Úrslitakeppni 1. deildar kvenna – 1. leikur

Facebook
Twitter

Fyrsta viðureignin í úrslitum 1. deildar kvenna á Íslandsmóti liða á milli KFR-Valkyrja og ÍR-TT fór fram í Egilshöllinni í gærkvöldi. Eftir jafna og spennandi keppni er staðan þannig að ÍR-TT er með 12 stig á móti 8 stigum KFR-Valkyrja. Önnur viðureignin og heimaleikur ÍR-TT fer fram í Egilshöllinni í kvöld og hefst kl. 19:00.

Lið ÍR-TT byrjaði betur í gærkvöldi og vann 5 -1 í fyrsta leiknum með 695 pinnum á móti 637. KFR-Valkyrjur náðu að svara fyrir sig í öðrum leiknum og unnu hann 4 – 2 með 709 pinnum  á móti 690. Þriðji leikurinn var enn jafnari og fór 3 – 3 þar sem ÍR-TT spilaði 734, en KFR-Valkyrjur 732 og samtals var ÍR-TT með 2.119 pinna og KFR-Valkyrjur 2.073. Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT spilaði best í gær og var með 590 seríu, Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum spilaði 569 og Dagný Edda Þórisdóttir var með 568. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Nýjustu fréttirnar