Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Facebook
Twitter

Í október hefst haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs almenns hluta sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Haustfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 7. október nk. og tekur átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.-  Allt efni er innifalið í gjaldinu s.s. bókin Þjálffræði sem send er heim til þátttakenda ásamt öðru efni.  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins.  Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur!  Skráning er á [email protected] eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 3. október. Sjá nánar í auglýsingu

Haustfjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 14. október nk. og tekur það fimm vikur.  Um er að ræða samtals 40 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 18.000.-  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það er sjálfstætt framhald náms á 1. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms, s.s. náms í ÍÞF 1024. Skráning er á [email protected] eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 10. október n.k. Sjá nánar í auglýsingu
 

Nýjustu fréttirnar