna 23 ára og yngri sem fór fram í morgun. Arnar Davíð vann 3 leiki af 7 og fékk 90 bónusstig og endaði með samtals 1.479 pinna. Svíinn Jesper Svenson hélt sigurgöngu sinni áfram, vann örugglega alla sína leiki, fékk 210 bónusstig og endaði með 2.027. Finninn Tony Ranta varð í 2. sæti með 1.634 eins og Daninn Carsten W. Hansen sem tapaði bráðabananum og endaði í 3. sæti. Sjá stöðuna í úrslitakeppni pilta

Hjá stúlkunum var þrefaldur sænskur sigur. Lisa Björklund varð í 1. sæti með 1.591, 8 pinnum ofar en Jenny Wegner í 2. sæti með 1.583 og systir hennar Cajsa Wegner varð í 3. sæti með 1.480. Sjá stöðuna í úrslitakeppni stúlkna.

Nýjustu fréttirnar