Úrslitakeppni 1. deildar karla – 2. leikur

Facebook
Twitter

Önnur viðureignin í úrslitum 1. deildar karla á Íslandsmóti liða á milli ÍR-KLS og ÍR-PLS fór fram í Egilshöllinni í kvöld. ÍR-KLS vann með 14 stigum gegn 6 stigum ÍR-PLS og staðan er því þannig að ÍR-KLS er með 25 stig á móti 15 stigum ÍR-PLS. Þriðja og síðasta viðureignin um Íslandsmeistaratitilinn og seinni heimaleikur deildarmeistaranna ÍR-KLS fer fram í Egilshöllinni annaðkvöld, þriðjudaginn 30. apríl og hefst kl. 19:00.

Lið ÍR-PLS byrjaði betur í kvöld og vann 4 – 2 í fyrsta leiknum með 761 pinna á móti 726. ÍR-KLS náðu að svara fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 5 – 1 með 832 pinnum  á móti 807. Í þriðja leiknum gáfu bæði liðin í og fór hann 5 – 1 fyrir KLS sem spilaði 904 en PLS 879. Samtals var ÍR-KLS með 2.462 pinna og ÍR-PSL með 2447. Andés Páll Júlíusson ÍR-KLS spilaði best í kvöld með 692 seríu, Róbert Dan Sigurðsson ÍR-PLS spilaði 639 og gamla brýnið Hörður Ingi Jóhannsson spilaði 622. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Nýjustu fréttirnar