Undanúrslit 1. deildar karla – Seinni leikur

Facebook
Twitter

Það verða deildar-, Íslands og Bikarmeistaranir ÍR-KLS sem mæta ÍR-PLS í úrslitum 1. deildar karla á Íslandsmóti liða sem hefjast sunnudaginn 28. apríl n.k. og fara fram á heimavelli liðanna í Egilshöllinni.

Seinni leikir undanúrslitanna í karlaflokki fóru fram í Keilusalnum á Akranesi í kvöld og gærkvöldi. Í gær fór fram leikur ÍR-KLS og ÍA-W og náðu Skagamenn fram nokkrum hefndum fyrir stórt tap í fyrri leik liðanna og vann leikinn 11 stig á móti 9. ÍR-KLS vann hins vegar viðureignina með samtals 27 stigum á móti 13. ÍR-PLS fór upp á Skaga í kvöld og vann þar stórsigur á ÍA, eða með 17 stig á móti 3 og ÍR-PLS vann því viðureignina með samtals 31 stigi á móti 9.

Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Nýjustu fréttirnar